Fréttatíminn - 26.11.2010, Side 61
Við styðjum
Vilhjálm Þorsteinsson
til stjórnlagaþings! 2325
Anna Lilja Jóhönnudóttir háskólanemi, Kópavogi
Bergþóra Birgisdóttir þjónustufulltrúi, Djúpavogi
Birgir Hermannsson aðjúnkt, Reykjavík
Bjarni Geir Alfreðsson veitingamaður, Reykjavík
Björgvin Ingi Ólafsson háskólanemi, Evanston, Bandaríkjunum
Björgvin Valur Guðmundsson leiðbeinandi, Stöðvarfirði
Flosi Eiríksson viðskiptafræðingur, Kópavogi
Gísli Hauksson hagfræðingur, Reykjavík
Guðrún Jóna Jónsdóttir tölvunarfræðingur, Reykjavík
Gunnar Tryggvason verkfræðingur, Reykjavík
Halldór Friðrik Þorsteinsson forstjóri, Reykjavík
Herdís Björk Brynjarsdóttir háskólanemi, Dalvík
Hilmar Veigar Pétursson framkvæmdastjóri, Kópavogi
Hlédís Sveinsdóttir athafnakona, Fossi, Snæfellsbæ
Hlynur Þór Magnússon blaðamaður, Reykhólahreppi
Hrafnhildur Hafberg menntaskólakennari, Ísafirði
Hreinn Sigmarsson búfræðingur, Reykjavík
Hulda Kristín Magnúsdóttir hönnuður, Reykjavík
Ína Björk Hannesdóttir viðskiptafræðingur, Reykjavík
Ingibjörg Jóhannsdóttir skólastjóri Myndlistarskólans í Reykjavík
Ingibjörg Stefánsdóttir jógakennari, Reykjavík
Jón Steinsson hagfræðingur, New York
Jónas Björgvin Antonsson framkvæmdastjóri, Kópavogi
Karl Th. Birgisson ritstjóri, Reykjavík
Katrín Atladóttir tölvunarfræðingur og bloggari, Reykjavík
Kristín Pétursdóttir forstjóri, Hafnarfirði
Kristján Björn Þórðarson myndlistarmaður, Reykjavík
Lúvíg A. Halldórsson fv. skólastjóri, Stykkishólmi
Örn Karlsson skógarbóndi, Sandhóli v/Kirkjubæjarklaustur
Ragnheiður Jóna Jónsdóttir kennari og athafnakona, Kópavogi
Salvör Jónsdóttir skipulagsfræðingur, Reykjavík
Sigríður Olgeirsdóttir framkvæmdastjóri, Kópavogi
Svanhildur Sigurðardóttir skrifstofustjóri, Reykjavík
Þórður Kristjánsson kerfisfræðingur, Reykjavík
Þorgerður Ólafsdóttir galleristi, Reykjavík
Þorlákur Axel Jónsson menntaskólakennari, Akureyri
Þuríður Ottesen framkvæmdastjóri, Reykjavík
Skynsamur og vandaður fulltrúi þjóðarinnar
S umir deyja úr þessu en ég lifi,“ segir Eiríkur Smith listmálari en hann hefur ekki getað mundað
pensilinn eftir að hann fékk vægt heila-
blóðfall fyrir rúmum tveimur árum.
Hann tekur þessu með stóískri ró,
segist bara verða að bíða og sjá hvernig
mál þróist. Verði biðin löng, sé ekkert
annað að gera en að taka því. Það er að
sönnu óþénugt fyrir listmálara að geta
ekki málað en að öðru leyti hefur Ei-
ríkur náð sér allvel eftir áfallið, „nema
hvað ég hef farið andskoti illa á minn-
inu, enda orðinn 85 ára,“ segir hann.
„Ég var að vinna við portrett af fínum
manni og var kominn áleiðis með það
þegar þetta gerðist,“ segir Eiríkur, „en
ég hét því að ég skyldi klára verkið þótt
ég ynni ekki nema 20 mínútur í einu,
vildi ekki vinna lengur í senn mál-
verksins vegna. Það hafðist, enda er ég
þrjóskur, en síðan hef ég ekkert málað,
bara ekkert.“
Eiríkur sameinar vinnustofu og
heimili á reisulegum stað í Hafnarfirði,
þar sem útsýni er vítt, hvort heldur er
yfir Hafnarfjörð og sjóinn eða norður til
Esjunnar. „Þegar ég var yngri langaði
mig til að mála Esjuna og sá enska kell-
ingu sem var að mála hana frá Hamr-
inum. Mig langaði að fara hingað upp
eftir og mála fjallið héðan, vera heldur
nær því. Ég fór því með allt krakka-
stóðið á eftir mér og málaði akkúrat frá
þessum stað. Ég sá að þetta var mjög
góður staður til að vera á, hafði hann
fyrir augunum á mér þegar kvöldsólin
skein á hann, miklu lengur en niðri í
bæ. Það var allt glitrandi í sólskini.“
Draumur Eiríks rættist síðar þegar
hann byggði hús sitt og vinnustofu
þarna efst í Setbergslandinu.
Fjarri lagi er að Eiríkur hafi lagt árar
í bát þrátt fyrir áfallið. Að frátaldri mál-
arakúnstinni hefur golfið verið hans
ástríða um áratugaskeið. Þar lætur
málarinn ekki deigan síga, leigir sér bíl
björtustu mánuði ársins, frá maí fram í
september, og fer 18 holur, lætur minna
ekki duga. „Við erum fjórir karlar sem
spilum saman þegar vel viðrar,“ segir
Eiríkur. „Ég var helvíti grobbinn þegar
ég kynntist þessari íþrótt, fór vítt og
breitt í keppni og var helst með Gísla
heitnum Sigurðssyni lesbókarritstjóra
og Kjartani L. Pálssyni, blaðamanni
og leiðsögumanni. Þegar best lét var
ég kominn með 6 í forgjöf og komst í
meistaraflokk eitt sumar, sem að vísu
var ekkert keppikefli. En fljótlega eftir
þetta átti ég heima í elliflokki í golfinu.
Við fórum víða þar sem Kjartan L. var
aðalgæinn.
Málverk Eiríks frá ýmsum skeiðum
eru í rekkum á vinnustofunni. „Ég var
sitt á hvað abstrakt eða fígúratívur,“
segir málarinn þegar hann handleikur
nokkur verk sín. Verk Eiríks eru sýnd
reglulega enda gaf hann Hafnarborg
drjúgan hluta safns síns, nær 400 mál-
verk. „Þar voru sýnd gömul geómetrísk
verk í fyrra og væntanlega taka þeir
annað skeið fyrir næst,“ segir Eiríkur
og hrósar stjórnendum Hafnarborgar,
menningarmiðstöðvar Hafnarfjarðar.
„Þeir vönduðu sig mjög við að velja úr
safninu, það hefur mikið að segja.“
Þótt Eiríkur Smith máli ekki lengur
sér hann allt eins fyrir sér að hann
haldi áfram um pensil á öðru tilveru-
stigi. Hann hefur grúskað í eilífðarmál-
unum. „Annað hvort eflist ég sem
málari eða fer út í eitthvað allt annað,“
segir hann og nefnir áhuga sinn á flugi.
„Eitt sinn langaði mig að verða flug-
maður,“ segir listmálarinn en hann var
meðal frumherja í svifflugi á stríðsár-
unum, „og ásamt öðrum sá fyrsti sem
lærði fallhlífarpökkun. Ég er svona
dellukall í ýmsu.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LiStmáLun Eiríkur Smith tEkur örLögum Sínum af æðruLEySi
Hefur ekki málað eftir heilablóðfall
Hafnfirski listmálarinn lætur ekki deigan síga í áhugmáli sínu, golfinu,
þrátt fyrir áfallið en snertir ekki pensilinn lengur. Sér allt eins fyrir sér
að standa við trönurnar á öðru tilverustigi.
Olíumálverk og vatnslita-
myndir jöfnum höndum
Eiríkur Smith fæddist í Hafnarfirði árið 1925. Hann stundaði
nám við Handíðaskólann 1946-48 og í einkaskóla Rostrup
Böyesens í Kaupmannahöfn 1949-50 og fór í námsferð til
Parísar 195-51. Eiríkur hélt sína fyrstu málverkasýningu í Sjálf-
stæðishúsinu í Hafnarfirði 1948 og hélt stóra sýningu í Lista-
mannaskálanum eftir að hann kom frá námi 1952. Síðan hefur
Eiríkur haldið allmargar stærri sýningar á Kjarvalsstöðum og
í Listasafni Hafnarfjarðar, Hafnarborg, en hann gaf því safni
veglega málverkagjöf. Eiríkur málaði jöfnum höndum stór og
smá olíumálverk og vatnslitamyndir og hefur verið óhræddur
við að fara inn á nýjar brautir í listsköpun sinni. Eiríkur er
menntaður prentsmiður og vann til margra ára í þeirri iðn
með myndlistinni. -jh
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
viðtal 37 Helgin 26.-28. nóvember 2010