Fréttatíminn - 26.11.2010, Page 88

Fréttatíminn - 26.11.2010, Page 88
Ég get kokhraust lofað góðri skemmtun INNBYGGÐ KVÖRN! KRYDDAÐU UPP Á NÝJUNGUM KRYDDKVARNIR – ÞVÍ AÐ NÝMALAÐ ER BEST Sölustaðir : N1, Bónus, Hagkaup, Pósturinn, Katár,Te og ka, Epal, Hrím, Kraum, Sirka, Melabúðin, Valfoss, Rauðakrossbúðirnar, Mál og menning, Debenhams, Mýrin, Minja, Iða, Vínberið, Háma, Hrafnistubúðin Laugarási, Garðheimar, Oce1, Galleri Sautján-Kringlunni og Smáralind Allur ágóði af sölunni rennur til Krabbameinsfélags Íslands tb r h ön nu n „Fáðu þér gott fyrir gott“ D agur rauða nefsins verður hald-inn hátíðlegur 3. desember næst-komandi og lýkur með glæsi- legri beinni sjónvarpsútsendingu á Stöð 2. Leikstjórinn Silja Hauksdóttir hefur verið viðloðandi starfsemi Unicef allt frá árinu 2006 og ferðast fyrir samtökin heimshorna á milli. Silja segir að hlutverk hennar fyrir samtökin sé tvenns konar. Annars vegar að fara til útlanda og mynda ástandið þar ásamt tökumanni. Hins veg- ar hafi hún tekið hluta af grínefninu sem notað hefur verið í beinum sjónvarpsút- sendingum undanfarinna ára. „Hugsunin með þessum degi er að grína til góðs. Það er skýr verkaskipting innan útsendingarinnar. Annars vegar al- vara málsins sem verið er að fjalla um og síðan skemmtilegi þátturinn, ef svo má að orði komast,“ segir Silja um það hvernig það gangi upp að blanda gríni saman við jafn alvarleg mál og Unicef berst fyrir. Silja segir það forréttindi að fá að ferðast um heiminn með Unicef og koma á staði sem hún myndi sennilega aldrei hafa farið til. „Þetta er mögnuð lífsreynsla og maður fær mikla innsýn í erfiða hluti sem fólk á þessum stöðum glímir við. Það tekur á og er eitthvað sem maður kemur með heim með sér,“ segir Silja. Aðspurð hvaða ferð standi upp úr segir hún erfitt að gera upp á milli en þó sé það kannski síðasta ferðin, til Jemen nú í október, sem rísi hæst. „Það var erfitt og flókið að vera kona þarna. Kúltúrinn er ekki hliðhollur konum. Ég las það í skýrslu um daginn að þetta væri erfiðasti staður fyrir konur að vera á en Ísland væri sá besti. Þannig að ég fékk það besta og versta á skömmum tíma,“ segir Silja. Og hún lofar fjöri næsta föstudag. „Ég get kokhraust lofað góðri skemmtun. Við erum með landslið grínara sem semur og leikur í grínatriðunum. Allir gefa vinnu sína fyrir þetta góða málefni,“ segir Silja. oskar@frettatiminn.is Oksana lærir lög eftir að hafa rekið 42 lögfræðinga Oksana Grigorieva, fyrrverandi eiginkona stórleikar- ans Mels Gibson, er byrjuð að læra lögfræði, nánar tiltekið fjölskyldurétt, samkvæmt vefsíðunni tmz.com, til að vera betur undirbúin í málaferlum sínum við Gibson. Það kemur þó ekki til af góðu að Oksana hefur sest yfir lögfræðibækurnar því hún hefur nú rekið 42 lögfræðinga sem hafa unnið fyrir hana. Sá síðasti sem fékk að fjúka, Roland A. Litz, dugði í tvær vikur en hann sagði við fjölmiðla að hann vonaðist til að koma á friði á milli stríðandi fylkinga – sem honum tókst greinilega ekki. Samkvæmt vefsíðunni les Oksana nú bókina Cali­ fornia Practice Guide – Family Law sem hún fékk að gjöf frá Daniel Horowitz, lögfræðingi númer 39 í röðinni hjá þessari rússnesku þokkadís.  silja HauksDóttir Á ferð og flugi með unicef Silja Hauksdóttir hefur unnið með Unicef undanfarin fimm ár. Ljósmynd/Hari Grínar til góðs á degi rauða nefsins Dagur rauða nefsins var fyrst haldinn á Íslandi árið 2006. Hann var síðan aftur haldinn í fyrra. Hugmyndin kemur frá bresku góðgerðasamtök- unum Comic Relief sem héldu fyrst upp á daginn árið 1988. 64 dægurmál Helgin 26.-28. nóvember 2010

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.