Fréttatíminn - 22.10.2010, Blaðsíða 34
Einfaldur
kjúklingur
kjúklingabringur
kjúklingakrydd eða krydd að
smekk
kókosfita, ef vill
Kryddið kjúklingabringurnar og
bakið í ofni við 180°C í um 30 mín.
Kjúklingabringurnar eru einnig
góðar steiktar upp úr kókosfitu.
Berið fram með hrísgrjónum eða
bökuðum, sætum kartöflum.
Brakandi
ferskt salat
1 poki klettasalat
1/2 poki spínat
1/2 gúrka
2-3 tómatar
fræblanda
vínber, melóna eða jarðarber
Skerið gúrku og tómata í bita.
Skerið melónu í bita. Blandið öllu
saman og berið fram.
Prótínpönnu-
kökur
8-10 stk.
Hollari útgáfa af amerískum
klöttum.
2 bollar haframjöl
8 eggjahvítur
2 tsk. kanill
ananas, eftir smekk, eða stapp-
aður banani
hnefafylli af rúsínum
mjólk eða vatn
2 skeiðar hreint prótín með vanillu
eða súkkulaðibragði
kókosfita, til steikingar
Blandið þurrefnum saman í skál.
Bætið vatni eða mjólk út í þar til
deigið er orðið hæfilega þykkt.
Bræðið kókosfitu á pönnu og
steikið litlar pönnukökur.
34 matartíminn Helgin 22.-24. október 2010
E va Sveinsdóttir kann vel að meta góðan mat og er svo heppin að eiga mann sem er
liðtækur í eldhúsinu. Þessa dagana
þarf hún þó að gæta vel að matar-
æðinu því hún er að undirbúa sig
fyrir fitness-mót. Eva stefnir á
verðlaunasæti, enda þrefaldur Ís-
landsmeistari í Icefitness.
Eva hefur lengi haft áhuga á
hollu mataræði og líkamsrækt.
Hún var lögregluþjónn í nokkur ár
en eitt af skilyrðunum fyrir því að
komast í lögregluna er hreysti og
gott úthald. Í dag vinnur hún hjá
tryggingafélagi og sinnir áhuga-
málinu af kappi. Hún er með
þjálfara sem leiðbeinir henni í
matarmálum. ,,Ég borða aðallega
fisk eða kjúkling með góðu salati
og sætum kartöflum,“ segir Eva,
sem ætlar að taka þátt í Icelandic
Fitness and Health Expo-móti
helgina 19.-20. nóvember. Hún
borðar yfirleitt fremur hollan mat
og þarf því ekki að gjörbreyta
mataræðinu fyrir fitnesskeppnir.
,,Ég borða ekki eitthvað sem mér
finnst vont, bara af því að það er
hollt. Mér þykir líka gaman að
smakka eitthvað nýtt. Ég fékk t.d.
keilu í fyrsta sinn í hádeginu í gær.
Með henni var salat og sósa en
ég sleppti sósunni. Hér á landi er
frábært úrval af góðum fiski sem
hægt er að elda á óteljandi vegu.“
Lax er í miklu uppáhaldi hjá
Evu. ,,Ofnbakaður lax með sætum
kartöflum og hráu spergilkáli er
frábær samsetning. Mér finnst
spergilkálið best hrátt því þá er
það svo stökkt og gott,“ segir hún
Æfir sjö sinnum
í viku og passar
mataræðið
Prótínpönnukökur í nesti
Evu finnst ekki erfitt að borða sam-
kvæmt ströngu prógrammi. ,,Ég borða
aldrei neitt sem mér finnst vont, bara
af því að það er hollt.“ Ljósmynd/Hari.
og bætir við að hún sleppi kart-
öflum og hrísgrjónum með kvöld-
matnum þegar styttist í keppni.
Á hverjum morgni útbýr Eva
frískandi boost-drykk sem saman-
stendur af Labrada-prótínblöndu,
frosnum ávöxtum og múslíi eða
haframjöli og vatni eða ávaxta-
safa. ,,Ég fæ mér líka boost-drykk
eftir hverja æfingu,“ segir Eva en
hún æfir líkamsrækt sjö sinnum
í viku. Þegar nær líður keppni
fjölgar æfingunum og hún æfir þá
tvisvar á dag, fjóra daga vikunnar.
Á því tímabili borðar hún meira af
ávöxtum en vanalega til að skera
sig niður og vöðvarnir njóti sín
sem best.
En skyldi eitthvað vera á bann-
lista hjá henni? ,,Ég borða engar
mjólkurvörur, ekkert brauð, engar
sósur og ekkert sælgæti eða sæta-
brauð en hins vegar hef ég nammi-
dag einu sinni í viku. Þá fæ ég mér
allt sem mig langar í, fer í bakaríið
eða fæ mér ís og bland í poka. Ég
veit ekkert betra en súkkulaði og
vil helst hafa súkkulaðibragð af
öllu!“
Eva viðurkennir fúslega að hún
fái sér stöku sinnum skyndibita
og þá einna helst hjá Nings. ,,Ég á
erfitt með að standast gott sushi.
Úrvalið af skyndibitafæði hefur
aukist mikið og það er hægt að
velja hollan skyndibita fram yfir
óhollan.“
Eva hlær þegar hún er spurð
hvort hún eldi oft. ,,Maðurinn
minn, Kjartan Jóhannsson, eldar
oftast en ég baka og sé um með-
lætið. Hann eldar fyrir mig þegar
ég er að æfa. Hann dekrar við mig.
Reyndar baka ég oft prótínpönnu-
kökur og hef með mér í nesti yfir
daginn. Ég set þær í frystinn og
gríp síðan með mér þegar ég hef
mikið að gera. Pönnsurnar eru al-
gjört æði,“ segir Eva.