Læknablaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 37
LÆKNABLAÐID
139
um. Þessi drög eru farin út og mun greinin
vonandi birtast fljótlega á nýárinu.
Breski fulltrúinn, Douglas Gentleman, sagði
að við ættum ekki að eiga svo erfitt með að fá
pláss, allavega ekki í Skotlandi. Einnig sagði
hann að besta leiðin væri að koma á sambandi
milli prófessora eða yfirlækna í sem flestum
greinum, líkt og Sigurður S. Magnússon hefði
pegar gert.
Hvað framtíðina varðar, er mjög mikilvægt
að FUL haldi því sambandi sem pegar hefur
náðst við áðurnefnd lönd, auk pess sem félagið
efli tengsl við fleiri lönd og sinni utanríkis-
málum almennt meira. Okkar framtíð byggist
á pví að hafa aðgang að sérnámi erlendis. Með
offramboði á læknum í flestum löndum hefur
staða okkar versnað. Eina leiðin til að halda
löndum opnum fyrir okkur, er að hafa góð
tengsl við læknafélög viðkomandi landa sem
skilja okkar séraðstöðu. Önnur hlið á pessu
máli er, að biðja stjórnvöld um aðstoð, að pau
semji við yfirvöld annarra landa um aðstöðu
til sérnáms fyrir okkur. Þessi hugmynd hefur
lítillega verið rædd, en í framkvæmd hefði hún
bæði kosti og galla í för með sér.
7. Ýmis mál
a) Samningur vid sjúkrahúsið í Keflavík.
Gerður var ráðningarsamningur við yfirlækni
sjúkrahússins í Keflavík um ráðningu félags-
manna FUL til sjúkrahússins. Sampykkti
stjórnin samninginn með pví skilyrði, að skrif-
legt loforð kæmi um bílastyrk.
í framhaldi af pessu ritaði stjórnin lækna-
deild bréf, par sem spurt var, hvort deildin
viðurkenndi vinnu á sjúkrahúsinu til kandí-
datsárs. í svarbréfi Jónasar Hallgrímssonar,
deildarforseta, kom fram, að svo væri ekki, pví
að ekki væri um deildaskipt, sjúkrahús að
ræða. Hefur lítil eftirspurn verið eftir vinnu á
sjúkrahúsinu.
b) Ípróttatímar. Athugað var með sameigin-
legan ípróttatíma fyrir læknakandídata í haust,
en enginn tími fékkst.
c) Bréfsefni. Hannaður var bréfhaus fyrir fé-
lagið. Var mikill ágreiningur um, hvort rita-
skuli FUL með u eða ú. Að lokum varð u ofan á.
Stjórn félagsins taldi ástæðu til að finna að
vinnubrögðum yfirlækna og launadeildar eins
sjúkrahúsanna, par eð einn félagsmaður hafði
verið vændur um að skrifa óeðlilega mikla
yfirvinnu á sig. Var um ósannindi að ræða og
málið leiðrétt.
d) Akureyrarmái. Akureyrarfarar höfðu sam-
band við stjórn FUL, par eð framkvæmda-
stjóri F.S.A. hafði neitað að greiða ferðastyrk
norður, líkt og gert hefur verið undanfarin ár.
Eins var rætt um hugsanlegt yfirvinnupak, sem
miðast átti við 120 klukkustundir.
Treg fyrirgreiðsla var einnig með barnaheim-
ilisvistun og útvegun húsnæðis. Lagði stjórn-
in áherzlu á, að unglæknar vissu að hverju peir
gengju frá upphafi og hefðu fyrirvara með
ráðningu, ef útaf brygði.
Ferðastyrkur og barnaheimilisvistun voru
talin sjálfsögð og eðlileg krafa. Hversu hart
pað yrði sótt, pyrfti að ákveðast af norðanför-
um sjálfum, par eð um væri að ræða atriði
utan kjarasamninga. Var félagið tilbúið að
standa á bak við óskir peirra, ekki síst með
tilliti til fordæmisgildis fyrir komandi ár. Var
ekki mikil áhersla lögð á petta í ár.
Yfirvinnuálagið kom aftur til umræðu síðla
sumars, en leystist á heimavelli áður en til
meiriháttar átaka kom.
e) Ásökunum í DV um, að FUL stæði í vegi
fyrir atvinnuleyfi til handa pólska flóttamann-
inum, var svarað með grein í blaðinu og
misskilningur blaðsins leiðréttur.
8. Tengsl við önnur félög
Á aðalfundi Læknafélags Reykjavíkur voru
Finnbogi Jakobsson og Vilhelmína Haralds-
dóttir kosin í stórráð L.R.
Á aðalfundi Læknafélags íslands var Finn-
bogi Jakobsson kosinn í stjórn L.í.
Á aðalfundi Lífeyrissjóðs lækna var stung-
ið upp á Grími Sæmundsen í varastjórn
lífeyrissjóðsins, en hann féll á hlutkesti eftir
jafna kosningu.
Félaginu hefur borizt listi yfir meðlimi
Félags ísl. lækna í Þýzkalandi.
Félaginu barst bréf frá F.Í.L.Í.S., par sem
F.Í.L.Í.S. lýsir sig ósammála hugmyndum fyrri
stjórnar FUL, um nýtingu á »super«kandídats-
stöðum hérlendis, (sjá síðustu ársskýrslu).
Formaður F.Í.L.Í.S., Jón Snædal, hafði sam-
band fyrir stuttu og sagði, að kynningarbæk-
lingur um Svípjóð hefði verið endurskoðaður
og yrði sendur FUL.
Félagi ísl. lækna í Norður-Ameríku var sent
kynningarbréf í framhaldsmenntunarmálum
hérlendis, vegna fyrirspurnar peirra par um.