Læknablaðið - 15.05.1984, Side 58
150
1984; 70: 150-3 LÆKNABLADIÐ
Matthías Kjeld, Bjarni Pjóðleifsson
KALÍUM OG NATRÍUM ÚTSKILNAÐUR í PVAGI
ÍSLENDINGA
INNGANGUR
Undanfarinn tvo og hálfan áratug hefur verið
mikill og vaxandi áhugi á natríum (Na) og
kalíum (K) búskap manna. Áhugi pessi er til
kominn vegna hugsanlegs orsakasambands
saltneyslu og háþrýstings (1, 2, 3, 4, 5).
í hnotskurn er umræðan sú, að óhæfilega
mikil Na-neysla og lítil K-neysla á Vesturlönd-
um, sé ef til vill ein aðalosökin fyrir of háum
blóðþrýstingi, enda hefur mannkynið ekki
þróast með slíkum salthlutföllum í fæðu
gegnum aldirnar. Breyttir lifnaðarhættir eins
og suða grænmetis með K-tapi úr fæðu og
geymsla matvæla í salti (NaCl) svo og óhófleg
saltnotkun (borðsalt) sem bragðefni, hafa
hækkað Na/K hlutfallið geysilega. Kannanir í
ýmsum löndum hafa sýnt fylgni milli blóðþrýst-
ings og Na og K útskilnaður í þvagi, jákvæða
fylgni fyrir Na og Na/K hlutfallið en neikvæða
fyrir K. (6, 7, 8, 9, 19). Þessa fylgni hafa þó ekki
allir fundið (11, 12) og niðurstöður verið
gagnrýndar (11).
Dýratilraunir sýna, að aukið Na í fæðu
framkallar háþrýsting, sem K getur að nokkru
hindrað (13, 14). Á síðustu áratugum hefur
tíðni dánartilfella á Vesturlöndum af völdum
sjúkdóma í heilaæðum farið minnkandi (7, 15).
Rannsóknir hérlendis benda til hins sama (16).
Þetta telja sumir að megi m.a. skýra með
aukinni neyslu fersks grænmetis (K ríkt) og
minnkandi notkun salts (NaCl) vegna tilkomu
frystihúsa og kæli- og frystiskápa á heimilum
(17).
Na og K útskilnaður (neysla) íslendinga
hefur ekki verið mældur svo okkur sé kunnugt,
en stuðst hefur verið við erlendar tölur til
viðmiðunar (18). Annað, sem ýtti undir þessa
rannsókn, var birting niðurstaðna á mælingum
K í sermi íslenskra karla (19), þar sem gildi
mældust 0,5 mmol/1 lægri en áður þekktist
(20). Þessi lágu sermisgildi fyrir K gátu speglað
Frá Rannsókn 6, Rannsóknastofu Landspitalans og Lyf-
lækningadeild Landspítalans. Reykjavík. Barst ritstjórn
09/10/1983. Samþykkt 10/11/1983 og send i prentsmiðju.
hugsanlegan K-skort og kölluðu því á K
mælingar í þvagi til að kanna K-neyslu.
Tilgangur þessarar rannsóknar, sem hér er
greint frá, var að kanna Na og K í fæði
íslendinga. Beinar mælingar á þessum efnum
í fæðunni eru erfiðar og ónákvæmar, sérstak-
lega ef fólk lifir sínu daglega lífi og borðar sitt
daglega fæði, en það er einmitt undir þessum
kringumstæðum, sem áhugaverðast er að vita
um saltneysluna. Sú aðferð, sem hér er notuð,
er að safna sólarhringsþvagi og er það talið
gefa góða vísbendingu um saltmagn í fæðu.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Þrír hópar fólks tóku þátt í þessari könnun. 1)
13 sjálfboðaliðar meðal starfsfólks Landspít-
alans og utan hans á aldrinum 28-46 ára. 2) 18
sjúklingar á aldrinum 16-74 ára, sem vistaðir
voru á Lýtalækningadeild Landspítalans eða
Bæklunardeild og höfðu enga kerfissjúkdóma,
höfðu fótavist og voru án lyfja, þ.e. sjúklingar,
sem komu til einfaldari, valdra (selectivra)
aðgerða. Þvagsöfnunin fór fram fyrir aðgerð
eða 2-3 vikum eftir aðgerð og voru sjúklingar
þá á eðlilegu fæði. 3) 41 heilbrigður karlmaður,
46-72 ára, sem kom í skoðun til Hjartaverndar
á árunum 1980 og 1981.
Þvagi var safnað í plastbrúsa og þvagmagn
mælt strax eftir að þátttakendur afhentu
þvagið en síðan teknir 20-30 ml og geymdir
við — 20° C uns mældir. Morgunþvagsýni voru
fengin frá 10 manns í hópum 1) og 2), ýmist
þvagsöfnunardaginn eða daginn eftir.
Na og K var mælt í logaljósmæli eins og
áður er lýst (20) en kreatinin, sem mælt var í
öllum sýnum, var mælt á autoanalyzer (Tech-
nicon) með Jaffé aðferð (alkaline picrate). Ef
magn kreatinins var lægra en 0,88 g (7,8
mmol)/sólarhring var söfnunin ekki talin
áreiðanleg og var 2 sýnum hafnað af þeim
sökum.
NIÐURSTÖÐUR
Útskilnaður Na, K og kreatinins í sólar-
hringsþvagi er sýndur í töflu I, svo og þvag-