Læknablaðið - 15.04.1985, Page 15
LÆKNABLAÐIÐ
87
eru verulegar á þessu tímabili: í byrjun
tímabilsins hafa sjálfsvíg verið tíð í
Danmörku, en tíðnin verið lág í hinum
löndunum og er Finnland áberandi Iægst.
Næstu fimmtíu árin verður sú breyting, að
tíðnin lækkar í Danmörku, en hækkar í
Finnlandi og Svíþjóð. Eftir 1920 fylgjast
þessar þjóðir nokkurn veginn að. Noregur og
ísland fylgjast nokkuð að allan tímann, en
ísland þó alltaf heldur hærra, en í lok tímabils-
ins er enginn munur.
Sé litið sérstaklega á fsland með tilliti til
þessa tímabils, kemur eftirfarandi i ljós í töflu
I:
Lægsta tíu ára tímabilið á þessum eitt
hundrað árum er 1921 til 1930 með 6,7
sjálfsvíg á hverja 100.000 íbúa, en það næst
lægsta 1881-1890með7,3/105. Hæstatímabil-
ið er hins vegar 1961-1970: 11,5/105. Séu fyrri
50 árin borin saman við seinni 50 árin, þá er
meðaltal tíðnitalna fyrir fyrra tímabilið
----N ....F ----1
----D ----S
Mynd 1. Tlðni sjálfsvíga á Norðurlöndum 1880 lil 1980
miðað við hverja 100.000 íbúa.
Mynd 2. Tlðni sjálfsvíga á Norðurlöndum 1966 til 1980
miðað við hverja 100.000 íbúa.
8,5/105, en það síðara 10,1 á 100.000 íbúa.
Mætti út frá því draga þá ályktun, að um
einhverja aukningu hafi verið að ræða.
Hæsta árið er 1966, 37 sjálfsvíg og hæsta
árið fyrir karla er einnig 1966, 31 karl. Hæsta
árið fyrir konur er 1980: Tíu konur. Lægst eru
árin 1885 og 1898, einn karl og ein kona.
Lægsta árið síðan 1966 er 1971, níu karlar og
tvær konur.
Á mynd 2 er tímabilið 1966-1980 sýnt
sérstaklega. Á þessu tímabili varð hækkun í
Noregi frá 7,1/105 árið 1966 í 12,4/10’ árið
1980. Á meðan örlítil hækkun varð í Finnlan-
di og nánast engin breyting í Svíþjóð, varð
nokkur hækkun i lok tímabilsins í
Danmörku.
Á íslandi urðu verulegar sveiflur á tímabil-
inu 1966-1980, en tíu ára tímabilið 1961-1970
er hærra en tímabilið 1971-1980 og i Iok þess
tímabils er ísland orðið lægra en Noregur
fyrir einstök ár.
Á mynd 3 er sýnd skipting milli kynja á
þessu síðasta 15 ára tímabili. Nokkrar sveiflur
eru milli einstakra ára, en sem heild fylgjast
Noregur og fsland að.
Á fjórðu myndinni er sýnd sú breyting, sem
verður á tíðni sjálfsvíga fólks á aldrinum 15-
24 ára á tímabilinu 1966-1980. Fyrir ísland eru
tölurnar fyrir þessa aldursflokka svo lágar, að
1966 1968 1970 1972 1974 1976 1978 1980
----N ....F ----1
----D ---S
Mynd 3. Tíðni sjálfsvíga á Norðurlöndum 1966 til 1980
eftir kynjum. Miðað er við 100.000 karla og konur.