Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1985, Blaðsíða 54

Læknablaðið - 15.04.1985, Blaðsíða 54
110 LÆKNABLAÐIÐ samþykkt viljayfirlýsing um, að læknar séu ávallt tryggðir í starfi. Einnig var samþykkt áskorun til Tryggingastofnunar um að liðka til um greiðslu fyrir hin ýmsu læknisvottorð, en eins og kunnugt er, gerir stofnunin upp við lækna aðeins einu sinni á ári. Nú hrannast óveðursský upp við sjóndeild- arhring. Ekki er ósennilegt, að af boðuðu verkfalli BSRB verði — ef breyting á högum BSRB-manna — BHM samningar lausir — ef breyting á högum BHM-manna — okkar samningar lausir. Það verður þó langsenni- legast, að okkar hlutur verði átakalaus, og að við fylgjum BHM. Undirritaður hefur átt sæti í nefnd, er var skipuð af stjórn LÍ, skv. ákvörðun aðalfund- ar 1983, til að kanna viðskipti lækna við bankakerfið, hvort hægt væri að nýta sameig- inlega sjóði læknafélaganna læknum til framdráttar, t.d. við lánafyrirgreiðslu. Voru nokkrir fundir haldnir og rætt við fulltrúa tveggja banka, en vegna kjaraþófs í vor og sumarleyfa nefndarmanna var verkefninu ekki lokið fyrir síðasta aðalfund. Áfanga- skýrsla var birt með ársskýrslu stjórnar L.í. á aðalfundinum á ísafirði í ágúst sl. Þar sem undirritaður gengur nú úr þesari nefnd, tel ég afar mikilvægt að unglæknar fái að skipa mann í minn stað til að fylgjast með því, sem þar gerist. Árangur af starfi þessarar nefndar, sem ég er sannfærður um að orðið umtals- verður, getur komið okkur mjög til góða. C.S. SKÝRSLA FRÆÐSLUSTJÓRA FÉLAGS UNGRA LÆKNA Haldinn var fundur um framhaldsnám lækna erlendis í Domus Medica þ. 12.3.1984. Fengnir voru gestir sem reynslu höfðu af því að búa og starfa í þeim löndum sem íslenskir læknar sækja helst framhaldsnám til. Einnig komu læknar sem fengið höfðu fram- haldsnámsstöður erlendis og fjölluðu um hvernig ætti að sækja um þær. Var fundurinn vel heppnaður með húsfylli í litla salnum. Kom margt fróðlegt fram og er ástæða til að hafa slika fundi oftar. Helst má gagnrýna að fjallað var um öll helstu framhaldsnámslönd- in og var því tíminn helst til knappur. Mikið hefur verið rætt um framhaldsnám hérlendis og hafa stjórnarmeðlimir og/eða fulltrúar stjórnar nú síðustu árin setið í mörgum nefndum þar að lútandi. Ýmsar nýjungar eru á döfinni í því sambandi, t.d. situr undirritaður í nefnd með yfirlæknum lyflækningadeilda á spítölum í Reykjavík. Fyrirhugað er að aðstoðarlæknar í ársstöðum (super kanditatar) á lyfjadeildum fari í vi- kukúrs í mars á hverju ári. Verða það fyrst og fremst fyrirlestrar og hugsanlega krossapróf í lokin. Þátttakendur munu fá frí að mestu frá kliniskum störfum á meðan á kúrsus stendur. JJJ SKÝRSLA RÁÐNINGASTJÓRA Ráðningamálin hafa á tímabili núverandi ráðningastjóra haldist í nokkru jafnvægi. Síðastliðinn vetur tapaðist ein staða á hand- læknisdeild Landspítalans undir súper- kandídat, en á móti kom, að við bættist ein staða aðstoðarlæknis á lyflæknisdeild Borg- arspitalans. Á síðarnefnda staðnum breyttust jafnframt allar stöðurnar í 5 mánaða stöður, þ.e. úr fjögurra mánaða stöðum. Sama er nú yfirvofandi frá og með 1. febrúar 1985 á lyflæknisdeild Landakotsspítala. Þessar breytingar eru tilkomnar fyrir þrýsting frá yfirlæknum þessara deilda. Telja þeir manna- skiptingar of örar og þannig séu menn rétt komnir með góða starfsþjálfun, þegar þeir þurfa að hætta. Við ráðningastjórar höfum ekkerthaftámótiþessumbreytingumogíreynd einfaldar þetta aðeins ráðningamálin, þar sem skiptingar verða færri, en heildarfjöldi vinnumánaða, sem til ráðstöfunar eru fyrir kerfið, er óbreyttur. Síðastliðinn vetur má segja, að hafi í fyrsta sinn borið á umtalsverðu atvinnuleysi, og var það á tímabilinu frá nóvember til febrúar. Þegar mest var, þá voru þetta um 7 manns, en enginn þeirra þurfti þó að vera án atvinnu lengur en 1 -2 mánuði í einu. Var þetta nokkru meira en veturinn þar á undan. í vor og sumar var aftur á móti líkt og áður, sami vandinn með að ráða til afleysinga í sumarleyfisstöður. Var þetta öllu verra nú en oft áður, þar sem ameríska prófið var nú haldið í lok júlímánaðar i stað september áður. Þannig lagðist saman, að fjöldi þeirra, sem tóku frí til próflesturs, og hinna, sem tóku sér frí til annarra iðkana, varð umtals- verður. Þetta varð til þess, að í haust komu fleiri til vinnu en áður í ágúst og september, en úr því leystist, og ekki kom til atvinnuleysis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.