Læknablaðið - 15.04.1985, Side 37
LÆKNABLAÐIÐ
99
borinn saman við þann fjölda, sem búast má
við að deyi hjá samsvarandi úrtaki hvað
varðar aldur og almanaksár meðal íslenskra
karla. Við samanburðinn er reiknað hlutfallið
milli fundins og væntanlegs fjölda dáinna,
svokallað staðlað dánarhlutfall (Standardi-
zed Mortality Ratio, SMR). Reiknuð eru 95%
öryggismörk með tilliti til Poissondreifingar
(15, 17). Þar sem öryggismörkin innihalda
ekki 1,0 er staðlaða dánarhlutfallið tölfræði-
lega marktækt á 5% stigi. Einnig var fundið
p-gildi sem lesið var úr x2-töflu (15, 17).
Við ákveðna sundurgreiningu á rannsókn-
arefniviðnum er notaður huliðstími. Það þýð-
ir, að athugunin beinist einungis að þeim, sem
tekið höfðu sveinspróf eða fengið höfðu
réttindi fyrir tuttugu árum eða fyrr og þrjátíu
árum eða fyrr. Lágmarks verklegur námstími
múrara er fjögur ár og er liðinn áður en
múrararnir koma inn í rannsóknahópinn og
byrjað er að telja mann ár.
NIÐURSTÖÐUR
Tafla I sýnir fjölda einstaklinga, mannára og
dáinna meðal múrara í rannsóknarhópnum.
Af 450 manns í rannsóknarhópnum höfðu 82
dáið, þar af einn fyrir 1951. Þar sem dánar-
tölur eru ekki aðgengilegar fyrir 1951 kemur
þessi einstaklingur ekki fram í niðurstöðum
sem hér fara á eftir.
Tafla II sýnir stöðluð dánarhlutföll fyrir öll
dánarmein saman, öll illkynja æxli, einstakar
tegundir illkynja æxla, auk annarra dánar-
meinaflokka í öllum hópnum á árabilinu
1951-1982.
Af 449 hafði 81 maður dáið, en búast mátti
við 85,86 dánum. Þetta gefur staðlað dánar-
hlutfall 0,94.
Staðlað dánarhlutfall fyrir öll illkynja æxli
er 1,45, sem er nálægt því að verða tölfræði-
lega marktækt, þar sem neðri 95% öryggis-
mörkin eru nálægt einum heilum eða 0,95.
Staðlað dánarhlutfall fyrir illkynja æxli í
barka, berkjum og lungum (lungnakrabba-
mein) er hækkað og þær niðurstöður eru
tölfræðilega marktækar í 1% stigi. Staðlað
dánarhlutfall fyrir illkynja æxli í þvagblöðru
er hækkað og þær niðurstöður eru tölfræði-
lega marktækar á 5% stigi.
Staðlað dánarhlutfall fyrir önnur dánar-
Table I. Number of masons in the study group, number
of man-years and number of deaths during the period
1927-1982 and with latency periods of 20 and 30 years.
Groups Number of members Number of man-years Number of deaths
Masons, man-years during the period 1927-1982 450 12868,0 82
Masons, 20 years latency period, man-years during the period 1947-1982 389 4202,0 58
Masons, 30 years latency period, man-years during the period 1957-1982 201 1553,5 38
Table II. Observedandexpected number of deaths, standardizedmortality ratio (SMR) and95% confidence limitsfor
449 masons, 1951-1982.
Causes of death (ICD, 7th revision) Observed deaths Number Expected deaths Number SMR 95% confidence limits
Lower Upper
All causes (001-E985) .... 81 85,86 0,94 0,75-1,17
Malignant neoplasms (140-205) .... 26 17,92 1,45 0,95-2,13
- of stomach (151) .... 5 4,30 1,16 0,38-2,71
- of large intestine (152,153) .... 1 1,07 0,93 0,02-5,21
- of rectum (154) .... 1 0,54 1,85 0,05-10,32
- of trachea, bronchus and lung (162-163) .... 9 2,87 3,14 1,43-5,95**
- of bladder and other urinary organs (181) .... 3 0,58 5,17 1,07-15,12*
- other (140,155,161,193,199,204) .... 7 8,56 0,82 0,33-1,68
Cerebrovascular disease (330-334) .... 9 4,96 1,81 0,83-3,44
Ischemic heart disease (420) .... 23 25,88 0,89 0,56-1,33
Respiratory disease (470-527) 3,14 0,64 0,08-2,30
Accidents (E800-E985) .... 11 14,07 0,78 0,39-1,40
All other causes (295,340,434,443,450,451,541,569,602,795) .... 10 19,89 0,50 0,24-0,92*
* SMR statistically significant at the 5% level (p<0,05), two-tailed.
** SMR statistically significant at the 1% level (p<0,01), two-tailed.