Læknablaðið - 15.04.1985, Side 56
112
LÆKNABLAÐIÐ
inum. Náðu þeir 21% launahækkun, nefnd
vinnur að styttingu vinnutíma. En helsti
ávinningur samninganna var mun sterkari
samningsaðstaða í næstu lotu. Svíar byrjuðu
í vor að undirbúa samninga og hugsanlegt
verkfall 1986 og Danir hafa eytt miklum tíma
og peningum í að kynna kjör sín m.a. með
blaðagreinum og auglýsingum sem hefur
gefið góða raun.
EBE hefur í hyggju að birta tilmæli um
reglur varðandi verkföll lækna innan banda-
lagsins og siðfræðilegan grundvöll þeirra, og
var óskað álits PWG á þeim siðfræðilegu
skilyrðum sem verkföllum lækna eru sett.
Þetta olli talsverðum umræðum þar sem mörg
lönd Mið- og S-Evrópu álíta verkföll lækna
nánast óhugsandi, en flest lönd N-Evrópu
telja þau réttlætanlega aðferð í kjarabaráttu.
Eftirfarandi var samþykkt: »Doctors have the
right to strike, which is generally recognized in
all European Countries. However this does
not exempt them from their ethical responsi-
bilities as laid down in the relevant national
and international ethical codes to which they
have subscribed and by which they are bound.
« Því miður varð að segja »generally recogni-
zed« þar sem læknar í tveimur löndum
Evrópu hafa ekki verkfallsrétt, þ.e. íslandi og
Portúgal!
Uppbygging sérnáms og mat á því taka
drjúgan tíma á þessum fundum. Á fundinum
í Oporto var dreift yfirliti um uppbygginguna
í aðildarlöndunum, en hún er mjög mismun-
andi.
Um samskipti íslands við einstök lönd er
það að segja, að ört vaxandi atvinnuleysi í
Þýskalandi hefur hindrað frekari umræður
um pláss fyrir íslendinga til sérnáms þar. Við
höfum nú rétt til að stunda sérnám í Hollandi,
en getum ekki fengið sérfræðileyfi þar í landi
enn. Hollenska sérfræðingafélagið veitir leyf-
ið, en rætt hefur verið við forseta læknadeild-
ar H. í. um hugsanlegar viðræður hans og
fulltrúa hollenska sérfræðingafélagsins og
tók hann því nokkuð vel. Hafi einhver áhuga
á að sækja um í Hollandi, getur hann skrifað
til þeirra staða sem hann hefur áhuga á, eða
haft samband við Joseph DeMan formann
hollenskra unglækna, sem er reiðubúinn að
liðsinna og veita upplýsingar. Rætt hefur
verið fulltrúa frá Sviss um sérnám þar í landi
fyrir íslendinga, en þeir telja samkomulag líkt
og gert hefur verið við Holland óhugsandi.
Þeir eru reiðubúnir að liðsinna hafi einhver
sérstakan áhuga.
Það er mikilvægt að FUL haldi áfram að
efla tengsl sín við önnur lönd og vekja skilning
á sérstöðu okkar, því æ erfiðara virðist vera
að fágóð pláss til sérnáms. Safn heimilisfanga
og umsóknareyðblaða gæti einnig sparað
mörgum unglæknum fyrirhöfn. MO