Læknablaðið - 15.12.1985, Blaðsíða 52
366
LÆKNABLAÐIÐ
commended method foor the determination of gam-
maglutamyltransferase in blood. Scand J Clin Lab
Invest 1976; 36: 119-25.
Anonymous. Epidemiology for primary healthcare. Int J
Epidemiol 1976; 5: 224-5.
BÆKUR OG ÖNNUR RIT
Osler AG. Complement: mechanisms and functions.
Englewood Cliffs: Prentice-Hall 1976.
Holm PG. Social consequences of chronic disease (Disp.)
Odense: Universitetsforlaget, 1981. (Doktorsritgerð:
Disp., Diss., Thesis).
Jensen AV. The prevalence of chronic bronchitis. Int J
Lung Dis 1981; 14/Suppl. 4: 1-78.
American Medical Association Department of Drugs.
AMA drug evaluations. 3rd ed. Littleton: Publishing
Sciences Group, 1977.
Rhodes AJ, Van Rooyen CE, comps. Textbook of
virology: For students and practitioners of medicine
and the other heatlh sciences. 5th ed. Baltimore:
Williams & Wilkins, 1968.
Weinstein L, Schwartz MN. Pathogenic properties of
invading microorganisms. In: Sodeman WA Jr, Sode-
man WAS, eds. Pathologic physiology: mechanisms of
disease. Philadelphia: WB Saunders, 1974: 457-72.
National Center for Health Statistics. Acute conditions:
Insidence and associated disability. United States July
1968-June 1969. Rockville. Md: National Center for
Health Statistics, 1972. (Vital and health statistics.
Series 10: Data from the National Health Survey, no.
69) (DHEW publication no. (HSM) 72-1036).
AÐRAR GREINAR
Shaffer RA. Advances in chemistry are starting to unlock
mysteries of the brain: Discoveries could help cure
alcoholism and insomnia, explain mental illness. How
the messengers work. Wall Street Journal 1977 Aug
12:1 (col 1), 10 (col 1). (Dagblöð).
Roueché B. Annals of medicine: The Santa Claus culture.
The New Yorker 1971 Sept 4: 66-81. (Tímarit).
Ef höfundur hefir ekki undir höndum upphaf-
Iegu greinina (bókina) og hefir fundið tilvitn-
unina í öðru verki ber að geta þess:
DÆMI:
1. Gjone E. Skriftlig presentasjon i vitenskabelige
arbejder. In: Westin S. Forskning i almenpraksis.
Oslo: Universitetsforlaget 1983. Cited in Fugelli P
(3).
2) Fugliniti VA. On writing medical articles. Am J Dis
Child 1983; 137: 620-1. Quoted in Fugelli P (3).
3) Fugelli P. Du kan skrive dit fag. Tidsskr Nor
Lægeforen 1984; 104: 1343-6.
MEÐFERÐ OG MAT Á EFNI
Ritstjórn tekur aðsent efni fyrir á næsta fundi eftir að
það berst.
Sé efnisvali, efnismeðferð, töflum/myndum, málfari
eða stíl ábótavant, verður efnið endursent með athuga-
semdum og leiðbeiningum, þar á meðal um málfar.
Þær greinar, sem sérfræðiviðurkenning hérlendis
byggist á, verða sendar í dóm sérfræðinga i viðkomandi
grein og unsögn þeirra og leiðbeiningar sendar höf-
undum, sem ekki fá að vita, hver dómari er og dómarar
eru bundnir þagnarskyldu. Höfundum er skylt að svara
gagnrýni, sem fram kann að koma.
Þegar við á, verða aðrar greinar, en sérfræðiritgerðir,
einnig sendar í dóm á þann hátt sem lýst var.
Ritstjórn er eftir sem áður endanlegur úrskurðaraðili
um birtingarhæfni greinar.
PRÓFARKALESTUR
Ritstjórn sér um, að prófarkir séu lesnar og efni skipað í
síður. Þegar talin er þörf fá höfundar senda próförk og
upphaflegt handrit og skulu þeir lesa próförk og leiðrétta
og nota til þess prófarkatákn þau, sem eru í íslenzkum
staðli ÍST 3, sem fylgir leiðbeiningum þessum og birt eru
með góðfúslegu leyfi Iðnþróunarstofnunar íslands. Fyr-
irmæli til prentsmiðju sem ekki verða gefin með táknum
o.þ.h. skal rita á venjulegu máli. Þessi fyrirmæli skal
aðgreina frá því, sem setja skal, t.d. með því að draga um
þau hring. Höfundar skulu bera nákvæmlega saman
handrit og próförk og skulu þeir ganga úr skugga um, að
efnið sé rétt upp, að villur hafi verið leiðréttar og að nýjar
hafi ekki slæðst inn:
Leiðréttingar skulu greinilega gerðar, svo að auðskilið sé,
til hvers er ætlast. Þar sem villa er í dálki, skal setja
staðsetningartákn. Táknin í hverjum dálki skal endur-
taka að jafnaði á sama jaðri ásamt athafnartákni eða
öðrum fyrirmælum.
Ef fleiri en ein mismunandi villa er í sömu línu, skulu
staðsetningartákn vera hvert með sínu móti. Ef leiðrétta
skal sömu villu á fleiri en einum stað í sömu línu, má nota
eitt og sama staðsetningartákn. Táknið skal tilgreina
jafnmörgum sinnum út á jaðarinn og í Iínunni, ásamt
fyrirmælum um það, sem gera skal. Ef margar villur eru
í sömu línu, sama orði eða sömu tölu, má fella alla línuna,
orðið eða töluna niður og skrifa aftur.
Óleyfilegt er að gera efnisbreytingar í
próförk.
Síðupróförk og handriti skal skila innan þess
tíma, sem ritstjórn ákveður, ella eiga höf-
undar á hættu, að greipar verði færðar aftur
fyrir annað efni og útkoma þeirra tefjist.
Reglur þær sem settar eru um frágang á
handriti, töflum, myndum, efniságripi og
heimildum, hafa þann tilgang að spara höf-
undum tíma og koma í veg fyrir óþarfa endur-
rit og tafir.
Prófarkartákn, samkvæmt íslenzkum staðli,
ÍST 3, eru á næstu síðu.