Læknablaðið - 15.04.1988, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ
139
Tatla I. Samanburður á þátttöku (a) ípóstkönnunum 1974 og 1984 við símakönnun 1985 og samanburður á innra
brottfalli (b), þ.e. fjölda svara sem vantar hjá þátttakendum við einstökum spurningum um neyslu og einkenni sem
benda til misnotkunar.
Póstkönnun Simakönnun
1974 1984 1985
20-49 20-59 18 og eldri
Aldur Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi °7o
a. Þátttaka Úrtak ... 3.016 4.320 1.000
Svör alls ... 2.417 80,1 2.593 60,0 . 770 77,0
Neyta áfengis ... 1.977 81,8 2.253 86,9 628 81,6
b. Innra brottfall Upplýsingar vantar um tíðni áfengisneyslu.... 30 1,5 193 9,0 6 1,0
- venjulegt magn ... 126 6,4 216 9,6 57 9,1
- eigið vandamál 27 1,4 68 3,0 4 0,6
- stjórnleysi 35 1,8 74 3,3 3 0,5
- afréttari ... 133 6,7 159 7,1 3 0,5
- leitað aðstoðar vegna neyslu ... - 52 2,3 2 0,3
samkvæmt rannsókninni, sem verið er að fjalla
um. Ef hlutfallið í einhverjum hópnum væri
þekkt fyrirfram væru vikmörkin minni en fram
kemur með þessari aðferð.
EFNIVIÐUR
Póstkönnunum 1974 og 1984 er áður lýst (5, 9).
Úrtakið 1974 var valið með leyfi Hagstofu íslands
og aðstoð Reiknistofu Háskólans og
viðbótarúrtakið 1984 á sama hátt, en áður var
fengið leyfi tölvunefndar sem sett hafði verið á
stofn með lögum frá 1981 (13). í úrtakinu 1984
voru 4320 manns á aldrinum 20-59 ára, en svör
fengust frá 2593. Látnir voru 2%, en 5% voru
erlendis eða með óþekkt heimilisfang og 13%
neituðu að svara. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
tókst ekki að fá svör eða skýringar frá 20%.
Úrtakið í spurningavagni Hagvangs var þúsund
manns, 18 ára og eldri, sem teknir voru
samkvæmt tilviljun úr þjóðskrá. Aðeins 10
spurningar um áfengisneyslu voru í
spurningavagninum. Spurningarnar voru samdar
af höfundi þessarar greinar, en lagðar fyrir fólk í
úrtakinu af spyrlum Hagvangs með símtali.
í úrtaki Hagvangs reyndust 5 látnir, 14 sjúkir eða
vangefnir og 57 fjarverandi. Svör fengust frá 770
þeirra, sem spurningunum var beint til, og
svarprósentan af heildarúrtakinu þannig 77%,
þar af 637 á aldrinum 20-59 ára. Þessi hópur er
notaður við samanburð á niðurstöðum
kannananna.
NIÐURSTÖÐUR
Svarhlutfallið í könnuninni 1984 var mun lægra
Tafla II. Áfengisneysla 20-59 árafólks i hundraðs-
hlutum árin 1984 og 1985.
Póstkönnun Símakönnun
1984 1985
Neyta áfengis ... 86,9 84,6
Neyta ekki áfengis ... 13,1 15,4
Samtals 100% 100%
Fjöldi svara samtals 2.593 637
X2 = 2,253 df = 1 0,l<p<0,2
en 1974. Jafnframt voru fleiri svör ófullkomin,
þ.e. ýmsir svarenda svöruðu ekki öllum
spurningunum sem lagðar voru fyrir. I
rannsókninni 1974 var svarhlutfall þeirra, sem
neyta áfengis, við einstökum spurningum um
áfengisneysluna eða vandamál, sem af henni
leiðir, 93,3% til 98,6%, en 1984 var þetta
svarhlutfall 90,4% til 97,7%. Innra brottfall
hafði þannig aukist vegna þess að
spurningalistarnir, sem sendir voru til baka voru
ekki nægjanlega ítarlega útfylltir. í símakönnun
Hagvangs var innra brottfallið hins vegar mjög
lítið, þ.e.a.s. 1% eða minna við allar spurningar
nema um magn, sem neytt er venjulega. Þar var
innra brottfallið svipað og í póstkönnuninni, um
9% (sjá töflu I). í póstkönnununum vantar
áberandi flest svör við spurningum þar sem reynir
á minni til að telja fram magn og tíðni. Innra
brottfallið var meira 1984, sérstaklega hvað
varðar tíðni neyslu.
í töflu II er borinn saman fjöldi áfengisneytenda