Læknablaðið - 15.04.1988, Blaðsíða 38
148
LÆKNABLAÐIÐ
há. Á mynd 1 má sjá tengslin á milli heildarneyslu
áfengis og ölvunartíðni í einstökum löndum.
Myndin sýnir að samband er á milli heildarneyslu
og ölvunartíðni innan hvers lands. Með meiri
heildarneyslu fjölgar ölvunarskiptunum. En
myndin sýnir líka mun á milli landanna. Sama
ársneysla leiðir til meiri ölvunardrykkju á íslandi
en i Finnlandi og sama heildarneysla til meiri
ölvunardrykkju í Finnlandi en í Noregi og meiri
ölvunardrykkju í Noregi en í Svíþjóð.
Það er ekki eingöngu heildarneyslan sem hefur
áhrif á ölvunarneysluna heldur hafa
drykkjuvenjurnar rætur í menningu landanna.
Sennilegt er að áfengisneysla íslendinga
endurspegli hefðbundnar norrænar
drykkjuvenjur að drekka sjaldan en mikið í einu.
Svíar hafa fjarlægst norrænu drykkjuvenjurnar
mest og þeirra drykkjuvenjum virðist svipa meira
til neysluvenjanna á meginlandinu þar sem
áfengisneysla er tíð en minna er drukkið hverju
sinni og sjaldan í ölvunarskyni.
Ölvun hefur þótt hæfa konum síður en körlum
enda er ölvun mun algengari meðal karla en
kvenna. Aldur hefur líka áhrif á ölvunartíðnina
sem er hæst meðal þeirra yngstu og fer minnkandi
með hækkandi aldri.
Viðhorf til áfengis. Á spurningalistanum voru
nokkrar spurningar til að kanna hvort viðhorf til
áfengis væru ólík meðal þjóðanna fjögurra og
milli einstakra þjóðfélagshópa. Fólk var beðið að
segja hvort því fyndist viðeigandi að karl á
þrítugsaldri, sem ekki hefði nein sérstök
áfengisvandamál drykki áfengi við ákveðnar
aðstæður.
Síðan var fólk spurt hvað þvi fyndist um það að
sami maður drykki svo mikið við þessar sömu
aðstæður að hann fyndi til áfengisáhrifa.
Tafla VI sýnir hversu hátt hlutfall svarenda í
hverju landi taldi að slíkt ætti vel eða illa við.
Á töflunni má sjá að viðhorfin eru lik í öllum
löndunum. Afar fáir töldu viðeigandi að drekka
áfengi með mat á virkum degi heima hjá sér. En
þeir sem töldu það viðeigandi settu það skilyrði
að þá væri áfengið drukkið án þess að maðurinn
drykki sig ölvaðan. Það var hins vegar talið
viðeigandi að drekka áfengi, þótt það leiddi til
áfengisáhrifa, ef það var gert að kvöldi til í
sumarleyfi erlendis, í vinahópi á laugardagskvöldi
eða á gamlárskvöld. Af svörunum má sjá þrjár
meginreglur sem gilda um áfengisneyslu á
Norðurlöndum. í fyrsta lagi að halda vinnu og
áfengi aðskildu. í öðru lagi að áfengi er ekki talið
til daglegra drykkjarfanga. í þriðja lagi að bilið á
milli hófdrykkju og ölvunar er stutt ef
áfengisneysla er á annað borð talin viðeigandi.
Nokkur munur er eigi að síður á milli viðhorfa
eftir löndum. Svíar voru hlynntastir hóflegri
áfengisneyslu við allar aðstæðurnar sem taldar
voru upp. Hins vegar töldu íslendingar oftar en
aðrir að ölvun ætti ekki illa við í þeim þremur
aðstæðum þar sem áfengisneyslan fór fram að
kvöldi til. Þetta styður það sem áður hefur komið
Tafla VI. Hlutfall svarenda sem telja að það eigi vel eða fremur vel við að drekka eina eða tvcer flöskur af áfengum
bjór eða að drekka svo mikið að viðkomandi finni áfengisáhrif.
Aö drckka eina eöa tvær flöskur af áfengum bjór Aö drekka svo mikið aö viðkomandi finni áfengisáhrif
F 1 N s F f N s
- með mat á virkum degi heima 4 3 í 12 0 1 0 1
- með mat í vinnunni 41 21 36 59 7 3 4 7
- í vinahópi á laugardagskvöldi 73 84 81 86 59 75 57 60
- að kvöldi til í sumarfríi erlendis 80 83 84 87 64 73 59 57
- á gamlárskvöld 79 83 84 84 72 78 67 66
Tafla VII. Mat svarenda á þvi hversu gamallpiltur og hversu gömul stúlka eigi að vera til að drekka áfengan bjór,
létt vín með fjölskyldu og vinum. Miðgildi.
Piltar Stúlkur
F í N S F í N S
Áfengan bjór með fjöskyldu....................... 17,0 18,0 18,0 16,2 17,1 18,0 18,0 16,3
Áfengan bjór með vinum........................... 18,5 18,4 18,6 18,1 18,5 18,5 18,6 18,2
Létt vín með fjölskyldu.......................... 17,5 18,4 18,1 16,7 17,8 18,4 18,2 16,7
Létt vín með vinum .............................. 18,5 18,7 18,6 18,3 18,6 18,7 18,7 18,3