Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1988, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 15.04.1988, Blaðsíða 47
LÆKNABLAÐIÐ 157 umferðarslysa, og má gera ráð fyrir að betri umferðarmenning, betri bílar og betri vegir eigi sinn þátt í því. Rétt er að benda á að mikið misræmi er á milli talna slysadeildar Borgarspítalans og skráningar lögreglunnar, þannig að lögreglan skráir aðeins um 30% slíkra slysa (4). Þetta misræmi kann að einhverju leyti að stafa af mismunandi skráningarreglum, en eins og getið var um hér að framan urðu breytingar á skráningu lögreglunnar á umferðarslysum með meiðslum árið 1975, sem leiddi til mikillar fækkunar á skráðum slysum af þessu tagi. Ölvunarakstur hefur hins vegar haldist i hendur við heildarneyslu áfengis, en í minna mæli við umferðarslys. Ölvunarakstur tengist neyslu 1.5 1.0 0.5 0.0 ----,---,--,---,---.-— _______,___,___.___, , , I 66 67 68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 Years Road accidents Total alc. cons. Fig. 1. Alcohol Consumption in liters abs. alc. pr. inhabitant and road accidents pr. 100 inhabitants. 1.5 1.0 0.5 0.0 ----,----------,-♦.—,---------,------,------,-------, 66 67 68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 Years ♦• Road accidents > Cons. of spirits Fig. 2. Consumption of spirits in liters abs. alc. pr. inhabitant and road accidents pr. 100 inhabitants. 100 50 0 --------------,-----------,----,---,---,---,-,----, 68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 Years ♦• Road accidents v- Drunken driving Fig. 3. Suspects for drunken driving pr. 20,000 inhabitants and road accidents pr. 10,000 inhabitants. Tafla III. Fylgni (Pearson’s R). Umferðarslys ölvunarakstur Fjöldi bíla ... 0.52 0.89 Heildarneysla áfengis ... ... 0.76 0.96 Neysla sterks áfengis ... ... 0.89 0.75 Neysla létts áfengis ... 0.29 0.72 ölvunarakstur ... 0.79 sterkra og veikra vína nokkuð jafnt, og má gera ráð fyrir að útbreiddari neysla létts áfengis hin síðari ár hafi orðið til þess að fleiri aka undir áhrifum áfengis. Þess má geta að skráður ölvunarakstur er hlutfallslega mun tíðari á íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Það kann að einhverju leyti að stafa af betra eftirliti hér, en þó kemur fram i samnorrænni könnun á áfengisneysluvenjum (5), sem Hildigunnur Ólafsdóttir stóð að fyrir íslands hönd, að hlutfallslega fleiri íslendingar viðurkenna að hafa ekið undir áhrifum áfengis heldur en aðrir Norðurlandabúar. í þriðja lagi má sjá skýr tengsl á milli umferðarslysa og heildarneyslu áfengis. Þessi tengsl eru þó einkum bundin neyslu sterks áfengis. Það kemur ekki á óvart, ef gert er ráð fyrir að meiri ölvun fylgi neyslu sterks áfengis. Áhrifa léttvínsneyslu gætir hins vegar sáralítið í þróun umferðaslysa, enda leiðir hún sjaldnast til verulegrar ölvunar og er þvi síður líkleg til að valda slysum, en verður þó, eins og áður segir, til þess að fleiri aka undir áhrifum. Þótt íslendingar séu með hvað lægsta heildarneyslu áfengis á Vesturlöndum, hefur könnun á áfengisneysluvenjum íslendinga bent til (6), að ölvunartíðni sé hér ekki minni en annars staðar vegna þeirra drykkjusiða, sem hér hafa lengi verið við lýði, þ.e. yfirgnæfandi neysla sterks áfengis’í því magni sem leiðir til ölvunar þegar drukkið er. Þetta kann að valda þvi að hlutfall áfengistengdra slysa hér á landi sé ekki minna en annars staðar og hafi staðið í vegi fyrir fækkun umferðarslysa, sem annars hefði orðið. Ef marka má þær niðurstöður, að umferðarslys tengist mest neyslu sterks áfengis og ef áframhald verður á þeirri þróun í drykkjuvenjum sem sjá má merki um á allra síðustu árum, þannig að hlutfall léttra áfengistegunda aukist á kostnað sterkra drykkja, kann það að koma fram í fækkun áfengistengdra umferðarslysa, einkum hinna alvarlegri. Skilyrðið fyrir því væri þó, að heildarneysla áfengis ykist ekki frá því sem nú er.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.