Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1988, Blaðsíða 41

Læknablaðið - 15.04.1988, Blaðsíða 41
LÆKNABLAÐIÐ 151 móti 6-7% í hinum löndunum. Árlega eru um 1% þjóðarinnar kærð fyrir meintan ölvunarakstur, sem eru þrisvar til fjórum sinnum fleiri en annars staðar á Norðurlöndum (5, 6). Athyglisvert er, að í næstum helmingi blóðsýna frá árunum 1973-1982, sem tekin voru til ákvörðunar á áfengismagni í blóði, er blóðþéttni áfengis meiri en l,5%o (7). íslendingar virðast oftar aka bíl undir áhrifum en nágrannaþjóðirnar, þrátt fyrir það að eftirlit lögreglu er ekki minna hér á landi en annars staðar. Ekki er ljóst hvað veldur þessu en ein skýringin kann að vera sú að landið er strjálbýlt og samgöngur strjálar. Það eru þó hlutfallslega fleiri teknir af lögreglu grunaðir um ölvunarakstur í Reykjavík en utan hennar. Þrír mælikvarðar voru búnir til á grundvelli spurninganna um óæskileg áhrif áfengisneyslu. Sá fyrsti mælir hvernig fólki tekst að hafa taumhald á áfengisneyslu sinni og byggist á atriðunum sem talin eru upp í töflu VIII. Annar felur í sér atriðin sem tengjast timburmönnum og eru tilgreind í töflu IX. Sá þriðji er búinn til út frá spurningunum i töflu X um breytt atferli. Á öllum þessum mælikvörðum fær ísland flest stig, Finnland næstflest, þá Noregur og Svíþjóð þau lægstu. Ef óæskileg áhrif neyslunnar eins og svarendur greina frá þeim eru borin saman við heildarneyslu er gott samræmi á milli þessara tveggja þátta í Finnlandi, þar er heildarneysla áfengis mest í samanburði við hin löndin. En þetta á ekki við um ísland. Þar er heildarneysla áfengis lægst en afleiðingar nar virðast meiri en í Finnlandi. í Svíþjóð er heildarneysla áfengis meiri en í Noregi og því hefði mátt búast við að mælitölurnar sýndu verri afleiðingar í Svíþjóð en í Noregi. En þetta var alveg öfugt. Þegar athugað var hvort áfengisneysla og afleiðingar væru háð kyni eða aldri kom í ljós að svo var ekki. Það gilti bæði um karla og konur og alla aldurshópa þegar löndin voru borin saman að sama árlegt áfengismagn veldur mestum vanda á íslandi, þá í Finnlandi svo í Noregi og Svíþjóð. Gagn áfengisneyslunnar. í kaflanum hér á undan mátti lesa að margir höfðu orðið fyrir skaðlegum afleiðingum áfengisneyslu. Þrátt fyrir þetta halda flestir áfram að neyta þess. Ástæðan fyrir þessu er ótvírætt sú, að áfengisneyslan er ekki eingöngu talin skaðleg heldur er fólk að sækjast eftir vissum hliðum hennar sem það telur vega upp hinar skaðlegu afleiðingar. Því var spurt um það hvort fólk hefði haft gagn af áfengisneyslu. í ljós kom að bæði karlar og konur töldu sig hafa gagn af neyslunni. Þetta átti einkum við í umgengni við aðra. Helmingur til þrír fjórðu hlutar áfengisneytenda í öllum löndunum töldu að áfengi hefði hjálpað þeim til að láta tilfinningar sínar betur í ljós og verða skemmtilegri og komast betur að orði í viðræðum. Nokkru færri, en hlutfallslega margir, sögðu að áfengisneyslan hefði hjálpað þeim til að kynnast öðru fólki betur og dregið úr kvíða fyrir því að vera meðal fólks og komast í betra samband við einhvern af gagnstæðu kyni. Fjórði til fimmti hluti neytendanna taldi að áfengi hefði fengið þá til að líta bjartari augum á tilveruna. Hins vegar töldu fáir að áfengi væri til þess fallið að leysa vandamál, hvorki í tengslum við sína nánustu eða atvinnu. Tiltölulega fleiri karlar en konur töldu sig hafa haft gagn af áfengi. Að hluta til er skýringin sú, að karlar drekka miklu meira áfengi en konur. Það kom einmitt í ljós, að þeir sem drukku mest töldu sig hafa mest gagn af að drekka. En þegar karlar og konur sem drekka jafn mikið voru borin saman með tilliti til hinna jákvæðu afleiðinga áfengisneyslu var enginn munur. UMRÆÐA Norræna áfengiskönnunin hefur nokkra sérstöðu þar sem það mun vera einstakt í samanburðarrannsóknum á áfengisneyslu að nákvæmlega sami spurningalistinn sé lagður fyrir fjórar mismunandi þjóðir samtímis. Slík samvinna um rannsóknir er óvenjuleg, þar sem flestar samanburðarrannsóknir byggja á mismunandi gögnum og samanburðurinn er oft gerður eftir að gagnasöfnun er lokið. Þrátt fyrir það að norrænu þjóðirnar fjórar sem tóku þátt í rannsókninni hafi hliðstæða menningu voru mörg vandamál, bæði við framkvæmd rannsóknarinnar og fræðilegs eðlis, sem þurfti að leysa, áður en hún gat orðið að veruleika. Hefðir fyrir faraldsfræðilegum rannsóknum á áfengisneyslu eru ólíkar í löndunum. í öllum löndunum var áhugi á því að spurningalistinn væri þannig úr garði gerður að það mætti nota hann til að gera samanburð við fyrri rannsóknir í hverju landi. Ólík viðhorf til áfengis og áfengismálastefnu í löndunum sköpuðu líka vandamál. Öll þessi atriði þurfti því að samræma. Þá eru ákveðin vandamál samfara því að leggja spurningalista fyrir á fjórum tungumálum. Þó að þeir eigi að vera þýddir og endurþýddir þannig að orðalag spurninganna skiljist á sama hátt í öllum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.