Læknablaðið - 15.04.1988, Qupperneq 55
LÆKNABLAÐIÐ 1988; 74: 165-7
165
Hildigunnur Ólafsdóttir, Tómas Helgason
INNLANGIR Á MEÐFERÐARSTOFNANIR VEGNA
MISNOTKUNAR ÁFENGIS OG ANNARRA VÍMUEFNA
1975-1985
ÚTDRÁTTUR
Breytingar, sem komið hafa í kjölfar aukins
framboðs á meðferð fyrir áfengismisnotendur á
11 ára tímabili eru rannsakaðar. Innlagnir hafa
fjórfaldast og fyrstu komur hafa þrefaldast. f
árslok árið 1985 höfðu 3.6% fullorðinna
íslendinga verið lagðir inn á stofnun a. m. k. einu
sinni á ævinni vegna misnotkunar áfengis eða
annarra vímuefna. Konum, yngra fólki og þeim
sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins hefur
fjölgað hlutfallslega í hópi þeirra, sem hafa leitað
sér meðferðar vegna misnotkunar áfengis eða
annarra vímuefna á rannsóknartímabiliunu.
INNGANGUR
Á vegum geðdeildar Landspítalans hafa á
undanförnum árum verið unnar
langtímarannsóknir á nýgengi drykkjusýki og
áfengismisnotkunar og auknum innlögnum á
sjúkrahús vegna áfengis og annarrar
vímuefnamisnotkunar. Árið 1983 voru birtar
tvær greinar í Læknablaðinu um þessar
rannsóknir (1, 2). í þeim var fjallað annars vegar
um nýgengið á tímabilinu 1950 til 1981 og hins
vegar um aukningu innlagna frá 1974 til 1981. Sú
aukning sem þá hafði orðið á innlögnum hefur
ekki stöðvast, heldur hefur innlögnum fjölgað
enda meðferðarrými aukist enn frekar. Hér verða
stuttlega kynntar helstu niðurstöður á rannsókn á
innlögnum vegna áfengis- og annarrar
vímuefnamisnotkunar frá 1975 til 1985.
AÐFERÐ OG EFNIVIÐUR
Safnað hefur verið upplýsingum um alla, sem
hafa verið innlagðir vegna áfengis- eða annarrar
vímuefnamisnotkunar á tímabilinu frá 1974 til
1985. Rannsóknin nær til eftirtalinna stofnana:
Geðdeildar Landspítalans, Gunnarsholts,
Víðiness, og stofnana SÁÁ: Vogs, Sogns og
Frá Geðdeild Landspítalans. Barst 16/09/1987. Samþykkt
04/01/1988.
Staðarfells. Þá var einnig safnað upplýsingum um
þá sem fóru í meðferð til Freeport, New York og
Hazelden, Minnesota frá 1974 til 1981. Miðað er
við árið 1974 sem grunnár, og allir sem eru
innlagðir það ár eða síðar taldir vera að koma í
sina fyrstu meðferð, þó að einhverjir þeirra hafi
komið í meðferð fyrir þann tima. Frá 1974 til
1985 hafa innlagnir verið um 25000, og alls hafa
um 6400 manns verið lagðir inn á
meðferðarstofnun vegna áfengis- eða annarrar
vímuefnamisnotkunar. Þetta samsvarar því, að
hver maður hafi að meðaltali verið lagður inn
fjórum sinnum á tólf árum.
NIÐURSTÖÐUR
Yfirlit yfir innlagnir má sjá á mynd 1. Með auknu
framboði á meðferð hafa innlagnir vegna áfengis-
og annarrar vímuefnamisnotkunar fjórfaldast frá
1974 til 1985. Fyrstu innlagnir hafa meira en
þrefaldast frá 1975 til 1985. Hlutfall fyrstu
innlagna fer lækkandi. Aðeins einn af fjórum sem
leggjast inn árið 1985 er að koma í fyrsta sinn í
meðferð. Stöðugt fleiri innlagnir eru afleiðing af
því að sama fókið fer aftur og aftur í meðferð.
Fjöldi midad vid 100.000
ibúa 15 ára og eldri
Mynd 1. Innlagnir vegna misnolkunar áfengis- og
annarra vimuefna 1974-1985.