Læknablaðið - 15.11.1989, Blaðsíða 26
350
LÆKNABLAÐIÐ
Búast má við að geðlæknar ávísi hlutfallslega
meira af sefandi lyfjum og geðdeyfðarlyfjum
en aðrir læknar sem ávísi meira af róandi
lyfjum og svefnlyfjum. Einnig má búast við
að geðlæknar gefi stærri skammta, sérstaklega
af fyrmefndu lyfjunum. Loks má ætla að
þeir gefi frekar lyfseðla beint til fólks en
símleiðis, m.a. vegna nauðsynlegs eftirlits
með sjúklingum og viðtalsmeðferðar sem veitt
er samtímis lyfjameðferð. Aðrir, sérstaklega
heimilis- og heilsugæslulæknar, eru líklegri til
að símsenda lyf, að nokkru til að spara tíma,
en að nokkru vegna þess að þeir þekkja oft
sjúklinga sína vel og telja sig síður þurfa að
sjá þá til að ákveða lyfjagjöf. í fyrri grein (16)
er sýnt að hlutfallslegur fjöldi fólks sem fær
ávísanir á geðlyf eykst með hækkandi aldri.
Hér verður athugað hvort ávísanafjöldi og
lyfjamagn sem ávísað er breytist eftir aldri
lækna.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐ
Til þess að athuga framangreindar tilgátur
voru skráðir allir lyfseðlar með geðlyfjum
í einn mánuð sem voru greiddir af
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur. Nánari lýsing á
efnivið og skráningaraðferð er þegar birt (16).
Læknamir em flokkaðir í sex hópa, eins og
sést á töflunum. Heimilislæknum er skipt í tvo
hópa, þá sem hafa sérfræðiviðurkenningu í
greininni og aðra. Þetta er gert til að athuga
hvort ávísanavenjur að því er varðar geðlyf
séu öðmvísi hjá þeim sem hafa sérmenntun.
Þeir hafa flestir meiri reynslu í geðlækningum
en aðrir heimilislæknar og sérgreinin leggur
áherzlu á svipaðar vinnuaðferðir og geðlæknar
beita. Sérfræðingar í kvenlækningum em
flokkaðir með skurðlæknum. í hópnum
»Aðrir« em allir aðrir sérfræðingar, auk
aðstoðarlækna á sjúkrahúsum. Tölfræðilegur
samanburður er gerður með kí-kvaðrat
prófun eða dreifigreiningu (ANOVA) (17).
Dreifigreiningin á þó ekki vel við þegar
bomar eru saman aldursdreifingar hér, en er
látin nægja til að meta varlega hugsanlegan
mun.
NIÐURSTÖÐUR
í þessum eina mánuði fengu 4818
einstaklingar 6371 lyfseðil, sem þeir
framvísuðu í lyfjabúð. Þessa lyfseðla gáfu
370 læknar út. Tæp 8% voru geðlæknar sem
gáfu út 13,6% lyfseðlanna handa 12,3%
sjúklinganna, rúm 14% læknanna voru
heimilislæknar, sem gáfu 62,5% sjúklinganna
57,7% lyfseðlanna. Aðrir læknar, sem voru
tæp 78% alls læknahópsins, ávísuðu rúmum
fjórðungi sjúklinganna geðlyfjum. Nokkuð var
um að sjúklingar fengju lyf hjá fleiri læknum.
Þannig fengu 341 sjúklingur lyf hjá læknum
úr meira en einum hópi auk 97 sem höfðu
tengsl við fleiri en einn lækni innan sama
hóps. Samtals hafa því 9,1% sjúklinganna
fengið lyf hjá fleiri en einum lækni.
í ljós kemur, að 22 sérfræðingar í
heimilislækningum gáfu aðeins 682
sjúklingum geðlyf, en 31 heimilislæknar sem
ekki voru sérfræðingur, gáfu rúmlega þrisvar
sinnum fleiri sjúklingum geðlyf. Af þessu
verður þó ekki ráðið, að þeir síðamefndu ávísi
hlutfallslega fleira fólki geðlyfjum, því að
ekki hefur verið athugað hve marga sjúklinga
hvor hópur sá í þessum mánuði. Af töflu I er
greinilegt, að geðlæknar skrifa að meðaltali
fleiri geðlyf á hvem lyfseðil en nokkrir aðrir
læknahópar.
Ávísanavenjur geðlækna að því er varðar
tegundir lyfja voru allt aðrar en annarra
lækna og einkenndust af því að geðlæknar
ávísuðu hlutfallslega oftar sefandi lyfjum og
geðdeyfðarlyfjum (tafla II). Skipting ávísana
annarra lækna eftir tegundum er mjög svipuð
innbyrðis. Yfir 85% geðlyfjaávísana þeirra var
fyrir róandi lyfjum eða svefnlyfjum.
Um 17% ávísana á geðlyf vom frá
geðlæknum, en 55% frá heimilislæknum,
þar af ekki nema 12,4% frá sérfræðingum
í greininni. Hlutur einstakra læknahópa í
Table I. Number of doctors, patients, and
prescriptions, and number of psychotropic drugs per
prescription by speciality of the prescribing doctor.
Drugs per
Speciality Doctors Patients Prescriptions prescription
Psychiatry....... 29 594 866 1.57
General practice
(speciality)..... 22 682 828 1.20
General practice
(other).......... 31 2,328 2,845 1.20
Internal medicine 53 591 712 1.23
Surgery ............ 35 231 279 1.21
Other ............. 200 733 841 1.21
Total 370 4,818 *) 6,371 1.25
*) The sum of patients seen by different specialists is 5,159, i.e. 341
doctor/patient contacts are with more than one speciality.