Læknablaðið - 15.11.1989, Side 38
360
LÆKNABLAÐIÐ
sjálfræðissvipting hlýtur slík vistun að vera
gerðarþola mikið alvörumál. I fyrmefndri
athugun á Kleppsspítala, á sjúklingum sem
þar voru vistaðir gegn vilja sínum árin 1977
og 1978 (1), kemur fram að flestir 114
sjúklinganna er þar um ræðir voru í upphafi
neikvæðir gagnvart spítalanum og meðferð
þar og höfðu sömuleiðis neikvæða afstöðu til
kröfugerðaraðila. Við brottför höfðu þó flestir
fyrirgefið það ranglæti, sem þeir þóttust beittir
í upphafi og tekið kröfugerðaraðila í sátt.
í þeirri athugun er hér verður skýrt frá er
reynt að kanna nánar viðhorf sjúklinga,
sem voru lagðir inn nauðugir á geðdeild
Landspítalans á tólf mánaða skeiði 1985 til
1986, til innlagnarinnar og hug þeirra til þeirra
aðila er að innlögninni stóðu.
SJÚKLINGAR OG AÐFERÐIR
Á tímabilinu 1. nóvember 1985 til 31.
október 1986 voru 60 einstaklingar
lagðir inn á geðdeild á Islandi án eigin
samþykkis og án þess að hafa áður verið
sviptir sjálfræði með dómi. Var vitneskja
um innlagnimar fengin jafnóðum með
aðstoð dómsmálaráðuneytisins. Á geðdeild
Landspítalans voru innlagðir 50 þessara
sjúklinga, níu á geðdeild Borgarspítalans og
einn á geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri.
Þeir 50 sem lögðust nauðugir a
geðdeild Landspítalans áttu þar alls 60
nauðungarvistanir á 12 mánuðum. Enginn
þeirra var sviptur sjálfræði með dómi
meðan á athuguninni stóð, en við þær
nauðungarvistanir er stóðu 48 klukkustundir
eða skemur var ekki fengist við í þessari
athugun. Innan tveggja vikna frá fyrstu
nauðungarinnlögn sjúklinganna á tímabilinu
voru þeir spurðir fyrirfram ákveðinna
spuminga varðandi innlögnina og meðferð á
sjúkrahúsinu.
Átján vikum eftir innlögn vom þeir aftur
spurðir flestra sömu spuminga á sama hátt.
Rætt var í síma við þá sjúklinga er á þeim
tíma voru ekki lengur á sjúkrahúsinu en
tveir sjúklingar sem ekki höfðu síma voru
heimsóttir. Aðrir en rannsakendur voru ekki
látnir vita um svör sjúklinga.
Af þeim 50 sjúklingum er um ræðir náðist
ekki í einn sem útskrifaðist áður en rætt
hafði verið við hann og er hann ekki
talinn með í þessari athugun. Af þeim 49
sjúklingum er rætt var við höfðu 43 (88%)
legið áður á geðdeild en sex (12%) vom þar
nú í fyrsta sinn. Nítján (39%) höfðu verið
nauðungarvistaðir áður, þar af 11 (22%)
tvisvar eða oftar.
Einn vildi ekki svara spumingum í fyrra
viðtali en tveir í því síðara. Þessir sjúklingar
eru þó taldir með hópnum.
Jafnframt var leitað upplýsinga úr sjúkraskrám
um aðdraganda innlagnar, legutíma og
sjúkdómsgreiningu. Athugunin var gerð með
leyfi tölvunefndar.
NIÐURSTÖÐUR
I töflu I er yfirlit yfir kyn og
sjúkdómsgreiningu þeirra 49 sjúklinga
er athugunin nær til og til samanburðar
allra sjúklinga er lögðust inn á geðdeild
Landspítalans á athugunartímabilinu.
Kynskipting þeirra sem lögðust inn nauðugir
var sú sama og annarra sjúklinga en
meðalaldur þeirra er lægri. Elsti sjúklingurinn
var 65 ára, sá yngsti 17 ára og miðaldur
hópsins var 30 ár. Oftast voru það sjúklingar
með geðrof sem lagðir vom inn nauðugir.
Innlagnartíma þessara sjúklinga má sjá í töflu
II.
Meirihluti sjúklinganna (65%) dvaldi á
sjúkrahúsinu lengur en 15 daga eftir að
nauðungarvistun var heimiluð og þar sem
enginn þeirra var sviptur með dómi voru þeir
þar sjálfviljugir eftir fimmtánda daginn.
Tafla I. Innlagnir á geðdeild Landspítalans 1.11.1985 til
Innlagnir Allar N (%) gegn eigin vilja N (%)
Innlagnir alls 1462 60 (4.1)
Innlagðir einstaklingar* . 962 50 (5.2)
Karlar 572 (59.5) 29 (59.2)
Konur 390 (40.5) 20 (40.8)
Sjúkdómsgreiningar (ICD- •9)
Geörof 219 (22.7) 18 (36.8)
Geðhvörf 148 (15.4) 11 (22.4)
Drykkjusýki 373 (38.8) 11 (22.4)
Annaö 222 (23.1) 9 (18.4)
Greiningar samtals 962 (100.0) 49 (100.0)
* I hóp þeirra sem lagöir voru inngegn vilja sínum, vantar einn sjúkling
sem útskrifaöist áöur en náöist aö tala viö hann.