Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.1989, Side 54

Læknablaðið - 15.11.1989, Side 54
374 LÆKNABLAÐIÐ e) Þau þurfa að vera skýr, ákveðin og þau þarf að vera unnt að staðfesta á vísindalegan hátt. Nær öllum er unnt að lýsa einstakling látinn þar sem lungnastarf og blóðrás hafa stöðvast óafturkræft. Mun meiri styrr stendur um heiladauða eins og áður hefur verið vikið að. Þó munu í öllum löndum Evrópu vera beint og óbeint í gildi venjur eða reglur sem taka til einhvers konar heiladauða. Danmörk sker sig þar að nokkru úr þar sem enn fara fram umræður um þetta mál og nýlega hefur siðanefnd danska ríkisins mælt með því að hjarta- og lungnadauði verði einungis viðurkenndur en heiladauði ekki (4). Þó flestir þekki til skilmerkja dauða skortir nokkuð á að þau hugtök sem liggja til grundvallar þeim skilgreiningum haíi verið rædd til hlítar. Svo vitnað sé til Christopher Pallis (5): »Skilmerki dauða verða á einhvem hátt að tengjast almennu hugtaki um hvað dauði er og þýðir. Þær ákvarðanir sem við tökum og þær rannsóknir sem við gerum þurfa að vera í rökréttu samhengi við þau hugtök og heimspeki sem við skiljum og aðhyllumst. Tæknilegar upplýsingar geta aldrei svarað spumingum er fjalla einfarið um hugtök«. Þeim hugtökum er lúta að heiladauða og helst hafa verið rædd má ef til vill skipta í þrennt (6): 1. Algjör heiladauði (whole brain concept) - þar sem starf heilastofns og heilabarkar hefur stöðvast óafturkræft. 2. Lágheiladauði (lower brain concept) - þar sem starf heilastofns eingöngu hefur stöðvast. Þar má þó benda á að starf heilastofns er skilyrði »æðra« heilastarfs (meðvitundar, skynhrifa (cognition), meðvitundar). 3. Háheiladauði (higher brain concept) - þar sem einungis er krafist stöðvunar hinna »æðri« starfa heila. Slíkir einstaklingar geta yfirleitt andað án aðstoðar og undir þessa skilgreiningu heiladauða falla til dæmis böm er fæðast án heila (anencephalia) og sjúklingar í óafturkræfu dauðadái (vegetative state). 4. Að síðustu má að sjálfsögðu bæta við þeirri afstöðu að viðurkenna alls ekki heiladauða af neinu tagi og halda sig við hjarta- og lungnadauða sem hið eina skilmerki dauða. Samræma má hugtök um algjöran heiladauða og lágheiladauða en gegn þeim standa annars vegar hugtak háheiladauða sem »frjálslyndari« afstaða og hins vegar hugtak hjarta- og lungnadauða sem »íhaldssamari« afstaða. Algjör heiladauði er vissulega klínískt ástand sem er vel skilgreint (sjá síðar) en viðurkenna verður að val þess sem skilgreining dauða endurspeglar að nokkm notkun þess við ákvarðanatöku á gjörgæsludeildum og við líffæraflutninga. Vissulega má færa rök fyrst og fremst siðferðileg og heimspekileg fyrir hjarta- og lungnadauða og jafnvel ekki síður háheiladauða á hinn bóginn þar sem dauði er skilgreindur sem brotthvarf þeirrar starfsemi sem styður meðvitund, skynhrif og hugsun, þ.e. þeirra þátta er gera okkur að mannlegum verum. Er það þó skoðun þess sem þetta ritar að algjör heiladauði sé sú skilgreining sem best er studd ljósum læknisfræðilegum rökum (3, 7) og munu engin dæmi um að skilmerki þau sem hér verður fjallað um að neðan hafi »brugðist«. Framsetning skilmerkja um heiladauða er síður en svo ný af nálinni og bera skilmerki sem kennd eru við Harvard háskóla í Boston frá 1968 þar líklega hæst (8). Leiðbeiningar þessar hafa verið bættar í ýmsum löndum á undanfömum árum í ljósi nýrrar þekkingar og einkum nýrra greiningaraðferða. Nægir að nefna nýlegar leiðbeiningar frá Kanada (9) og Bandaríkjunum (3). Þar er miðað við algjöran heiladauða (whole brain concept) og gert að kröfu að starf hjama og heilastofns hafi stöðvast. Ennfremur er skilyrt að ástand þetta sé óafturkræft, þ.e. orsök dás sé þekkt og næg til að skýra stöðvun heilastarfs, bati sé skilyrðislaust útilokaður og ástand hafi varað í tiltekinn tíma. Setja má því skilmerkin fram á eftirfarandi hátt: 1. Orsök og lengd dás (coma) er þekkt. a) Þekktur sjúkdómur í miðtaugakerfi eða óafturkræf kerfisbundin orsök (systemic metabolic cause). b) Ástand óafturkræft með vissu, þ.e. lyfjaeitrun eða of lágur líkamshiti (hypothermia), tmflanir á saltbúskap og starfi innkirtla hafa verið útilokuð, auk þess sem gæta þarf að áhrifa lyfja, er verka á taugar og vöðva eða svæfingalyfja, gæti ekki lengur. c) Ekki líði skemmri tími en 12 klukkustundir

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.