Læknablaðið - 15.08.1991, Qupperneq 16
222
LÆKNABLAÐIÐ
upp í 92 ára, lægri en meðalaldur kvenna, sem
var 56.1 ár, frá níu ára og upp í 90 ára (mynd
1).
A mynd 2 koma fram helstu orsakir
brisbólgunnar. Bólga tengd gallsteinum er
algengust, eða í 35% tilfella, 30% karla en
49% kvenna. Bólga tengd áfengi fannst hjá
26%, 34% karla en aðeins 10% kvenna. Hjá
um 30% beggja kynja var bólgan óskýrð
(idiopatisk). I töflu I koma fram ýmsar aðrar
orsakir fyrir brisbólgunni hjá 13 sjúklingum.
I 43 endurteknum innlögnum er bólga tengd
áfengi algengust eða hjá 53%, en bólga tengd
galli hjá aðeins 26%.
Mynd 3 sýnir aldursdreifingu hjá sjúklingum
með áfengis- og galltengdar orsakir. Galltengd
bólga finnst einkum hjá eldri einstaklingum og
er algengasta orsökin á meðal eldri kvenna.
Afengistengd bólga er algengust hjá yngri
einstaklingum, einkum í 30-40 ára hópnum
og mestur hluti karla yngri en 60 ára er í
þeim hópi. Á mynd 4 sést að 117 eða 62%
allra útskrifast innan tveggja vikna en 21
eða 11% liggja lengur en fjórar vikur. í
endurteknum innlögnum útskrifast sjúklingar
fyrr eða 81% innan tveggja vikna. Einnig
liggja sjúklingar með galltengda og óskýrða
bólgu lengur en þeir sem hafa áfengistengda
bólgu. Sjö sjúklingar af 150 dóu, tvær konur
og fimm karlar. Meðalaldur þeirra var 69.1
ár, dánartíðni 4.7%. Allir sjúklingamir dóu
í fyrsta bólgukasti. Sex höfðu galltengda
bólgu en einn hafði skömmu áður gengist
undir skurðaðgerð. Þrír dóu fljótlega eftir
innlögn eða innan viku vegna losts, hinir síðar
vegna síðtilkominnar sýkingar í kviðarholi
og/eða fjöllíffærabilunar. Sex sjúklingar
fengu sýndarblöðru (pseudocystu) og dó
einn þeirra vegna sýkingar. Einn sjúklingur
hafði brisígerð og dó. Af sex sjúklingum með
nýmabilun dóu fimm. Fylgikvillar í lungum,
samfall, lungnabólga og brjósthimnuvökvi
vom skráð hjá 24 sjúklingum, 12.7%. Þrír
þeirra sem dóu fengu svæsna öndunarbilun.
DIC kom fyrir hjá einum, sem jafnframt hafði
fengið kransæðastíflu og mikið lifrardrep
áður en hann dó. Hjá 7.1% var marktæk
kalsíumlækkun til staðar. Tveir þeirra sem
dóu vom í þessum síðastnefnda hópi.
Hjá 123 (65%), 74 körlum og 49 konum,
mældist amýlasi hærri en 1000 í legunni.
Hærri amýlasar vom oftar til staðar í
■ Males
BFemales
Fig. 1. Age and sex distribution in 189 admissions.
Years
| Alcohol 49(26%)
E Biliary 67(35%)
E3 Idiopathic 59(32%)
E Other 13(7%)
Fig. 2. Etiological factors.
20
18 "
16 -
14 -
12 -
10
8 H
6
4 -
2 -
0
H
10-20 20-30 30-40 40-5050-60 60-70 70-8080-90 >90
_ Years
■ Biliary
0 Alcohol
Fig. 3. Biliary and alcoholic etiology. Age distribution.