Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 32

Læknablaðið - 15.08.1991, Blaðsíða 32
238 LÆKNABLAÐIÐ Höfuðverkur var frumeinkenni í tvígang og leiddi til greiningar mjólkurhormónæxla, en aðeins annað þessara skar sig þó úr um stærðarauka umfram hin, sem greind voru. Höfuðverkur og þyngsli yfir höfði er þess utan tíður fylgifiskur ofgnóttar mjólkurhormóns (17). Oljósari vanlíðan af ýmsu tagi var og tíð, stundum tengd hýpóestrógenemíunni, sem alltaf fylgir, en einnig af taugafræðilegum eða geðrænum uppruna. Sjónsviðsskerðing kom tvisvar fyrir. I annað skiptið í sambandi við uppvöxt æxlisins úr tyrkjasöðli, í hinu tilvikinu var æxlið innan dingulsins, en því hefur verið veitt athygli, að uppvöxtur æxlis úr söðli ræður ekki öllu um, hvort sjónsviðstruflun verður eða ekki (18). í bæði skiptin lagaðist sjóntruflunin á undraskömmum tíma við meðferð, annarsvegar með thýroxíni hinsvegar með brómergókriptíni. Atta konur falla ekki undir neina skráða orsök (tafla II) aðra en töku estrógena í einhverju formi. Þessar konur voru taldar hafa ofgnótt mjókurhormóns af völdum annarra hormóna og/eða getnaðarvamalyfja með áhrif á kynkirtla eða stýrihormón þeirra. Þáttur estrógena í tilurð ofgnóttar mjólkurhormóns er engan veginn ljós. Athuganir Hull o.fl. (19) sýndu fram á, að einungis í einu tilviki af 1000 megi ætla, að ofgnótt mjókurhormóns stafi af notkun getnaðarvamalyfja, og sama gildir um áhrif getnaðarvamalyfja á myndun mjókurhormónæxlis svo sem Coulam o.fl. lýstu (20). Greining æxla í heiladingli með tölvusneiðmyndatækni hófst um miðjan áttunda áratuginn. Þróun þessarar tækni var hröð. Með styttri myndgerðartíma, betri upplausn í myndum og möguleika á þynnri sneiðum, má sneiða heiladingulinn og umhverfi hans í kransskurði og greina þannig smæstu heiladingulsæxli og minnsta rof í veggi söðulsins. Segulskoðun (magnetic resonance imaging) hefur alla burði til að víkja TS-tækninni frá. Með henni má skoða heiladingulinn og umhverfi hans í öllum plönum. Notkun »paramagnetískra« skuggaefna hefur einnig aukið greiningaröryggi á smáæxlum og innvexti í groppustokk (sinus cavemosus). Hérlendis komu EMl 5005 tölvusneiðmyndatæki á röntgendeild Borgarspítalans 1981, GE 8800 tæki á Landspítalann 1982 og síðast Toshiba 600S tæki á Borgarspítalann 1988. Þrátt fyrir tilkomu þessa tækjabúnaðar voru aðeins fimm af sjúklingunum 20 skoðaðir neð TS- tækni fyrir 1984 og aðeins einn greindur með æxli. Við endurskoðun var æxli þó staðfest þrisvar. Notkun TS-rannsókna á heiladingli varð hvorki almenn né markviss hérlendis fyrr en eftir 1984-85. Þess utan gætti nokkurs ósamræmis í útfærslu og túlkun TS-skoðana heiladinguls í upphafi notkunarskeiðs þeirra. Ellefu kvennana höfðu greinilegt æxli samkvæmt endurmetnum TS-skoðunum (tafla VII), en þau vom talin 12 í upprunalegri skýrslu (13). Fjögur æxlanna voru >10 mm í þvermál (macroadenoma), hin sjö voru <10 mm í þvermál (microadenoma). Sjúklingur, sem hafði ofgnótt mjókurhormóns vegna truflaðs sambands heilastúku og -dinguls í kjölfar brottnáms heilabastsæxlis ofan tyrkjasöðuls, þ.e. vegna brottfalls hömluþáttar mjólkurhormóframleiðslu (PIF), reyndist hafa stóræxli við TS-skoðun 15 og 19 árum eftir aðgerðina. Þannig eru 50-55% kvennanna liklega með ofgnótt mjólkurhormóns vegna mjólkurhormónæxlis. TS-skoðanir vom aðeins fimm sinnum gerðar fyrir upphaf meðferðar. Einn þessara sjúklinga var innlagður í skyndi vegna svæsins höfuðverkjar og reyndist hafa sjónsviðsskerðingu (samkvæmt Goldmann sjónsviðsmælingu) og TS-skoðun leiddi í ljós stóræxli. Brómergókriptín-meðferð upprætti höfuðverk og sjónsviðsskerðingu innan tveggja vikna, og tveimur mánuðum síðar var staðfest að æxlið var orðið að smáæxli. Almennt er talið, að tvö af hverjum þremur stóræxlum rými við meðferð með dópamin- agónistum, og jafnvel betur, eða 10 af 12 eins og J. Halse et al lýstu (21). Varðandi örlög smáæxla á brómergókriptín-meðferð er lítið birt. Tölvuleit meðal útgefinna heimilda getur aðeins einnar frá 1982 (22), þar sem TS- athugun fyrir og eftir upphaf meðferðar leiddi í ljós hvarf eða minnkun 11 æxla af 15. Hér varð reynslan öll önnur. Aðeins eitt æxli hefur minnkað. Algengi mjólkurhormónæxla er ekki vitað, en kmfningsrannsóknir hafa leitt í ljós 23-27% algengi kirtilæxla af stærðargráðu <2-6 mm. Mikill meirihluti þeirra var <2 mm, eða 36 af 43 æxlum í 120 kmfðum (23).

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.