Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1993, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 15.03.1993, Blaðsíða 39
LÆKNABLAÐIÐ 127 ÁRANGUR AF RÓFUBEINSTÖKU VIÐ VERK f RÓFUBEINI Höfundar: Sigurpáll Scheving, Brynjólfur Mogensen og Jón Níelsson, Borgarspítala. Inngangur: Árangur af rófubeinstöku vegna verkja í rófubeini er talinn frekar misjafn. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna árangur rófubeinstöku vegna langvinnra verkja í rófubeini. Aðferö: Kannaðar voru sjúkraskýrslur sjúklinga þar sem rófubein hafði verið fjarlægt á slysa- og bæklunarlækningadeild eða skurðdeild Borgarspítalans á árunum 1980-1990. Sjúklingar voru jafnframt beðnir að meta árangur af aðgerð. Niðurstöður: Rófubeinstaka var gerð hjá 10 konum á aldrinum 21-61 árs, meðalaldur 35 ár. Hjá sex konum var ákveðin áverkasaga en hjá ljórum engin saga. Sjö konur höfðu fengið alla hefðbundna meðferð fyrir aðgerð án árangurs en þtjár höfðu ekki fengið neina sérstaka verkjameðferð fyrir aðgerð. Meðallegutími var 3,5 dagar (1-7). Engar aukaverkanir í aðgerð eða legu áttu sér stað en ein kona fékk ristilbólgu (pseudomembranous colit) eftir útskrift. Átta konur voru mjög ánægðar með árangurinn en af þeim voru tvær Iengi að verða góðar. Tvær konur voru ekki ánægðar. Báðar höfðu fengið hefðbundna verkjameðferð fyrir aðgerð án árangurs. Önnur varð ekkert betri, hin betri en ekki nógu góð. Umrœða: Langvinnur verkur í rófubeini er illþolanlegur þar sem þolandinn á erfitt með að sitja eða reyna á sig. í þessari rannsókn var eingöngu um konur að ræða, sem er óvenju einlitt miðað við uppgjör annarra þó konur séu í meirihluta. Árangur af rófubeinstöku vegna langvinnra verkja í rófubeini virðist vel viðunandi, þar sem átta af tíu sjúklingum voru mjög ánægðir með árangurinn. TÍÐNI UMFERÐARSLYSA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU. ÁTJÁN ÁRA YFIRLIT Höfundar: Brynjólfur Mogensen, Rúnar Sigfússon, Sveinbjörn Brandsson, Borgarspítala. Inngangur: Árlega lætur á þriðja tug manna lífið í umferðarslysum, margir slasast auk milljarðakostnaðar. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna tíðni umferðarslysa á höfuðborgarsvæðinu. Aðferð: Gerð var tölvuúrvinnsla lögskráðra fbúa höfuðborgarsvæðisins, sem lentu í umferðarslysum á árunum 1974 til og með 1991 og komu á slysa- og sjúkravakt Borgarspítalans. Upplýsingar um íbúafjölda voru fengnar frá Hagstofu íslands. um ökutækjaeign frá Umferðarráði og Bifreiðaskoðun Islands. Tíðnitölur eru miðaðar við 1000 úr viðkomandi úrtaki. Niðurstöður: Meðaltíðni slasaðra á hverja 1000 fbúa í umferðarslysum var 11,8. Tíðni slasaðra var lægsl 9,2 1983, jókst um rúma tvo frá 1986 til 1987 en varð hæst 14,1 1990 og 16,5 1991. Árið 1991 var tíðni slasaðra karla 17,6 miðað við 15,5 hjá konum. Langhæst var tíðnin í aldurshópunum 15-19 ára 52,4 þar sem karlamir slösuðust mun oftar 58,3 en konumar 46,4. Meðaltíðni slasaðra sem þurfti að leggja inn á sjúkrahús var 1,2, hæst 1,8 1975 og lægst 0,9 1979. Var 1,0 1990 og 1,2 1991. Breyting virðist hafa orðið á hlutfalli slasaðra eftir tegund umferðarslysa ef miðað er við höfuðborgarsvæðið árið 1975 og meðaltal áranna 1987-1990 í Reykjavík. Slösuðum úr bifreiðaslysum hefur fjölgað úr 56% í 74% meðan slösuðum úr hjólreiðaslysum 18% og gangandi 19% hefur fækkað í 9% og 10%. Slösuðunt úr bifhjólaslysum hefur fækkað úr 7% í 6%. Umferðarslys em algengust í september 11.1% en fæst í febrúar 5%. Minni munur er á milli vikudaga. Skráð ökutæki Reykvíkinga jukusl úr 342 ökutæki/1000 íbúa 1974 í 522 ökutæki 1991 en þau vom flest 554/1000 íbúa 1988. Umrœða: Tíðni slasaðra hefur ekki aukist með fjölgun ökutækja fram að 1987 að hún jókst, einkum síðustu tvö ár. Aukin tíðni innlagna vegna umferðarslysa hefur þó ekki átt sér stað. Það hefur átt sér stað hlutfallsleg fjölgun slasaðra úr bifreiðaslysum meðan gangandi og hjólreiðaslysum hefur fækkað. Hugsanlega tíðniaukningu má rekja til nýrra umferðarlaga 1987, aukinnar umræðu um umferðarslys og breytts hugsunarháttar um bótarétt. SKIPTIR MÁLI, HVORT ÞVAGLEGGUR ER INNILIGGJANDI í EINN EÐA TVO SÓLARHRINGA EFTIR GERVILIÐAAÐGERÐ? Höfundar: Sigurður E Sigurðsson, Sigurður Guðmundsson, Ingibjörg Hjaltadóttir, Jóna S Ævarsdóttir, Brynjólfur Mogensen, Borgarspítala. Inngangur: Þvagfæravandamál eftir gerviliðaaðgerðir em algeng. Rannsóknir hafa sýnt, að betra er að hafa þvaglegg inniliggjandi einn sólarhring eftir aðgerð, frekar en setja upp þvaglegg endurtekið til að koma í veg fyrir þvagtregðu án þess að aukin hætta sé á sýkingu. Markmið þessarar rannsóknar var að athuga hvort munur væri á tíðni sýkinga eða annarra þvagfæravandamála eftir því hvort þvagleggur var látinn vera einn eða tvo sólarhringa. Aðferð: I rannsóknina völdust 100 sjúklingar, sem gengust undir gerviliðaaðgerð á mjöðm eða hné á slysa- og bæklunarlækningadeild Borgarspítalans. Sjúklingum var skipt í tvo hópa eftir því hvort fæðingarár endaði á jafnri tölu eða oddatölu. I hópi I (oddatala, 44 sjúklingar) var þvagleggur hafður í einn sólarhring. en í hópi II (jöfn tala, 56 sjúklingar) í tvo sólarhringa. Þvagleggur var settur upp hjá öllum að morgni aðgerðardags. Þvagræktanir voru teknar fyrir aðgerð og síðan á L, 2., 7., og 12. degi eftir aðgerð. Allir sjúklingamir fengu venjubundna sýklalyfjagjöf í tenglum við aðgerð (cloxacillin, cefazolin eða clindamycin) og hjá öllum vom gerviliðir steyptir í með gentamycinblönduðu sementi. Öll þvagfæravandamál eftir aðgerð vom skráð. Marktæk sýking í þvagi var talin vera >100 þús sýklar/ml. Niðurstöður: Enginn marktækur munur var milli hópanna hvað varðar aldur, kyn, aðgerð eða fyrri þvagfærasögu. Eflir aðgerð fengu 3/44 þvagtregðu í hópi I, en 2/56 í hópi II (ekki marktækt). Fyrir aðgerð vom 10% allra með þvagfærasýkingu. Eftir aðgerð vom einungis tveir sjúklingar með sýkingu á 1. og 2. degi (hópur I). Á 12. degi vom þrír sjúklingar í hvomm hópi með sýkingu. Langalgengasti sýkingavaldurinn var E. Coli. Umrœða: Ekki virðist skipta máli, hvort þvagleggur er hafður inniliggjandi í einn eða tvo sólarhringa hjá sjúklingum eftir gerviliðaaðgerðir, hvað varðar tíðni sýkinga eða annarra þvagfæravandamála. Má því ætla, að óhætt sé að hafa þvaglegg hjá þessum sjúklingum fyrstu tvo sólarhringanna eftir aðgerð, án þess að bjóða heim auknum vandamálum.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.