Læknablaðið - 15.10.1993, Page 23
LÆKNABLAÐIÐ
315
Hagstofu íslands á ICD flokkunarkerfinu
við skráningu undirrótar dánarmeins af
dánarvottorði. Niðurstöðurnar voru settar
fram samkvæmt ICD-9 sem byggir á 17
megin sjúkdómaflokkum. Innan þeirra eru 282
undirflokkar og sést í töflu I hvernig »megin
sjúkdómsflokkur 11«, krabbamein, skiptist í
undirflokka.
Hjá Hagstofu íslands fengust upplýsingar um
dánarorsakir af dánarvottorðum þeirra sem
látist höfðu fyrir 1. desember 1990 úr hópi B
en fyrir 1. desember 1991 úr hópi A.
Undirrót dánarmeins á dánarvottorði var
borin saman við undirrót dánarmeins
samkvæmt krufningu. Samræmi var talið
vera milli krufningarskýrslu og dánarvottorðs
ef undirrót dánarmeins bar saman bæði í
megin- og undirflokki en hálfgert misræmi
ef undirflokkum bar ekki saman. Algjört
misræmi taldist vera ef sjúkdómur fluttist milli
einhverra hinna 17 megin flokka. Reiknuð
voru næmi (sensitivity) og jákvætt spágildi
(positive predictive value) dánarvottorðanna,
miðað við að upplýsingar á krufningarskýrslu
sýndu »rétta« dánarorsök. Næmið sýnir þá
Table II. Diagnostic categories of underlying cause,
according to autopsy, compared with death certificate -
group A.
Diagnostic category No. Autopsy record Death- certificate
i. Infectious 1 0
n. Neoplasm
Malignant . . 240 229
Benign 0 2
VI. Nervous 0 1
VII. Circulatory 59 62
VIII. Respiratory 11 12
IX. Digestive 6 4
X. Genitourinary 2 5
XIII. Musculoskeletal ... 0 1
XVI. Ill-defined 1 2
XVII. Accidents 6 8
All categories 326 326
hve stórt hlutfall dánarvottorðin »finna« af
hverjum sjúkdómsflokki, og er skilgreint
sem fjöldi réttra jákvæðra (true positive)
dánarorsaka í ákveðnum sjúkdómsflokki
á dánarvottorðum deilt með fjöldanum í
viðkomandi sjúkdómsflokki samkvæmt
krufningarskýrslu. Jákvætt spágildi gefur hins
vegar vísbendingu um ofgreiningar
Table III. Comparison of underlying cause of death as found at autopsy, with death certificate - group A. Type of
disagreement.
Autopsy record Type of disagreement
Disease category Disagreement Total Subcategoric
I. Infective No. (%) 1 1 1 0
(100) (100) (100) (0)
II. Neoplasm Malignant 240 44 14 30
(100) (18) (6) (12)
Benign 0 0 0 0
(0) (0) (0) (0)
VII. Circulatory 59 25 8 17
(100) (42) (14) (29)
VIII. Respiratory 11 8 6 2
(100) (73) (54) (18)
IX. Digestive 6 2 2 0
(100) (33) (33) (0)
X. Genitourinary 2 1 1 0
(100) (50) (50) (0)
XVI. Ill-defined 1 0 0 0
(100) (0) (0) (0)
XVII. Accidents 6 1 1 0
(0) (17) (17) (0)
All categories 326 82 33 49
(100) (25) (10) (15)