Læknablaðið - 15.10.1993, Page 32
322
LÆKNABLAÐIÐ
Table I. Child psychiatríc counselling at the University
Hospital, Reykjavik, Iceland. Survey from 01.01.1977-
01.12.1985. '
N Average age
Girls 91 9.0
Boys 115 8.5
Ratio girls/boys 0.8
Age 2-21 years
NIÐURSTÖÐUR
Tafla I sýnir að kynskipting er nokkuð jöfn.
Hlutfallið milli stúlkna og drengja er 0,8.
Meðalaldur hjá stúlkum er níu ár og hjá
drengjum átta og hálft ár.
Heildarfjöldi beiðna var 219. Þar sem þessi
þjónusta hafði verið í burðarliðnum í alllangan
tíma var ekki alltaf skráð hvaða stofnun hefði
beðið um geðlæknisfræðilega ráðgjöf. Þar sem
ekki tókst að staðsetja 13 beiðnir á deildir
stofnana féllu þær niður. Fjöldi athugaðra
sjúkraskýrslna var 187 (einstaklingar) en ekki
tókst að finna 19 sjúkraskýrslur eins og sjá má
af töflu II. Sálfræðilegar athuganir voru gerðar
á 40 einstaklingum af þessum 187 og var þá
oftast um greindarpróf að ræða.
Tafla II sýnir frá hvaða stofnunum
sjúklingum var vísað og jafnframt að
algengustu ráðgjafarbeiðnir voru frá
Barnaspítala Hringsins eða 41,7% og
barnadeild Landakotsspítala eða 32,5%.
Sálfræðideild skóla og Öskjuhlíðarskóli biðja
hlutfallslega sjaldan um ráðgjöf frá bama-
og unglingageðdeild. Níu beiðnir voru frá
Borgarspítala eða 4,3%.
Tafla III sýnir fjölda ráðgjafarbeiðna ár hvert
og má segja að litlar breytingar hafi átt sér
stað á beiðnum eftir árum, en marktæka
heildaraukningu má þó sjá á árunum 1983-
1985.
í töflu IV má sjá þær geðlæknisfræðilegu
sjúkdómsgreiningar samkvæmt ICD 9 (8)
sem komu fram í rannsókninni. Sérstök
einkenni (307) (16%), þroskafrávik (315)
(10,7%), hegðunarvandamál (312) (8,7%)
og tilfinningaerfiðleikar (313) eru algengustu
sjúkdómsgreiningar sem leitað er ráðgjafar
við. Tilraunir til sjálfsvígs voru flokkaðar
sérstaklega og reyndust vera 4,8% þegar
allar sjúkdómsgreiningar voru meðtaldar.
Einnig var kynferðisleg misnotkun (incest)
(0,9%) flokkuð sérstaklega, en á þessum ámm
var aðeins leitað ráðgjafar vegna tveggja
stúlkna sem höfðu orðið fyrir kynferðislegri
misnotkun. Leitað var ráðgjafar vegna ofvirkni
Table II. Number of referred patients and missing reports listed by institutions.
Missing Total (%)
Pediatric Department, University Hospital............................................ 6 86 (41.7)
Pediatric Department, Landakot....................................................... 2 67 (32.5)
Psychiatric Department, University Hospital ......................................... 4 14 (6.7)
Reykjavík Municipal Hospital ........................................................ 1 9 (4.3)
School psychological counselling..................................................... 1 4 (1.9)
Center for mentally retarded and handicapped children ........................... 11 (5.3)
School for the retarded ......................................................... 2 (0.9)
Other institutions................................................................... 5 13 (6.2)
Total 19 206 (100.0)
Total reports studied: 187
Table III. Total referred patients, listed by years.
Pediatric department Pediatric department Other
Total National Hospital Landakot institutions
1977-1979 ................................ 45 14 16 15
1980-1982 ................................ 63 27 28 8
1983-1985 ............................... 111 45 23 43
Total 219 86 67 66
Chi-squere: 18.099, DF: 4, P: 0.0012.