Læknablaðið - 15.12.1993, Síða 26
398
LÆKNABLAÐIÐ
Tafla VIII. Samanburður á bandarískri, breskum og íslenskum rannsóknum.
Boston Bristol London ísland ísland ísland
1978 1978 1978-79 1983 1983-85 1989
Bassuk (1) Lim (7) Skúlason (8) Pálsson S (9) Þessi könnun
Karlar .... 33,0% 55,0% 49,0% 47,0% 46,0% 67,4%
Konur .... 67,0% 45,0% 50,0% 52,0% 54,0% 32,6%
Meðalaldur .... 31 36 36 38 37,9 39,6
Staðalfrávik (SD) .... 14 17 13 15 16,4 12,8
Greiningar: Geðhvörf 17,1% 22,3% 11,3%
Geðklofi 12,8% 7,0% 8,7%
Geðhvörf og geðklofi .... 16,0% 20,0% 24,5% 29,9% 29,3% 20,0%
Taugaveiklun .... 45,0% 39,0% 38,2% 34,0% 13,1% 6,8%
Áfengis- og vímuefnasýki 10,2% 25,0% 40,7% 61,7%
Persónuleikatruflanir .... 14,0% 22,0% 15,6% 3,8% 3,6% 6,0%
Önnur geðraen vandamál 3,3% 3,3% 5,9% 5,5%
en konur 33%. í öðrum rannsóknum hefur
komið fram hvoru tveggja marktækt hærra
hlutfall kvenna (1) og marktækt hærrra hlutfall
karla (2,3,11-16).
í þessari athugun vekur athygli hve stór
hluti sjúklinga kom vegna áfengis- og
vímuefnavandamála eða 62% (tafla V).
Það er langtum hærra hlutfall en fyrri
rannsóknir sýna, innlendar (8,9) og erlendar
(1,3,7,10,11,16) (tafla VIII). Niðurstöður
íslensku rannsóknanna tveggja (8,9) voru á
þann veg að árið 1983 leitaði fjórðungur eða
25% til bráðaþjónustunnar vegna áfengis-
og vímuefnavanda og á árabilinu 1983-1985
var talan 41% eða fjórir af hverjum tíu.
Þessar rannsóknarniðurstöður sýna ótvíræða
fjölgun áfengis- og vímuefnasjúklinga, sem
leita aðstoðar bráðaþjónustu geðdeildar
Landspítalans. Niðurstöðurnar spegla vel
þá aukningu á neyslu áfengis og öðrum
vímugjöfum, sem orðið hefur í þjóðfélaginu
á síðustu árum og þá um leið á áfengis- og
vímuefnavandanum (33-35).
Jafnframt hefur orðið mikil aukning
á meðferðarúrræðum. Ef til vill gefa
þessar niðurstöður til kynna að sjúklingar
nýti sér ekki dagþjónustuna sem skyldi.
Líklega leita fleiri á bráðaþjónustu
geðdeildar Landspítalans en Borgarspítalans
vegna áfengis- og vímuefnavandamála,
þar sem göngudeild fyrir áfengis- og
vímuefnasjúklinga er rekin á geðdeild
Landspítalans svo og áfengismeðferðardeild.
Þá má ætla að hlutfallslega fleiri komi
á geðdeild Borgarspítalans en geðdeild
Landspítalans í kjölfar sjálfsvígstilrauna vegna
slysadeildarinnar og gæti það skýrt að hluta
að tvöfalt hærra hlutfall eða 22% eru haldnir
geðhvörfum samkvæmt rannsókn Sigurðar
Páls Pálssonar og félaga á bráðaþjónustu
geðdeildar Borgarspítalans árin 1983-1985
(9) á móti 11 % í okkar rannsókn.
Það hefur lengi verið vel þekkt að meðal
áfengissjúklinga er algengi annarra
geðsjúkdóma verulega aukið. í könnun
Kristins Tómassonar (36) á sjúklingum á
áfengisdeildum Landspítalans og SAA að
Vogi á árunum 1991 og 1992 kom í ljós,
að áfengis- og vímuefnasjúklingarnir voru
með ýmsa aðra geðsjúkdóma og vandamál
sem tengjast misnotkun. Þannig reyndist
um þriðjungur sjúklinganna hafa sögu
um verulegt þunglyndi og heldur fleiri
hafa sögu um kvíðaköst og fælni. Nærri
fjórðungur sjúklinganna greindist með
andfélagslegan persónuleika og 5-7% með
geðklofa. Það er því líklegt að meginhluti
áfengis- og vímuefnasjúklinga, sem leita
eftir bráðaþjónustu, eigi einnig við aðra
geðsjúkdóma að stríða.
Karlar eru marktækt fleiri en konur eða
75% á móti 25% í hópi þeirra sem leita
vegna áfengis- og vímuefnavanda (tafla II)
og skýrir það hinn mikla kynjamun í okkar
rannsókn. Ef litið er á aðra en áfengis- og
vímuefnasjúklinga (tafla II) er kynjahlutfallið
nánast jafnt eins og í fyrri rannsóknum (8,9 ).
Tafla VIII sýnir að meðalaldur og
aldursdreifing er sambærileg við niðurstöður
fyrri rannsókna (1,7-10,14). Flestir koma