Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1993, Síða 32

Læknablaðið - 15.12.1993, Síða 32
404 LÆKNABLAÐIÐ eru í samræmi við magn málmjóna í lausn og oxunarspennu þeirra. Lenging blýþreps fyrir staðalviðbót á bilinu 10-200 ng var mæld nteð tvöfaldri mælingu og fékkst staðallína, sem var mjög vel viðunandi (Y=321,5X+0,6; r=0,997). Þetta benti til þess, að óhætt væri að nota mismikla staðalviðbót í einstökum mælingum. Á grundvelli þessara athugana voru greiningarmörk aðferðarinnar sett 10 ng/ml. Því næst voru gerðar mælingar á staðli (BCR-194, keyptur frá Community Bureau of Reference, Brussell, Belgíu), sem staðfest er að innihaldi 126±4 ng/ml af blýi í blóði. Niðurstöður tveggja óháðra ákvarðana urðu þær að í staðlinum reyndust vera 120±6 ng/ml af blýi. Að lokum var gerð prófun á blóðglösum með því að fylla eitt glas af eimuðu vatni og meðhöndla það síðan sem blóðsýni. Það reyndist ekki innihalda blý í mælanlegu magni. Tölfræðilegar prófanir voru gerðar með Exel 4.0. Annars vegar var samanburður á aldri og blýgildum milli hópanna gerður með t-prófi með jöfnum breytileika (t-Test: Two Sample Assuming Equal Variances). Hins vegar var samband aldurs eða starfsaldurs og blýþéttni prófað með línulegri aðhvarfsgreiningu (linear regression analysis). NIÐURSTÖÐUR Blý var ákvarðað í blóði samtals 37 einstaklinga, úr þremur mismunandi starfsstéttum, á árunum 1991-1992. í meðfylgjandi töflu er samantekt á aldri, starfsaldri, reykingum og blýi í blóði allra einstaklinga. Þar kemur einnig fram meðalaldur einstaklinga í hópunum sem og meðaltal og staðalfrávik blýs í blóði. í fyrsta hópnum voru 12 stúdentar á aldrinum 22-37 ára, í öðrum hópnum voru 13 lögreglumenn úr götulögreglu á aldrinum 24-55 ára og loks voru í þriðja hópnunt 12 strætisvagnastjórar á aldrinum 24-68 ára. í hópi lögreglumanna voru sex reykingamenn og fjórir meðal vagnstjóra. Um reykingar stúdentanna eru engar upplýsingar. Meðalþéttni blýs í blóði stúdenta var 37±11 (SD) ng/ml, í blóði lögreglumanna 56± 14 (SD) ng/ml og í blóði strætisvagnastjóra 57± 16 (SD) ng/ml. Hæsta gildi einstakra mælinga var 88 ng/ml. Það var sýni úr elsta einstaklingi í öllu safninu (68 ára; vagnstjóri) sem jafnframt reykti. Tölfræðilegar prófanir sýndu að marktækur munur var á meðalaldri einstaklinga í öllum hópum (stúdentar og lögregiumenn: p<0,01, df=23; stúdentar og vagnstjórar: p<0,001, df=22; lögreglumenn og vagnstjórar: p<0,05, df=23). Á sama hátt kom fram marktækur munur á meðalþéttni blýs í blóði stúdenta og lögreglumanna (p<0,01, df=23) og stúdenta og vagnstjóra (p<0,01, df=22). Mynd 1 sýnir dreifingu niðurstöðutalna eftir Tafla Samantekt upplýsinga og niðurstöðutalna. I úrtakinu voru 12 stúdentar, 13 lögreglumenn í götulögreglu og 12 stœtisvagnastjórar. Marktœkur munur var á meðalaldri einstaklinga i öllum hópum innbyrðis og meðalþéttni blýs i blóði stúdenta var minni en í hinum hópunum (sbr. texta). Stúdentar Lögreglumenn Strætisvagnastjórar Nr. Aldur Ár Blý ng/ml Aldur Ár Starfsaldur Ár Reykingar Blý ng/ml Aldur Ár Starfsaldur Ár Reykingar Blý ng/ml 1 . 22 28 24 4 _ 65 24 3 _ 32 2 . 22 40 27 4 + 35 29 3 - 28 3 . 24 25 29 2 + 64 37 13 + 56 4 . 24 32 29 5 - 31 38 1,5 - 62 5 . 24 48 30 5 - 64 40 19 + 69 6 . 24 57 30 5 - 77 48 27 - 56 7 . 25 30 32 6 - 50 56 19 + 55 8 . 25 53 36 10 + 63 57 18 - 59 9 . 26 27 36 14 + 61 59 25 - 63 10 . 28 34 37 10 + 46 60 16 - 72 11 . 31 29 50 26 + 44 67 38 - 46 12 . 37 43 53 25 - 75 68 43,5 + 88 13 55 24 - 57 Meðalaldur . 26 36 49 Blý meðalþéttni .. 37 56 57 S.D ±11 ±14 ±16

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.