Læknablaðið - 15.12.1993, Qupperneq 35
LÆKNABLAÐIÐ
407
og 105 ng/ml)(12). Líka er athyglisvert, að
þéttni blýs í blóði kvenna í Wales minnkaði
um 30% á árunum 1972-1982, enda þótt
blýmagn í bensíni héldist sem næst óbreytt.
í þeirri rannsókn var jafnframt bent á,
að umferðarþungi hefði á sama tímabili
farið stöðugt vaxandi (13). Loks er erfitt
að skilja hvers vegna magn blýs í blóði
stúdenta í fyrri rannsókn var það sama og hjá
lögreglumönnum og vagnstjórum, ef magn
þess í blóði ákvarðast fyrst og fremst af blýi í
götulofti (1).
Hver sem uppruni blýs í blóði manna í
rannsókninni er, er víst að þéttni þess er
lítil. Mengun af völdum blýs er tæpast
vandamál hér á landi, nema ef vera kynni hjá
tilteknum starfsstéttum (samanber rannsókn
eiturefnanefndar)( 1).
Tíu einstaklingar í hópum lögreglumanna
og strætisvagnastjóra voru reykingamenn og
magn blýs í blóði þeirra virtist svipað og hjá
þeim sem ekki reyktu.
Að lokum er vert að geta þess, að í eldri
rannsókn var blý í blóði ákvarðað með
atómgreiningu (atomic absorption)(l),
en í þessari rannsókn með anóðustrípun
(potentiometric stripping analysis). Báðar
aðferðirnar eru vel prófaðar. Ef miðað er við
þær upplýsingar sem fengust með staðlinum,
sem keyptur var til að prófa aðferðina, ætti
atómgreinig að gefa sambærilegar niðurstöður
(14).
ÞAKKIR
Þakkir eru færðar borgarstjórn Reykjavíkur,
sem veitti styrk til þessarar rannsóknar.
Einnig er þeim Elínu Pálmadóttur fyrrverandi
borgarfulltrúa og Katrínu Fjeldsted
borgarfulltrúa þakkaður áhugi á þessu
starfi. Þeir stúdentar, lögreglumenn og
strætisvagnastjórar sem veittu okkur leyfi
til að taka blóðsýni fá bestu þakkir fyrir
þátttökuna. Að lokum er þeim Elísabetu
Sólbergsdóttur, sem gaf leiðbeiningar um
tækjabúnaðinn og notkun hans, Jakobi L.
Kristinssyni og Kristínu Olafsdóttir, sem
lásu handritið yfir og gagnrýndu, þakkað fyrir
aðstoðina.
SUMMARY
In the years 1991-1992 blood lead levels in 37
individuals living in Reykjavík, Iceland, were
determined by potentiometric stripping analysis.
The group was divided into three different
subgroups. The first group consisted of 12 students
(mean age 26 years), the second group consisted
of 13 traffic policemen (mean age 36 years) and
the third group consisted of 12 bus drivers (mean
age 48.6 years). By using t-Test Assuming Equal
Variances the mean age in the three groups were
found significantly different (P<0.05). The mean
blood levels of lead were 37±11 (SD) ng/ml for
the students, 56±14 (SD) ng/ml for the policemen
and 57±16 (SD) ng/ml for the bus drivers. The
mean lead level for the students was found
significantly different from those of policemen and
bus drivers (P<0.01). In a study from 1978 the
amount of lead in similar groups of students, traffic
poiicemen and bus drivers was 3-5 fold higher
than those presented here, and all groups were
in the same statistical range. It therefore seems
evident that the general exposure to lead in the
environment must have decreased markedly in the
approximately 14 years between the two studies.
Measurements of lead in ambient air in the streets
of Reykjavík indicate that it has been steadily
decreasing in the last five years or so (see appendix
and ref. 6). This in turn could be explained by the
increasing use of unleaded gasoline and the reduced
levels of lead in leaded gasoline. Therefore the
lower blood lead levels in humans in Reykjavík are
consistent with the lower levels of lead found in
ambient air in the city. No significant correlation
was found between age and blood lead or seniority
and blood lead.
(From The Department of Pharmacology,
University of Iceland, P.O. Box 8216, 128
Reykjavík, lceland).
HEIMILDIR
1. Þormar H, Jóhannesson Þ. Blý í götulofti og blóði
manria í Reykjavík. Tímarit um lyfjafræði 1979; 14:
11-21.
2. Skerfving S. Nordiska Expertgruppan för
Gransvardesdokumentation. 104. Oorganiskt bly.
Arbete och Halsa 1992: 43.
3. Gerhardsson C. Bly och halsa. Nordisk Medicin
1992; 107: 231-2.
4. Goyer RA. Toxic effects of metals. In: Amdur MO,
Doull J, Klaassen CD, eds. Casarett and Doull’s
Toxicology, The Basic Science of Poisons. 4th ed.
New York: Pergamon Press, 1991: 623-81.
5. Angle CR. Childhood lead poisoning and its
treatment. Annu Rev Pharmacol Toxicol 1993; 32:
409-34.
6. Gísladóttir S. Loftgæðamælingum við Miklatorg hætt.
Hvr tíðindi 1992; 2: 3 tbl. (júlí 1992).
7. Sólbergsdóttir E, Jóhannesson Þ. Akvörðun
á kadmíum í nýrnaberki með anóðustrípun.
Læknablaðið 1992; 78: 125-30.
8. Jagner D, Josefsson M, Westerlund S, Arén K.
Simultaneous determination of cadmium and