Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.1993, Qupperneq 42

Læknablaðið - 15.12.1993, Qupperneq 42
414 LÆKNABLAÐIÐ má nefna rof á hjartanu, lost, gáttasleglarof og dauða. Nýrri möguleiki er að nota rafsegulbylgjur eða útvarpsbylgjur. Leiðslur eru þræddar inn í vinstra slegil, broddurinn staðsettur undir míturlokunni og rafbylgjur gefnar þar. Með þessu móti er unnt að rjúfa aukabrautir sem liggja framanvert á mótum gátta og slegla. Til að rjúfa bakstæðar aukabrautir eru leiðslur þræddar inn f hægra slegil. I nýlegri skýrslu kemur í ljós að af 177 sjúklingum með hraðatakt frá gáttum fékkst góður árangur hjá 174. Fimmtán fengu aftur takttruflun en eftir aðra tilraun töldust 175 læknaðir, einn var skárri, en enginn árangur varð hjá aðeins einum sjúklingi. Tíu til 15 Islendingar hafa fengið bót meina sinna með þessari aðferð. Nauðsynlegt er að læknar séu vakandi fyrir þessum meðferðarmöguleika og láti ekki heldur undir höfuð leggjast að greina rétt gáttahrinur hjá sjúklingum sem til þeirra koma og kvarta um hjartsláttarköst. Rafstuðtæki hafa verið grædd í þrjá íslendinga sem höfðu áður fengið hjartastopp eða lífshættulegar hjartsláttartruflanir. Til grundvallar þessari meðferð liggur sú vitneskja að hefðbundin lyfjameðferð við sleglahrinum til að fyrirbyggja hjartastopp (fibrillation) hefur valdið miklum vonbrigðum. Lyf sem beitt hefur verið árum eða áratugum saman hafa í vandlega útfærðum rannsóknum stundum reynst gera meiri skaða en gagn. Þetta er í sumum tilvikum lyf eins og kínidín, prókaínamíð, flekaíníð og fleira sem notuð hafa verið hér á landi. Þótt enn skorti á að nægar rannsóknir liggi fyrir til að bera saman ígrædd stuðtæki og lyf er tæpast nokkur vafi á því að með því fyrmefnda er unnt að bjarga mörgum mannslífum. Hins vegar takmarkast notkun tækisins við sjúklinga í áhættuhópum, einkum þá sem hafa fengið hjartastopp og hafa slælegan samdrátt í vinstra slegli, en einnig ýmsa aðra sjúklinga sem hafa fengið lífshættulegar takttruflanir. Hér hefði verið gaman að halda áfram og ræða nýjustu sýklalyfin, nýjar stefnur í bólusetningum. nú viðhorf í astmameðferð, ýmsa möguleika gentækni í læknisfræði og nýjungar í gjörgæslumeðferð. Slíkt verður þó að bíða betri tíma, eða annarra fyrirlesara, enda fyllist fræðatunnan hraðar en af henni verður fleytt. ÞAKKIR Eg vil færa læknum á lyflækningadeild og rannsóknardeild Landspítalans kærar þakkir fyrir ábendingar og aðstoð við samning þessa erindis, einkum þeim Bjarna Þjóðleifssyni, Páli Asmundssyni, Páli T. Onundarsyni, Kristjáni Steinssyni og Astráði B. Hreiðarssyni.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.