Læknablaðið - 15.08.1995, Qupperneq 3
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
583
LÆKNABLAÐIÐ
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
8. tbl. 81. árg. Ágúst 1995
Útgcfandi:
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Aðsetur og afgreiðsla:
Hlíðasmári 8 - 200 Kópavogur
Símar:
Skiptiborð: 564 4100
Lífeyrissjóður: 564 4102
Læknablaðið: 564 4104
Bréfsími (fax): 564 4106
Ritstjórn:
Einar Stefánsson
Guðrún Pétursdóttir
Gunnar Sigurðsson
Jóhann Ágúst Sigurðsson
Jónas Magnússon
Sigurður Guðmundsson
Vilhjálmur Rafnsson ábm.
Ritstjórnarfulltrúi:
Birna Þórðardóttir
Auglýsingar:
Margrét Aðalsteinsdóttir
Ritari:
Ásta Jensdóttir
Upplag: 1.500
Áskrift: 6.840,- m/vsk.
Lausasala: 684,- m/vsk.
© Læknablaðið, Hh'ðasmára 8,
200 Kópavogur, sími 564 4104.
Blað þetta má eigi afrita með
neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild án leyfis.
Prcntun og bókband:
G. Ben. - Edda prentstofa hf.
Smiðjuvegi 3. 200 Kópavogur.
Pökkun:
Plastpökkun, Skemmuvegi 8,
200 Kópavogur.
ISSN: 0023-7213
Fræðigreinar
Ritstjórnargrein:
Lokanir á geðdeildum:
Tómas Helgason ................................. 586
Listeríósis í mönnum á íslandi á árunum 1978-
1994:
Ólafur Steingrímsson, Ýr Sigurðardóttir, Kristín E.
Jónsdóttir, Karl G. Kristinsson, Sigurður B.
Þorsteinsson.................................. 589
Lýst er sjúkdómnum Listeríosis í mönnum á íslandi. Greint var frá
fyrstu sýkingu 1961, en frá 1978 hafa mörg tilfelli greinst. Á þeim
17 árum sem rannsóknin nær til var sýkillinn einangraður frá 36
einstaklingum.
Árangur meðferðar þeirra, sem ekki höfðu alvarlega ónæmis-
bælingu, var góður. Brýnt er að kanna faraldsfræði sjúkdómsins
og útbreiðslu sýkilsins hér á landi nánar.
Heilahimnubólga af völdum baktería hjá fullorðn-
um á íslandi. Yfirlit 20 ára:
Bryndís Sigurðardóttir, Ólafur Már Björnsson, Kristín Jóns-
dóttir, Helga Erlendsdóttir, Sigurður Guðmundsson 594
Safnað var upplýsingum frá 10 sjúkrahúsum í landinu auk sýkla-
fræðideild Landspítalans. Meningókokkar reyndust algengasti
orsakavaldur heilahimnubólgu af völdum baktería í unglingum
og fullorðnum. Dánartíðni er enn há, sérstaklega hjá sjúklingum
með bælt ónæmiskerfi.
Upphafslyfjameðferð er nú oftast cefalósporín af þriðju kynslóð.
Bráðaofnæmi hjá 20-44 ára íslendingum:
Davíð Gíslason, Þórarinn Gíslason, Þorsteinn Blöndal,
Hrafnkell Helgason ............................. 606
Rannsóknin er hluti annars áfanga Evrópukönnunar um lungu
og heilsu.
Með pikkprófum voru prófaðir 12 ofnæmisvakar. Mikilvægustu
ofnæmisvakar reyndust vallarfoxgras, kettir, hundar, rykmaurar,
heymaurar og birki. Eini marktæki áhættuþáttur sem fannst var
ofnæmi hjá móður.
Tíðni ofnæmis virðist lág hér á landi miðað við niðurstöður sem
birst hafa annars staðar úr Evrópukönnuninni.
Chlamydia trachomatis infections — is screening
cost-effective?:
Jorma Paavonen ............................ 614
Greinin er hluti rannsókna sem kynntar voru á fundi í Domus
Medica þann 29. apríl síðastliðinn.
Nýr doktor í læknisfræði:
Einar Stefán Björnsson ..................... 618
Nýr doktor í læknisfræði:
Vigdís Hansdóttir .......................... 619