Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.08.1995, Side 10

Læknablaðið - 15.08.1995, Side 10
590 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 rannsóknin náði til. Á árunum 1985-1993 voru aðeins þrír stofnar af 15 af stofngerð 4b en hinir ýmist l/2a eða l/2b. Á fyrri hluta tímabilsins eða fram til ársins 1985 var aðeins einn af 13 stofnum af stofngerð 172a en allir hinir 4b. Ástæður þessara breytinga eru óþekktar. Tíðni sjúkdómsins á íslandi var há á því tímabili sem rannsóknin náði til. Brýnt er að kanna faralds- fræði sjúkdómsins og útbreiðslu sýkilsins nánar hér á landi. Inngangur Sjúkdómur sem orsakast af Listeria mon- ocytogenes og nú gengur undir nafninu Lister- íósis hefur líklega verið þekktur í dýrum frá því fyrir lok síðustu aldar (1). Bakteríunni var fyrst vel lýst árið 1926 og gefið nafnið Bacterium monocytogenes (2). Líklegt er þó talið að hún hafi ræktast í Svíþjóð fyrir fyrri heimsstyrjöld (3) en stofnarnir voru ekki varðveittir og grein- ingin því ekki óyggjandi. Sjúkdómstilfellum í mönnum var fyrst lýst í Danmörku 1929 (4). Elsti stofninn sem til er, ræktaðist frá sjúklingi með heilahimnubólgu árið 1921 og er geymdur á Pasteur stofnuninni (1). Sjúkdómurinn var talinn sjaldgæfur í mönnum framan af öldinni. Á síðustu áratugum hefur greiningum fjölgað mikið. Ekki er ljóst hve miklu bættar greining- araðferðir valda eða í hve miklum mæli um er að ræða raunverulega aukningu. Sjúkdómurinn var vel þekktur í dýrum á Is- landi frá því í byrjun aldarinnar (5-11) og gekk undir nafninu votheysveiki eða Hvanneyrar- veiki. Fyrsta faraldri í sauðfé var lýst í Borgar- firði 1910 (5). Á íslandi var fyrst sýnt fram á tengsl sýkinga í húsdýrum við verkun á votheyi (11) . Að öllum líkindum var fyrstu sýkingu í mönnum, sem greindist á Islandi, lýst árið 1961 (12) . Stofninn tapaðist þó við umsáningar svo greiningin varð aldrei staðfest. Ekki greindust fleiri tilfelli í mönnum fyrr en árið 1978 en þá ræktaðist bakterían frá fimm einstaklingum (13) . Síðan hafa mörg tilfelli greinst hér á landi. Hér á eftir verður gerð grein fyrir afdrifum sjúklinga með staðfesta listeríusýkingu á árun- um 1978-1993 á íslandi. Efniviður og aðferðir Bakteríustofnar: Allir L. monocytogenes stofnar sem einangraðir voru á sýklafræðideild Landspítalans eða voru sendir þangað til teg- undagreiningar, á árunum 1978-1994, voru frystir og geymdir við -70°C. Haldin var skrá yfir nöfn sjúklinga og uppruna sýna sem sýkill- inn ræktaðist frá. Upplýsingar um undirlægar orsakir, meðferð og afdrif sjúklinga voru fengnar úr krufningarskýrslum, sjúkraskrám og læknabréfum. Skráð voru kyn, aldur, sjúk- dómsgreining og afdrif. í einstaka tilfellum, sem þóttu athyglisverð, voru nánari upplýsing- ar skráðar. Greining: Greining var gerð með hefð- bundnum hætti (14). Gram jákvæðir og kata- lasa jákvæðir stafir sem mynduðu 6-hemolýsu á blóðagar voru taldir L. monocytogenes ef þeir höfðu dæmigerðan hreyfanleika við smá- sjárskoðun og jákvætt hreyfanleikapróf við 22°C en ekki við 37°C og gerjuðu escúlín. Greining var staðfest með API strimli (API system, BioMérieux, París, Frakklandi) eða í Vitek greiningartæki (BioMerieux Vitek, St. Louis, Bandaríkjunum). Næmispróf voru gerð samkvæmt aðferð Kirby og Bauer með síðari endurbótum. Stofnar sem ræktuðust frá innsendum sýnum á sýklafræðideild Landspítalans frá árinu 1978 og fengu greininguna L. monocytogenes voru sendir til Center for Disease Control (CDC) í Atlanta í Bandaríkjunum til staðfestingar á greiningu og ákvörðunar á stofngerð (sero- type). Allir stofnar utan einn, sem einangrast höfðu frá mönnum á íslandi á árunum 1978- 1993, voru sendir á Listeríurannsóknarstofu í Sviss til ákvörðunar á stofngerð. Upplýsingar um stofngerðir stofna sem ræktuðust 1994 liggja enn ekki fyrir. Niðurstöður Á þeim 17 árum sem rannsóknin náði til, var L. monocytogenes einangruð frá 36 einstak- lingum á íslandi. Miðgildi fólksfjölda var á þessu tímabili um 242 þúsund. Ef nýfætt barn og móðir eru talin sem eitt tilfelli svo sem venja er, voru tilfellin 34 og telst nýgengi vera 8,3 á hverja milljón íbúa á ári. Karlar voru 11 en konur 25. Um var að ræða níu nýburasýkingar (þar af sex fyrirburar), níu sýkingar á með- göngu og 13 sýkingar í ónæmisbældum sjúk- lingum. Fimm sjúklinganna höfðu áður verið hraustir. í einu tilviki var um að ræða karl- mann á besta aldri, sem ekki var talinn hafa annan sjúkdóm. Hann var bifreiðastjóri en stundaði auk þess smávægilegan fjárbúskap. Nokkrum vikum áður en hann fékk heila- himnubólgu hafði hann hlotið sár á hendi sem ígerð hljóp í. Hann hafði skorið sig á hnífi sem hann hafði notað til að gera að kind sem hann

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.