Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.08.1995, Qupperneq 11

Læknablaðið - 15.08.1995, Qupperneq 11
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 591 hafði lógað. Ekki var vitað hvað olli ígerðinni. Eitt tilfellanna var talið vera spítalasýking. Par var um að ræða nýbura sem líklega sýktist af öðrum nýbura sem lá á sömu stofu. Sjúkling- arnir fengu flestir ampicillín með eða án genta- micíns. í sex tilfellum var penicillín notað með gentamicíni eða klóramfenikóli og einu sinni með ceftríaxóni. Meðferðarlengd var þrír til 60 dagar (meðaltími 16 dagar). Einn nýburanna dó stuttu eftir flutning utan af landi á Landspít- alann og annar eftir fimm daga meðferð. Aldr- aður sjúklingur með heilahimnubólgu og þrír sjúklingar með alvarlega ónæmisbælingu lét- ust, einn án þess að fá meðferð. Sjö konur sýktust á meðgöngu og voru meðhöndlaðar með ampicillíni. Fjórar þeirra fæddu andvana börn sem reyndust hafa mikil merki listeríósis við krufningu. I einu tilviki var um tvíbura- meðgöngu að ræða og lést annar tvíburinn fyrir fæðingu en hinn hafði sýkingareinkenni við fæðingu. Hinar þrjár fæddu heilbrigð fullburða börn. Tvær konur veiktust í lok meðgöngu og fæddu sýkt börn sem lifðu. Fylgikvillar með- ferðar reyndust litlir. Eitt barn fékk eiturverk- un af klóramfenikóli með fækkun á hvítum blóðkornum. Hjá öðru barni gekk illa að upp- ræta sýkingarmynd í mænuvökva og ræktuðust klasakokkar úr mænuvökva eftir útskrift og þurfti barnið að leggjast aftur inn til meðferð- Tafla. Samband aldurs og sjúkdómsmynda eða orsaka sýk- ingar, fjöldi látinna í sviga. 0-9 ára N=10 10-39 ára N=10 >40 ára N=16 Sýking á meðgöngu 9 Þar af fósturlát (4) Nýburasýkingar 9 (2) Með ónæmisbælingu 1 12(4) Án áhættuþáttar 1 4 ar. Gekk sú meðferð vel. Nýburasýkingarnar greindust flestar fyrri helming tímabilsins, en aðeins tvær nýburasýkingar greindust eftir 1984. Ekki var greinanleg breyting á tíðni eftir árstíðum. f töflu má sjá samband aldurs og sjúkdómsmynda eða orsaka sýkingar. Bakteríustofnarnir voru aðeins af þremur stofngerðum, 4b, 172a og l/2b (sjá mynd). Stofnar frá árinu 1978, sem sendir voru til CDC, reyndust allir vera af stofngerð 4b (stað- fest við endurtekna stofngreiningu í Sviss) og sama gilti um alla stofna sem einangruðust fram til ársins 1983. Það ár var einn þriggja stofna af stofngerð l/2a. Árið 1984 einangruð- ust þrír 4b stofnar, en eftir það voru flestir stofnarnir l/2a eða l/2b nema einn stofn hvert ár 1988,1992 og 1993. Allir þeir 13 stofnar sem voru af gerð l/2a eða l/2b ræktuðust frá full- orðnu fólki en allir nýburar og þungaðar konur Mynd. Myndin sýnir dreifingu þeirra þriggja stofngerða, sem greindust á rannsóknartímabilinu. Á Y-ási sést fjöldi stofna á tilteknu ári. Upplýsingar um stofngerðir stofna sem rœktuðust 1994 liggja enn ekki fyrir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.