Læknablaðið - 15.08.1995, Page 17
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
595
100.000 íbúa á ári eða að meðaltali 3,8/100.000
íbúa á tímabilinu. Langalgengasta orsök sjúk-
dómsins var Neisseria meningitidis (54%) í öll-
um aldurshópum, en þar næst Streptococcus
pneumoniae (20%), Listeria monocytogenes
(6%) og Haemophilus influenzae (4%). Hlutur
N. meningitidis minnkaði þó marktækt eftir því
sem fólk eltist, það er úr 93% sýkinga í aldurs-
hópnum 16-20 ára, í 25% í sjúklingum eldri en
45 ára (p<0,001) en hlutfall S. pneumoniae
jókst úr2% f 37% (p<0,001). L. monocytogen-
es olli 14% tilvika hjá fólki 45 ára og eldra.
Dánartíðni var að meðaltali 19,1% og breyttist
ekki marktækt á tímabilinu. Einhvern tengdan
sjúkdóm höfðu 39% sjúklinganna þegar þeir
sýktust. A fyrstu sex árum tímabilsins fengu
76% sjúklinganna penicillín eða ampicillín í
upphafsmeðferð, eitt sér eða með klóramfeni-
kóli, en einungis 24% á seinustu átta árum. í
staðinn fengu nær tveir þriðju hlutar þeirra
cefalósporín af þriðju kynslóð sem upphafs-
meðferð.
Ályktanir: Meningókokkar voru algengustu
orsakavaldar heilahimnubólgu af völdum
baktería í unglingum og fullorðnum hér á landi
á umræddu tímabili, en þar á eftir fylgdu S.
pneumoniae og L. monocytogenes. Dánartíðni
hefur nánast ekkert breyst og er enn há
(—20%). Upphafslyfjameðferð nú er oftast
cefalósporín af þriðju kynslóð en var áður pen-
icillín eða ampicillín.
Inngangur
Þótt sýklalyf hafi verið í notkun í 60 ár er
heilahimnubólga af völdum baktería enn alvar-
legur sjúkdómur með allhárri dánartíðni (1).
Hér á landi hefur verið fylgst með orsökum og
tíðni sjúkdómsins síðastliðin 30 ár (2). Flestar
athuganir á heilahimnubólgu af völdum bakt-
ería hafa verið gerðar á börnum og fullorðnum
saman eða börnum eingöngu (1-5). Hér á landi
hafa birst nokkrar athuganir á sjúkdómnum
undanfarna áratugi, meðal annars á sjúkling-
um á Borgarspítala fyrir rúmum 30 árum (6), á
börnum á Landspítala fyrir um 20 árum (7) og
fyrir fimm árum birtist yfirlitsgrein um sjúk-
dóminn í börnum og fullorðnum á öllu landinu
á 30 ára tímabili (2). Mun minna hefur verið
fjallað sérstaklega um orsakir og hegðun sjúk-
dómsins í fullorðnum og flestar slíkar athugan-
ir verið fremur smáar í sniðum eða hafa ekki
fjallað um heilahimnubólgu af völdum bakter-
ía sérstaklega (8-10). Nýjasta og yfirgripsmesta
athugunin í þessa veru var gerð á stóru sjúkra-
húsi í bandarískri stórborg og veitir því tak-
markaðar upplýsingar um sjúkdóminn í öðrum
samfélögum (11). Við könnuðum þess vegna
afturvirkt hegðun og meðferð heilahimnu-
bólgu af völdum baktería hjá sjúklingum 16 ára
og eldri sem greindust hérlendis á árunum
1975-1994.
Efni og aðferðir
Leitað var upplýsinga um sjúklinga 16 ára og
eldri sem greinst höfðu með heilahimnubólgu
af völdum baktería hérlendis á árunum 1975-
1994. Stuðst var við skrár sýklafræðideildar
Landspítalans um jákvæðar ræktanir mænu-
vökva- eða blóðsýna sjúklinga sem grunaðir
voru um heilahimnubólgu af völdum baktería
og niðurstöður ræktana úr þessum sýnum.
Upplýsinga var ennfremur aflað úr sjúklinga-
skrám sjúkrahúsa um þá sjúklinga er fengu
greininguna heilahimnubólga af völdum bakt-
ería eða blóðsýking af völdum meningókokka
og þær bornar saman við upplýsingar frá sýkla-
fræðideild. Loks var leitað í krufningarskýrsl-
um Rannsóknarstofu Háskóla íslands í meina-
fræði. Leitað var upplýsinga í sjúklingaskrám á
Landspítala, Borgarspítala, Landakotsspítala,
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, og sjúkra-
húsunum á Akranesi, Egilsstöðum, Húsavík,
Neskaupstað, Sauðárkróki og í Vestmannaeyj-
um.
Til athugunar voru einungis teknar skrár
sjúklinga með jákvæðar ræktanir frá mænu-
vökva eða blóði, og/eða sjúklinga sem höfðu
klínísk merki um heilahimnubólgu eða men-
ingókokkablóðsýkingu (hiti, hnakkastífni,
ljósfælni, útbrot, og svo framvegis), þó svo að
ræktanir reyndust vera neikvæðar. Greining
heilahimnubólgu var þó í öllum tilvikum gerð
með skoðun mænuvökva.
Eftirtalin atriði voru skráð úr sjúkraskrám:
Sýkingarvaldur, tengdir sjúkdómar, hiti, fjöldi
daga með hita, hnakkastífni, krampar, meðvit-
undarástand, augnbotnaskoðun, lamanir, opn-
unarþrýstingur mænuvökva, mænuvökvarann-
sóknir, hæsta sökkgildi, hæsta gildi hvítra blóð-
koma, blóðræktunarniðurstöður, niðurstöður
tölvusneiðmynda af höfði, meðferð (það er
upphafs- og meginsýklalyfjameðferð), stera-
gjöf og fylgikvillar. Heilahimnubólga var talin
endurtekin ef einstaklingur sem áður hafði
fengið sjúkdóminn fékk hann aftur af völdum
annarrar bakteríu, eða ef viðkomandi sýktist af