Læknablaðið - 15.08.1995, Qupperneq 19
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
597
FJftldl
tilTÍkl
(*)
16-20 21-45 > 45 ára Alls
ára ára Aldunliípu-
Mynd 2. Orsakir heilahimnubólgu af völdum baktería meðal
unglinga (3*16 ára) og fullorðinna á íslandi 1975-1994. Sjúk-
lingar flokkaðir eftir aldri.
(4%) af gerð A. Nokkrir stofnar N. meningi-
tidis urðu ekki hjúpgreindir og voru það stofn-
ar sem ræktuðust á fyrstu árum rannsóknar-
tímabilsins.
S. pneumoniae olli 20% (n=27) tilfella, L.
monocytogenes 6% (n=8) og Haemophilus
influenzae 4% (n=6). Fjögur tilvik voru af
völdum Mycobacterium tuberculosis. Enn-
fremur reyndust tvær sýkingar vera af völdum
hemólýtískra streptókokka af flokki B.
Escherichia coli, Klebsiella pneumoniae, Stap-
hylococcus aureus og víridans streptókokkar
ollu hver um sig einni sýkingu. f 11% tilfella
tókst ekki að rækta sýkingarvald úr mænu-
vökva eða blóðsýnum.
Spítalasýkingarnar tvær voru af völdum E.
coli og K. pneumoniae.
Á mynd 2 kemur fram að í aldurshópnum
16-20 ára voru 93% (n=38) sýkinganna af
völdum N. meningitidis. í elsta aldurshópnum
lækkaði þetta hlutfall marktækt niður í 25%
(p<0,001). Hins vegar voru einungis 2% sýk-
inga í yngsta hópnum vegna S. pneumoniae og
fjölgaði þeim með hækkandi aldri í 37%
(p<0,001). L. monocytogenes olli 14% sýkinga
í elsta aldurshópnum. Aldursdreifing H. influ-
enzae tilvikanna var 25-68 ára, L. monocytog-
enes tilvikanna 48-86 ára og M. tuberculosis
tilvikanna 26-66 ára.
Klínísk einkenni: Hið klassíska þríeyki ein-
kenna (hiti, hnakkastífni og breytt meðvit-
und), fannst hjá 64 einstaklingum (52%).
Hinsvegar voru allir nema einn (99%) með eitt
eða fleiri þessara einkenna. Níutíu og sjö prós-
ent sjúklinga höfðu hita (>38°C) við komu,
þar af 54% hærri en 40°C. Eina klíníska ein-
kenni þriggja sjúklinga var hiti. Alls höfðu 12%
sjúklinga hita lengur en 10 daga en flestir þeirra
voru með ýmsa fylgikvilla sjúkdómsins eða
aðra sjúkdóma svo sem lungnabólgu, rauða
úlfa (lupus erythematosus), liðbólgur og merg-
æxli. Einn sjúklingur var með útbreitt smáæða-
blóðrek (microembolism) sem olli drepi í fæti
með fjölda aðgerða í kjölfarið.
Hnakkastífni var staðfest í 99 tilfellum
(80%) og reyndist ekki vera marktækur munur
hjá yngri og eldri aldurshópum.
Húðblæðingar (petechiae, purpura og
ecchymoses) voru skráðar hjá 62 sjúklingum
(50%), þar af var 51 með N. meningitidis sýk-
ingu, tveir með S. pneumoniae og í níu tilfell-
um tókst ekki að rækta sýkingarvald. Af sjúk-
lingum með N. meningitidis sýkingu var húð-
blæðingum lýst hjá 80% (mynd 3), samanborið
við 7% (n=2) sjúklinga með S. pneumoniae
(voru þeir báðir með fíngerðar blæðingar (pet-
echiae)).
Ástand meðvitundar: Sextíu og fjögur prósent
Tafla II Orsakavaldar heilahimnubólgu meðal unglinga og fullorðinna 1975-1994.
Sýkill 1975-1980 1981-1986 1987-1994 Alls
N=33 (%) oo co II z (%) N=65 (%) N=136 (%)
N. meningitidis 15 (45) 17 (45) 42 (65) 74 (54)
S. pneumoniae 7 (21) 10 (26) 10 (15) 27 (20)
H. influenzae 1 ( 3) 3 ( 8) 2 ( 3) 6 ( 4)
L. monocytogenes 2 ( 6) 1 ( 3) 5 ( 8) 8 ( 6)
13-hem. strep. B 0 ( 0) 1 ( 3) 1 ( 2) 2 ( 1)
E. coli 1 ( 3) 0 ( 0) 0 ( 0) 1 ( D
K. pneumoniae 0 ( 0) 0 ( 0) 1 ( 2) 1 ( D
M. tuberculosis 2 ( 6) 1 ( 3) 1 ( 2) 4 ( 3)
S. aureus 1 ( 3) 0 ( 0) 0 ( 0) 1 ( D
Víridans streptókokkar 0 ( 0) 1 ( 3) 0 ( 0) 1 ( D
Ræktast ekki 4 (12) 4 (11) 3 ( 5) 11 ( 8)