Læknablaðið - 15.08.1995, Blaðsíða 31
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
607
næmis fyrir frjói hans fyrr en upp úr 1960 (3).
Árið 1974 höfðu 3,8% Japana ofnæmi fyrir
sedrusviði en 9,8% 10 árum síðar. í Englandi
og Wales jókst tíðni frjónæmis (annual period
prevalence) úr 5,1% 1955-56 í 19,7% 1981-82
(4). í Skotlandi var tíðni frjónæmis könnuð hjá
átta til 13 ára börnum með 25 ára millibili, árin
1964 og 1989, og hafði hún hækkað á tímabilinu
úr 3,2% í 11,9% (5).
í Svíþjóð höfðu 4,4% nýliða í hernum of-
næmiskvef 1971 en 8,4% 1981 (6). Þessar kann-
anir benda ótvírætt til þess að tíðni ofnæmis
hafi aukist.
Þær niðurstöður sem hér eru kynntar, eru
hluti af niðurstöðum úr rannsókn sem kennd er
við Evrópusambandið og kallast The Europ-
ean Community Respiratory Health Survey,
eða Evrópukönnunin um lungu og heilsu.
Rannsóknin var skipulögð með það fyrir aug-
um að kanna tíðni astma, astmalíkra einkenna
og auðreitni á sem flestum stöðum á jörðinni.
Jafnframt að kanna hugsanlega áhættuþætti
astma, þar með talið ofnæmi og orsakir þess.
Um 50 rannsóknarstaðir í yfir 20 þjóðlöndum
og fimm heimsálfum taka þátt í könnuninni, og
hún er allsstaðar framkvæmd með nákvæmlega
sömu aðferð (7).
Könnuninni var skipt í tvo áfanga, og hafa
niðurstöður úr fyrri hluta hennar hér á landi
þegar verið birtar (8). Hér verður sagt frá þeim
hluta seinni áfanga sem fjallar um ofnæmi.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknarhópur: Til þátttöku í fyrri áfanga
voru valin af handahófi 1800 konur og 1800
karlar á aldrinum 20-44 ára, búsett á svæðinu
frá Hafnarfirði til Mosfellsbæjar. Aldursmörk-
in voru ákveðin með það í huga að bráðaof-
næmi er oftast komið fram á þessum aldri, en
langvinnir teppusjúkdómar koma yfirleitt fram
síðar á ævinni. Þátttökuhlutfallið var 84% (8).
í seinni áfanga var 800 þátttakendum úr fyrri
áfanga boðið til sérstakrar, víðtækrar rann-
sóknar, sem framkvæmd var á Vífilsstaðaspít-
ala árið 1991. Þessi hópur var valinn af handa-
hófi meðal allra (3.600) sem voru í upphaflega
úrtakinu. Tafla I sýnir úrtak og heimtur. Alls
voru þátttakendur 570 (77%), sem er nokkuð
lakara en í fyrri hlutanum, enda voru í úrtakinu
einnig þeir sem höfnuðu þátttöku í fyrri hlut-
anum eða fundust ekki. Nokkrir svöruðu sím-
leiðis en færðust undan þátttöku í húðprófum
og öðrum rannsóknum.
Table I. Response rate of 800 randomly selected men and
women.
Responded 570
Refused 105
Moved away 56
Died 1
Untracked 68
Total number 800
Spurningalistar: Sömu spurningar voru lagð-
ar fyrir þátttakendur á öllum rannsóknarstöð-
unum. Auk þess voru séríslenskar spurningar
sem áður höfðu verið notaðar til að kanna
reykingar, einkenni af heyryki og tíðni mí-
grens, húðsjúkdóma lyfjaofnæmis, svefntrufl-
ana og fleira.
Ofnœmisrannsóknir: Með pikkprófum voru
prófaðir 12 ofnæmisvakar. Níu þeirra voru
sameiginlegir hjá öllum rannsóknarstöðunum:
Vallarfoxgras, kettir, rykmaurar, birki, mygla
(Cladosporium, Alternaria) og erlendar gróð-
urtegundir (oliva, parietaria, common rag-
weed). Þrír ofnæmisvakar voru eftir frjálsu
vali; hér á landi hundar, hestar og heymaurar.
Auk húðprófa með ofnæmisvökum var prófað
með neikvæðri og jákvæðri viðmiðun.
Við húðprófin voru notaðar sérstakar lensur
(Phazets) frá Pharmacia í Uppsölum (9). Þær
voru með áföstum ofnæmisvökum á oddunum.
Við prófun vegna heymaura var þó notuð glýs-
erínlausn frá Allergologisk laboratorium í
Danmörku. Dropi af lausninni var settur á
húðina og pikkað gegnum hann. Lensur fyrir
neikvæða viðmiðun voru með hreina odda, en
lensur fyrir jákvæða viðmiðun voru með hista-
mín á oddunum. Allar lensur sem notaðar voru
við húðprófin, voru eins að gerð og lögun.
Tveir reyndir hjúkrunarfræðingar fram-
kvæmdu húðprófin. Þeir höfðu fengið þjálfun í
að samræma vinnubrögð sín vinnubrögðum á
öðrum rannsóknarstöðum í Evrópukönnun-
inni. Auk þess komu tveir eftirlitsaðilar frá
stjórnendum könnunarinnar í London til að
fylgjast með framkvæmd hennar hérlendis.
Lesið var af prófunum eftir 15 mínútur. Línur
voru dregnar með sérstökum penna kringum
hveija húðsvörun (wheal reaction) og hún færð
yfir á sérstakt eyðublað með glæru límbandi.
Lengsti ás svörunar (a) og hornrétt lína á hann
(b) voru mæld í mm en stærð neikvæðrar við-
miðunar dregin frá. Þannig var endanleg stærð
húðsvörunar fundin.
I niðurstöðum úr Evrópukönnuninni hafa