Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.08.1995, Side 33

Læknablaðið - 15.08.1995, Side 33
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 609 hjá 8,5%, kettir hjá 7,6%, hundar hjá 6,3%, rykmaurar hjá 6,1%, heymaurar hjá 3,2% og birki hjá 3% (tafla II). Aðrir ofnæmisvakar voru jákvæðir hjá 1% eða færri. I heildina höfðu 110 einstaklingar (20,5%) eitthvert of- næmi; 60 einstaklingar (11,2%) höfðu jákvæð húðpróf vegna eins eða fleiri dýra og 57 (10,6%) höfðu ofnæmi fyrir vallarfoxgrasi og/ eða birki. Fylgni var sterk milli dýraofnæmis annars vegar og frjónæmis hins vegar (p=0,0001). Enginn marktækur munur var á stærð hista- mínsvara eftir aldri. Þær voru stærstar í aldurs- hópnum 40-44 ára (6,2 mm) en minnstar í aldurshópnum 30-34 ára (5,8 mm). Ekki var heldur marktækur munur á histamínsvörum þeirra sem höfðu reykt og hinna sem aldrei höfðu reykt. Aldurs- og kyndreifing ofnœmis: Ofnæmi var jafn algengt hjá báðum kynjum; 20,1% hjá körlum og 20,9% hjá konum (p=0,82) (tafla III). Meðal karla var ofnæmi algengast í ald- urshópnum 25-29 ára, en meðal kvenna í ald- urshópnum 20-24 ára. Þegar bæði kynin voru skoðuð saman var tíðni ofnæmis hæst í aldurs- hópnum 20-24 ára og fór síðan lækkandi með aldrinum, en sá munur var þó ekki marktækur. Samanburður á húðprófum og RAST: I töflu IV eru bornar saman niðurstöður úr húðpróf- um og RAST prófum vegna vallarfoxgrass, katta, rykmaura, birkis og myglu. RAST gildi <0,35 ku/1 svarar til RAST hóps 0, gildi milli 0,35-0,69 ku/1 svara til RAST hóps 1 og gildi 3=0,7 ku/1 svara til RAST hóps 2 eða meira. Þegar jákvæð RAST próf eru miðuð við &0,35 ku/1, þá voru 62 (11,9%) jákvæðir fyrir vallarfoxgrasi, 39 (7,5%) fyrir köttum, 48 Table V. Sensitivity and specificity of RAST tests to five allergens in relation to prick tests. Prick tests of 2=3 mtn and RAST tests of 2=0.35 ku/l are considered positive. Allergen Sensitivity % Specificity % Timothy 89 95 Cat 68 98 D. pteronyssinus 70 95 Birch 56 96 Cladosporium 17 94 (9,2%) fyrir rykmaurum, 31 (5,9%) fyrir birki og 34 (6,5%) fyrir myglu. í töflu V hefur næmi og sértæki RAST prófa verið reiknað miðað við jákvætt húðpróf. Bráðaofnœmi — áhœttuþœttir: Tafla VI sýnir samband ofnæmis og nokkurra hugsanlegra áhættuþátta. Spurt var um astma og ofnæmi hjá foreldrum; tíðni öndunarfærasýkinga í æsku, aðstæður á fyrstu árum ævinnar svo sem vist á barnaheimili og hvort þátttakandinn deildi herbergi með öðrum. Þá var spurt um reykingar þátttakenda og foreldra þeirra og dýrahald á heimilinu á þeim tíma sem rann- sóknin fór fram. Hlutfallslega fleiri með of- næmi en án ofnæmis áttu móður með ofnæmi, og var sá munur marktækur. Hins vegar höfðu marktækt fleiri án ofnæmis en með ofnæmi reykt. Ekki fannst marktækt samband milli of- næmis og annarra atriða sem könnuð voru. í töflu VII var athugað samband ofnæmis við dýrahald á heimilum þátttakenda í æsku. Marktækt samband fannst ekki. í töflunni eru líka upplýsingar um tómstunda- og gæludýra- hald á Islandi. í dálki tvö sést að 40% þátttak- enda höfðu ketti, 35% fugla, 26% hunda, en önnur dýr voru sjaldgæfari. Samband milli pelsdýra á æskuheimilum og Table VI. Some possible riskfaclors for atopy. Possible riskfactors: Atopy negative N: YesAotal (%) Atopy positive N: Yes/total (%) P-value Mother ever with asthma 29/403 (7.2) 4/105 (3.8) 0.41 Mother ever with allergy 88/355 (24.8) 38/96 (39.6) <0.01 Father ever with asthma 28/388 (7.2) 7/99 (7.1) 0.96 Father ever with allergy 73/351 (20.8) 16/87 (18.4) 0.67 Bronchitis/pneumonia before 5 y of age 53/410 (12.9) 8/101 (7.9) 0.07 Sharing bedroom before 5 y of age 220/421 (52.3) 54/110 (49.1) 0.38 Playschool/nursery before 5 y of age 108/408 (26.5) 37/108 (34.3) 0.27 Cat in the household 52/427 (12.2) 16/110 (14.6) 0.51 Dog in the household 20/427 (4.7) 10/110 (9.1) 0.07 Birds in the household 36/427 (8.4) 12/110 (10.9) 0.42 Smoking now or before 278/427 (65.1) 58/110 (52.7) <0.02 Mother smoking 178/427 (41.7) 49/110 (44.5) 0.59 Father smoking 254/427 (59.5) 66/110 (60.0) 0.92

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.