Læknablaðið - 15.08.1995, Page 47
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
621
Aðalfundur
Læknafélags íslands
Aðalfundur Læknafélags íslands 1995 verður haldinn 29. og
30. september næstkomandi í húsnæði læknasamtakanna að
Hlíðasmára 8 og hefst hann kl. 13:30 fyrri daginn.
Samkvæmt 7. grein laga félagsins er öllum félögum Læknafé-
lags íslands frjálst að sitja aðalfund með málfrelsi og tillögurétti.
Að öðru leyti vísast til III. kafla laga Læknafélags íslands um
aðalfund. (Sjá Læknablaðið 1. tbl. 1995)
Stjórn Læknafélags íslands
í þessum hópi má þannig sjá
fulltrúa ungra og eldri lækna,
marga formenn sérgreinafélaga
og fulltrúa heimilis- og heilsu-
gæslulækna. Að auki verða for-
menn mikilvægra nefnda full-
trúar á fundinum, svo sem
samninganefnda og fræðslu-
nefnda auk aðila úr stjórn LR,
núverandi og fyrrverandi.
A aðalfundi LI sem haldinn
var á Húsavík í ágúst 1994 voru
bornar fram af fulltrúum LR
nokkrar mjög mikilvægar álykt-
unartillögur sem samþykktar
voru á fundinum. Var meðal
annars samþykkt ályktun um að
gert yrði ráð fyrir sjálfstæðri
starfsemi sérfræðinga og hún
skilgreind í Heilbrigðisáætlun
fslands. Pá var samþykkt álykt-
un um nauðsyn þess að fjölga
bæri kennurum við læknadeild
HÍ. Samþykkt var áskorun til
yfirvalda um að gæta þess, að
fjármagnið í sjúkrahúsþjónustu
landsmanna yrði sem best nýtt
og mótmælt viðvarandi fjár-
svelti stóru sjúkrahúsanna í
Reykjavík. Þá var samþykkt
ályktun er fjallaði um bótarétt
sjúklinga og tryggingar lækna,
sem brýnt er að læknasamtökin
móti stefnu um. Fimmta álykt-
unin frá LR laut að mikilvægi
betra eftirlits og skipulags smit-
varna í landinu.
Það getur tekið læknasam-
tökin nokkur ár að vinna sum-
um þessum málum brautar-
gengi innan kerfisins. Það er
ekki markmið í sjálfu sér að kaf-
færa stjórn LÍ með ályktunum
en jafnframt er ljóst að læknar
verða að nota heildarsamtök sín
til að vinna að brýnustu hags-
munamálum sínum. Aðalfund-
arfulltrúar verða boðaðir á und-
irbúningsfund í ágústmánuði
enda þurfa ályktunartillögur að
hafa borist stjórn LÍ fjórum vik-
um fyrir aðalfund.
Gestur Þorgeirsson