Læknablaðið - 15.08.1995, Side 51
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
625
Nýr kjarasamningur
lausráðinna sjúkrahúslækna
Nýr kjarasamningur lausráð-
inna sjúkrahúslækna var undir-
ritaður aðfararnótt 19. apríl síð-
astliðinn og samþykktur af
læknum í allsherjaratkvæða-
greiðslu 25. sama mánaðar.
Helstu breytingar frá gildandi
samningi eru þessar:
1. Föst mánaðarlaun hækka um
1,9%.
2. Greiðslum bifreiðastyrkja
var breytt á þann veg, að
75% af fullum bifreiðastyrk
(8000 km á ári) voru færð yfir
í launatöflur þeirra, sem
slíka styrki höfðu. Síðan
voru gerðar leiðréttingar
með hliðsjón af meðaltali
sem sagan segir? Pessum spurn-
ingum verður áreiðanlega
aldrei svarað, en því að Þorgils
skarði var höfðingjasonur og
því að Islendingar rituðu bækur
um hetjur sínar og höfðingja,
eigum við að þakka að frásögn-
in af þessari einstæðu læknisað-
gerð, hinni fyrstu skráðu í
Evrópu, hefur varðveist.
Helstu heimildir
Sturlunga saga:
Hrafns saga Sveinbjarnarson•
ar
Þorgils saga skarða.
Helgadóttir G.
Hrafns saga Sveinbjarnarson-
ar. Doktorsrit við Oxfordhá-
skóla, 1987.
yfirvinnu og vakta og tillit
tekið til skattlagningar þess-
ara tekna, þannig að nettó-
útkoma yrði sú sama og að
greiddum 6000 km akstri, að
frádregnum kostnaði vegna
aksturs. Með bókun er þeim
læknum sem höfðu bifreiða-
styrki tryggð greiðsla fyrir
akstur allt að 2000 km á ári. í
annarri bókun segir að við
yfirlækna, sérfræðinga og þá
lækna sem gegna reglu-
bundnum gæsluvöktum eða
reglubundinni vinnu á fleiri
en einum stað hjá sama
vinnuveitanda verði gerðir
sérstakir samningar um af-
not af eigin bifreiðum í þágu
vinnuveitanda samkvæmt
reglum sem gilda um ríkis-
starfsmenn. Slíkirsamningar
skulu vera annað hvort a)
lokaðir og miðast við 2000
km akstur á ári eða b) opinn
samningur þar sem akstur
greiðist samkvæmt aksturs-
dagók. Akstur í þágu vinnu-
veitenda sem samningar
þessir taka til, er akstur
vegna útkalla, akstur milli
vinnustaða sama vinnuveit-
anda og akstur vegna
fræðslufunda eða annarra
erinda á vegum vinnuveit-
enda.
3. Ný launatafla var búin til
fyrir deildarlækna. Aðstoð-
arlæknar sem ráðnir eru til
að sinna 16 eða 24 klukku-
stunda gæsluvöktum í að
minnsta kosti einn mánuð fá
greidd laun sem deildar-
læknar. í sérstakri bókun
segir að aðstoðarlæknir taki
laun sem deildarlæknir frá
fyrsta degi næsta mánaðar
eftir að hann hefur lagt inn
fullgilda umsókn um lækn-
ingaleyfi, enda verði afrit
umsóknar með móttöku-
stimpli ráðuneytis sent við-
komandi launadeild.
4. Persónuuppbót í desember
hækkar lítillega.
5. Skilyrði um að barnsburðar-
leyfi hefjist í síðasta lagi ein-
um mánuði fyrir áætlaðan
barnsburð er fellt niður.
6. Réttur til launa í veikindum
er samræmdur við rétt opin-
berra starfsmanna, sem hef-
ur í för með sér verulega bót
fyrir eldri lækna, en réttindi
þeirra sem hafa starfsaldur
frá sex mánuðum til 10 ára
minnka.
7. Framlög vinnuveitanda í líf-
eyrissjóð hækka frá 1. júní
næstkomandi í 7,5% og ári
síðar í 8,4%. Eigið framlag
verður 5% og síðar 5,6%.
8. Enn var tekist á um orðalag
ákvæða um viðbótarráðn-
ingar og á nú að vera tryggt
að saman geti farið viðbótar-
ráðning starfi læknir ekki að
lækningum utan sjúkrahúss
og sé hættur að taka vaktir
vegna aldurs. Viðkomandi
yfirlæknir gerir tillögur um
slíkar ráðningar.
9. Laun hækka um 3% 1. jan-
úar 1996 og samningurinn
gildir út það ár.
PÞ