Læknablaðið - 15.08.1995, Page 52
626
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Nýr gjaldskrársamningur
heilsugæslulækna
Þann 15. júní síðastliðinn
var undirritaður nýr samn-
ingur um gjaldskrá lieilsu-
gæslulækna. Hann var bor-
inn undir heilsugæslulækna í
bréflegri atkvæðagreiðslu og
samþykktur með 76 atkvæð-
um gegn 14.
Helstu breytingar eru
hækkun á einingarverði úr
34,02 kr. í 35,00 kr. Viðtal
hækkar um eina einingu og
vitjanir um þrjár einingar.
Pá kemur hækkun á ferða-
og biðtíma. Auk þessa koma
aðrar smávægilegar breyt-
ingar og afsláttarmörk eru
hert. Röntgentaxti helst
óbreyttur og er hinn sami og
fyrir aðra. Innheimta fyrir
vottorð helst óbreytt og er
samkvæmt reglugerð.. Alls
er hækkunin um 9,9% og
fæst öll strax. Samingurinn
er bundinn út næsta ár.
Björn Guðmundsson,
formaður samninganefndar
Röntgengeislinn 100 ára
I ár er þess víða minnst að 100
ár eru liðin frá því Wilhelm
Konrad Röntgen uppgötvaði
geilsann sem við hann er kennd-
ur.
Á hausti komanda mun
Læknablaðið minnast þessa í
samvinnu við Félag íslenskra
röntgenlækna og helga upp-
götvun Röntgens fræðilegan
hluta eins tölublaðs.
Hér til hliðar er mynd af
minningarskildi þeim um dr.
Gunnlaug Claessen, sem af-
hjúpaður var 6. mars 1994 á
Hverfisgötu 12 í Reykjavík. Þar
hóf dr. Gunnlaugur Claessen
starf sitt sem upphafsmaður
klínískrar röntgengreiningar og
geilsalækninga á íslandi fyrir
hartnær 80 ár.
-bþ-
Ljósm.: Lbl.