Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.08.1995, Page 54

Læknablaðið - 15.08.1995, Page 54
628 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Um endurhæfingarlífeyri Um endurhæfingarlífeyri fer samkvæmt 8. gr. laga um fjár- hagslega aðstoð nr. 118/1993. Greinin er svohljóðandi: „Heimilit er þegar ekki verður séð hver örorka einstaklings verður til frambúðar eftir sjúk- dóma eða slys að greiða endur- hœfingarlífeyri í allt að 12 mán- uði eftir að greiðslu sjúkra- eða slysadagpeninga samkvæmt lögum um almannatryggingar lýkur eða þar til unnt erað meta varanlega örorku, þó aldrei lengur en í 18 mánuði. Skilyrði er að viðkomandi gangist undir greiningu eða meðferð á sjúkrastofnun eða utan slíkrar stofnunar eftir reglum sem Tryggingaráð setur og ráð- herra staðfestir. Endurhœfing- arlífeyrir skal nema sömu fjár- hæð og grunnlífeyrir örorkulíf- eyris ásamt tekjutryggingu. Sjúkrahúsvist í greiningar- og endurhœfingarskyni skerðir ekki bótagreiðslur. “ Á fundi sínum, föstudaginn 30. mars 1990, setti Trygginga- ráð eftirfarandi reglur um end- urhæfingarörorku: „1. Sérstakt eyðublað skal hanna, þarsem lœknir sækir um endurhæfingarörorku- mat fyrir skjólstœðing (sjúkling). Þetta endurhæf- ingarörorkumat gildir jafnt um einstaklinga sem orðið hafa fyrir slysum og þá sem búa við sjúkdóm. Á þessu vottorði komi sérstaklega fram, að batahorfur séu tví- sýnar en nokkur von sé um bata ef viðhöfð sé sérstök endurhæfing/meðferð. Ná- kvœm sjúkrasaga skal koma fram svo og niðurstöður rannsókna auk nákvœmrar klínískrar skoðunar. Þáskal tilgreina félagslegar aðstœð- ur þess einstaklings sem sótt er um endurhœfingarör- orkumat fyrir. 2. Tryggingayfirlœknir ákveð- ur framhaldið, enda hafi sjúkradagpeningar verió greiddir hid skemmsta í þrjá mánuði áður en ákvörðun um endurhœfingarörorku- mat er tekin. Ákvörðun um endurhœfingarörorkumat skal þó að jafnaði liggjafyrir eigi síðar en einum mánuði eftir að vottorð lœknis er lagt fram. Skylt er einstaklingi, sem sótt er um endurhœfing- arörorkumat fyrir að hlíta úrskurði um frekari rann- sóknir, sem að ofan greinir, áður en endurhœfingarör- orkumat er unnið. 3. Heimilt er Tryggingastofnun ríkisins að semja við ákveðnar sjúkrastofnanir um rannsókn og/eða þjálfun við- komandi einstaklings sam- kvœmt reglum Trygginga- ráðs, sem ráðherra staðfestir. 4. Að rannsókn sjúkrastofnun- ar eða að endurhœfingu lok- inni, skal tryggingayfirlœkn- ir meta örorku viðkomandi einstaklings, enda hafi þá borist vottorð stofnunarinnar um sjúkdómsástand og horf- ur viðkomandi einstaklings. 5. Endurmeta skal örorku þess, er hlotið hefur endurhœfing- arlífeyri eigi síðar en 18 mán- uðum eftir að örorka (endur- hœfingarörorka) var fyrst metin. 6. Endurhœfingarörorkulífeyri geta þeir einstaklingar einir notið, sem eru á aldrinum 16 til 67 ára og fullnægja þeim lagaskilyrðum sem sett eru fyrir endurhœfingarörorku- lífeyri. “ Ástæða þykir að birta kolleg- um þetta til leiðbeiningar, en talsvert er um að skilyrðum sé ekki fullnægt, er sótt er um end- urhæfingarlífeyri. Vigfús Magnússon staðgengill tryggingayfir- læknis, settur Beretnú,g i994 Liggur frammi hjá Læknablaðinu

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.