Læknablaðið - 15.08.1995, Síða 54
628
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Um endurhæfingarlífeyri
Um endurhæfingarlífeyri fer
samkvæmt 8. gr. laga um fjár-
hagslega aðstoð nr. 118/1993.
Greinin er svohljóðandi:
„Heimilit er þegar ekki verður
séð hver örorka einstaklings
verður til frambúðar eftir sjúk-
dóma eða slys að greiða endur-
hœfingarlífeyri í allt að 12 mán-
uði eftir að greiðslu sjúkra- eða
slysadagpeninga samkvæmt
lögum um almannatryggingar
lýkur eða þar til unnt erað meta
varanlega örorku, þó aldrei
lengur en í 18 mánuði. Skilyrði
er að viðkomandi gangist undir
greiningu eða meðferð á
sjúkrastofnun eða utan slíkrar
stofnunar eftir reglum sem
Tryggingaráð setur og ráð-
herra staðfestir. Endurhœfing-
arlífeyrir skal nema sömu fjár-
hæð og grunnlífeyrir örorkulíf-
eyris ásamt tekjutryggingu.
Sjúkrahúsvist í greiningar- og
endurhœfingarskyni skerðir
ekki bótagreiðslur. “
Á fundi sínum, föstudaginn
30. mars 1990, setti Trygginga-
ráð eftirfarandi reglur um end-
urhæfingarörorku:
„1. Sérstakt eyðublað skal
hanna, þarsem lœknir sækir
um endurhæfingarörorku-
mat fyrir skjólstœðing
(sjúkling). Þetta endurhæf-
ingarörorkumat gildir jafnt
um einstaklinga sem orðið
hafa fyrir slysum og þá sem
búa við sjúkdóm. Á þessu
vottorði komi sérstaklega
fram, að batahorfur séu tví-
sýnar en nokkur von sé um
bata ef viðhöfð sé sérstök
endurhæfing/meðferð. Ná-
kvœm sjúkrasaga skal koma
fram svo og niðurstöður
rannsókna auk nákvœmrar
klínískrar skoðunar. Þáskal
tilgreina félagslegar aðstœð-
ur þess einstaklings sem sótt
er um endurhœfingarör-
orkumat fyrir.
2. Tryggingayfirlœknir ákveð-
ur framhaldið, enda hafi
sjúkradagpeningar verió
greiddir hid skemmsta í þrjá
mánuði áður en ákvörðun
um endurhœfingarörorku-
mat er tekin. Ákvörðun um
endurhœfingarörorkumat
skal þó að jafnaði liggjafyrir
eigi síðar en einum mánuði
eftir að vottorð lœknis er lagt
fram. Skylt er einstaklingi,
sem sótt er um endurhœfing-
arörorkumat fyrir að hlíta
úrskurði um frekari rann-
sóknir, sem að ofan greinir,
áður en endurhœfingarör-
orkumat er unnið.
3. Heimilt er Tryggingastofnun
ríkisins að semja við
ákveðnar sjúkrastofnanir um
rannsókn og/eða þjálfun við-
komandi einstaklings sam-
kvœmt reglum Trygginga-
ráðs, sem ráðherra staðfestir.
4. Að rannsókn sjúkrastofnun-
ar eða að endurhœfingu lok-
inni, skal tryggingayfirlœkn-
ir meta örorku viðkomandi
einstaklings, enda hafi þá
borist vottorð stofnunarinnar
um sjúkdómsástand og horf-
ur viðkomandi einstaklings.
5. Endurmeta skal örorku þess,
er hlotið hefur endurhœfing-
arlífeyri eigi síðar en 18 mán-
uðum eftir að örorka (endur-
hœfingarörorka) var fyrst
metin.
6. Endurhœfingarörorkulífeyri
geta þeir einstaklingar einir
notið, sem eru á aldrinum 16
til 67 ára og fullnægja þeim
lagaskilyrðum sem sett eru
fyrir endurhœfingarörorku-
lífeyri. “
Ástæða þykir að birta kolleg-
um þetta til leiðbeiningar, en
talsvert er um að skilyrðum sé
ekki fullnægt, er sótt er um end-
urhæfingarlífeyri.
Vigfús Magnússon
staðgengill tryggingayfir-
læknis, settur
Beretnú,g i994
Liggur frammi hjá
Læknablaðinu