Læknablaðið - 15.08.1995, Side 57
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
629
Lyfjamál 40
Frá Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneyti og landlækni
I Lyfjamálum 39 í síðasta
Læknablaði var fjallað um nýja
reglugerð um (20.) breytingu á
reglugerð um gerð lyfseðla, af-
greiðslu þeirra og merkingu, sem
tók gildi 1. júlí síðastliðinn og nýja
reglugerð um greiðslur almanna-
trygginga á lyfjakostnaði, nr. 327/
1995, sem tekur gildi 1. ágúst
1995. Aðalatriði í þeirri fyrri er,
að svokallað R/S merkingakerfi á
lyfseðlum er afnumið og í staðinn
kemur ákvæði um „að vilji útgef-
andi ekki heimila breytingu í ann-
að samsvarandi samheitalyf skal
hann skrifa R með hring utan um
fyrir aftan heiti lyfsins. Skrifi út-
gefandi ekki R með hring utan um
fyrir aftan heiti lyfsins er lyfja-
frœðingi heimilt að breyta ávísun
lœknis íannað sérlyf (samheitalyf)
í sama lyfjaformi, styrkleika og
sambœrilegu magni, óski sjúk-
lingur þess. Lyfjafrœðingi er skylt
að upplýsa sjúkling um val milli
samsvarandi samheitalyfjapakkn-
inga sé ávísað á slík lyf og verð-
munur er meiri en 5% frá verði
ódýrustu samheitalyfjapakkning-
ar í viðmiðunarverðskrá, sem gef-
in er út af Heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu. Útgefandi
lyfseðils getur heimilað lyfjafrœð-
ingi símleiðis að breyta R-merk-
ingu. í þeim dlfellum skal stimpla
lyfseðilinn með stimplinum: „Lyf-
seðlinum breytt í samráði við
lœkni. ““
I síðari reglugerðinni er aðal-
breytingin frá fyrri reglugerð sú,
að nú miðast endurgreiðsla al-
mannatrygginga á lyfjum að há-
marki við viðmiðunarverð, þar
sem það á við, en annars við gild-
andi smásöluverð. I þeim tilfell-
um sem smásöluverð þess lyfs,
sem ávísað er, er hærra en við-
miðunarverð lyfs í sama lækn-
ingaflokki (það er samheitalyf),
greiðir sjúkratryggður þann auka-
kostnað sem til fellur. Trygginga-
stofnun ríkisins greiðir það sem
vantar á fullt smásöluverð eða
viðmiðunarverð.
Önnur nýmæli í greiðslureglu-
gerðinni eru eftirfarandi:
1. í 1. gr. staflið d. Sveppalyf
(ATC-fl. J02), bætast við þau lyf,
þar sem ávísað hámarksmagn
miðast við mest 30 daga notkun
og í sömu grein er fellt niður
ákvæði í fyrri reglugerð um að
Tryggingastofnun ríkisins sé
heimilt að tilgreina á undanþágu-
skírteini ódýrasta lyf viðkomandi
lyfjaflokks, enda er það háð vali
sjúklings hvað varðar samheita-
iyf.
2. I 2. gr. eru felld niður vasó-
pressín og skyld lyf (ATC-fl.
H01BA), úr hópi lyfja, sem áður
voru greidd að fullu af Trygginga-
stofnun ríkisins.
3. f 3. gr. hefur ATC-flokkun
kalsíumblokkara verið breytt úr
C02DE f C08 í samræmi við breyt-
ingar á ATC kerfinu hjá WHO.
4. í 5. gr. staflið b. hefur verið
bætt við það sem fyrir var og ekki
er greitt af Tryggingastofnun rík-
isins: Umbúðir (ATC-fl. D09) og
lyf til útvortis notkunar við bólum
(ATC-fl. D10A).
5. í 6. gr. eru 5. og 6. liður nýir og
koma ístað 8. gr. ífyrri reglugerð.
Þarna er fjallað um afgreiðslu
sjúkrahúsapóteka á lyfjum sem
hafa afgreiðslumerkingu “S“ í
lyfjaskrám og um óskráð sérlyf,
sem flutt eru inn samkvæmt und-
anþágu og eingöngu eru notuð á
sjúkrahúsum.
6. Athygli er sérstaklega vakin á
2. mgr.,7. gr. þar sem segir:
„Tryggingastofnun ríkisins tekur
ákvörðun um greiðsluþátttöku í
undanþágulyfjum á grundvelli
umsóknar, þar sem fram komi
verð lyfsins, ástœða fyrir ósk
lœknis um notkun lyfsins og hvers
vegna ekki er í viðkomandi tilfelli
unnt að nota skráð lyf eða lyf
framleitt sem forskriftarlyf lœknis
í apóteki". Umsóknareyðublöð
fyrir undanþágu fást hjá Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu. Á því eru reitir til útfyll-
ingar, þar sem ofangreind atriði
skulu koma fram. Því miður hefur
verið mikill misbrestur á því að
þessi atriði séu tilgreind á um-
sóknum.
Fyrirspurnir hafa borist um
hvað skuli gera ef sjúkratryggður
vill fá afgreitt ódýrasta samheita-
lyf og það er ófáanlegt. Ráðu-
neytið telur að Tryggingastofnun
ríkisins sé heimilt að beita þeirri
vinnureglu að taka þátt í umfram-
kostnaði sjúklinga í slíkum tilvik-
um, enda sé staðfest hjá viðkom-
andi heildsölu að umrætt ódýrasta
lyf hafi ekki verið fáanlegt á þeim
tíma sem reynt var að fá lyfið af-
greitt í apóteki. Sé ávísað lyfi sem
er á viðmiðunarverðlista og apó-
tekinu tekst ekki að útvega ódýr-
asta samsvarandi samheitalyf frá
viðkomandi lyfjaheildsölu er
apótekinu heimilt að beita þeim
almennu reglum, sem gilda um
greiðsluþátttöku lyfja sem eru
ekki á viðmiðunarverðlista, sam-
anber reglugerð um greiðslur al-
mannatrygginga í lyfjakostnaði
nr. 327/1995. Tryggingastofnun
ríkisins mun í þeim tilvikum end-
urgreiða apótekinu útlagðan
kostnað vegna afgreiðslu dýrara
samheitalyfs, enda fylgi lyfseðlin-
um, sem apótekið sendir stofnun-
inni, staðfesting frá lyfjaheildsölu
um að viðkomandi ódýrasta sam-
heitalyf hafi ekki verið fáanlegt.