Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.08.1995, Side 58

Læknablaðið - 15.08.1995, Side 58
630 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Pétur Pétursson Greinargerð heimilislæknis um félagsstarf lækna Á liðnum vetri hafa skiptar skoðanir íslenzkra lækna á ágæti tilvísanaskyldu komið nokkru róti á hugi manna og vakið áleitnar spurningar meðal heimilislækna um félagslega stöðu sína innan Læknafélags Islands. Hér er um gamalt ágreiningsefni að ræða, sem síð- asta aldarfjórðunginn hefur eitrað samskipti heimilislækna og sérgreinalækna og gert allt félagsstarf læknasamtakanna þvingað, því menn hafa vikizt undan að taka á málinu og leysa það innan stéttarinnar. Svo mun áfram verða, meðan menn forðast að ræða hugmyndafræði og rembast við að afneita við- kvæmum staðreyndum eins og oflækningum, faglegri vangetu, gróðafíkn, ábyrgðarleysi gagn- vart almannasjóðum og lýð- skrumi, en dæmi þessa má finna hjá einstökum læknum í flestum greinum heilbrigðisþjónustunn- ar. Því var kominn tími til að rjúfa þá bannhelgi, sem í reynd hefur ríkt meðal lækna á um- ræðum um þessi mál. Ég kann bezt við, að sú umræða og þau skoðanaskipti fari fram á síðum Læknablaðsins, á meðan það er ennþá sameiginlegt málgagn allra lækna. Ágreiningur innan lækna- stéttarinnar um reglugerð Sig- hvats fyrrverandi heilbrigðis- ráðherra um tilvísanir er þó í sjálfu sér aðeins smáatriði í aug- um okkar heimilislækna miðað við annað miklu stærra og alvar- legra mál, sem eru samskipti lækna í millum og sameiginlegt félagsstarf lækna á íslandi í framtíðinni. Þar sem eitt leiðir af öðru, þykir mér þó rétt að skoða þessi mál í nokkru sam- hengi. Það er mjög aðkallandi fyrir heimilislækna að gera sér grein fyrir aðstöðu sinni innan heildarsamtaka, þar sem eitt svæðafélag getur ráðið öllum ákvörðunum aðalfundar og vali forystu og trúnaðarmanna sam- takanna. Einkum og sér í lagi vegna þess að innan þessa sama svæðafélags eru heimilislæknar áhrifalausir og nú þegar hefur rjómi íslenzka heimilislækna- hópsins hrökklast úr þessu fé- lagi vegna margra áratuga van- sældar og kýs frekar félagslegan vergang en áframhaldandi ósigra og niðurlægingu innan Læknafélags Reykjavíkur. En hverjar eru nú ástæður þess, að fornvinir og kollegar geta ekki starfað saman í lækna- félagi eða læknasamtökum? Að mínu viti eru ástæðurnar í gróf- um dráttum þrenns konar: I fyrsta lagi teljum við heimil- islæknar það vera algjöra for- sendu vandaðra heimilislækn- inga, að allir landsmenn hafi eigin lækni, sem hafi heildarsýn yfir aðstæður og vandamál skjólstæðinga sinna. Þegar því verður við komið, séu fyrstu samskipti fólks við heilbrigðis- þjónustuna við heimilislækn- inn, sem sé allt í senn verkstjóri heilbrigðiskerfisins við úrlausn vandamála skjólstæðinga sinna, leiðsögumaður og fulltrúi sam- lagsmanna sinna gagnvart heil- brigðis- og tryggingakerfinu og síðast en ekki sízt umboðsmað- ur almannasjóða gagnvart al- menningi, sem stuðli að því, að fjármagn til heilbrigðismála nýtist sem bezt og jöfnuður ríki. Hin samfélagsrekna heilbrigðis- þjónusta leggur sérhverjum lækni þær skyldur á herðar, að hann beiti réttsýni sinni og dóm- greind og hyggi að þjóðarhag við alla ákvarðanatöku sína. Telji hann sig einungis skuld- bundinn skjólstæðingi sínum, er í heilbrigðiskerfi okkar veruleg hætta á, að fjármagn nýtist illa og misjafnt, þannig að sumir verði afskiptir og fjárskortur hamli framþróun. Samkvæmt þessu er það skylda heimilis- læknisins að efla og bæta kunn- áttu sína, dómgreind og færni, þannig að hann geti veitt sem bezta þjónustu á sem ódýrastan hátt og með því hamlað gegn oflækningum, óþarfa lyfjagjöf- um og ómarkvissum og endur- teknum rannsóknum og sparað fólki þannig tíma, útgjöld og óþægindi. Heimilislæknirinn leitar síðan aðstoðar sérgreina- lækna og annarra heilbrigðis- stétta, eftir því sem við á hverju sinni, enda geri hann sér grein fyrir takmörkunum sínum. Valfrelsi stendur nær öllum landsmönnum til boða, því víð- ast hvar geta þeir skipt um heimilislækni, hvenær sem er. Kjósi þeir að leita sérgreina- læknis án frumkvæðis heimilis- læknisins, skulu þeir að sjálf- sögðu hafa til þess fullan rétt, til dæmis ef þeir vilja endilega leita annars álits (second opinion),

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.