Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 17

Læknablaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 851 kvæma stórar opnar skurðaðgerðir til að fjar- lægja steina úr þvagfærum. Arið 1976 lýstu sænsku læknarnir Fernström og Johansson (2) aðferð til að fjarlægja nýrna- steina, með því að gera ástungu á nýra um húð og útbúa þannig gang, sem síðan var hægt að nota til að fjarlægja steina í gegnum. Svipuðum aðferðum við töku gallsteina hafði áður verið lýst af Burhenne (3). Aðferðin sem kalla mætti nýrnasteinatöku gegnum húð (percutaneous nephrolithotomy, PCNL), átti ekki miklu fylgi að fagna í byrjun. Upp úr 1980 var þróunin komin það langt, ekki síst fyrir áhuga dr. Wickham (4) þvagfæra- skurðlæknis í Lundúnum, að svo til allir þvag- færaskurðlæknar tileinkuðu sér hana og varð þetta um tíma hin hefðbundna aðferð til að fjarlægja nýrnasteina. Er þetta gott dæmi um breytingu á umfangsmiklum aðgerðum í svo- kallaðar naumaðgerðir (minimally invasive surgery). Pessum tæknilegu breytingum hefur að sjálf- sögðu fyrst og fremst verið fagnað af sjúkling- um okkar, sem geta útskrifast frískir um það bil tveimur til þremur dögum eftir aðgerð mið- að við sjö til 10 daga sjúkrahúslegu og fjögurra til fimm vikna endurhæfingu og veikindafrí eft- ir opinn nýrnaskurð. Þá er ónefndur hinn mikli þjóðfélagslegi sparnaður sem fæst að auki. Árið 1985 hófust þessar aðgerðir á Borgar- spítalanum við nýrnasteinum og steinum í efri hluta þvagleiðara. Á síðari hluta níunda áratugarins kom frarn á sjónarsviðið ný aðferð til að mylja steina, svokölluð höggbylgjumeðferð (extracorporal shock wave lithotripsy, ESWL). Steinarnir eru miðaðir út með óm- og/eða röntgentækjum, síðan eru sendar höggbylgjur í gegnum þá, sem mylja þá í smátt. I fyrstunni voru sjúklingar sendir í þessa meðferð til Noregs og Danmerk- ur. en árið 1993 voru keypt til Landspítalans slík tæki og er unnt að beita þessari aðferð við flesta steina í efri hluta þvagfæra. Á Borgar- spítalanum eru steinar sem komnir eru niður í neðri hluta þvagleiðara enn sem fyrr teknir með speglunartækjum. neðan frá í gegnum þvagrás og þvagblöðru. Hér á eftir verður gerð grein fyrir steintöku um húð, aðferðinni lýst, árangur metinn og fylgikvillar athugaðir og staða þessarar aðgerð- ar og annarra nýrnaraufunaraðgerða um húð (percutaneous nephrotomy procedures) metin í dag. Efniviður og aðferðir Gerð var afturvirk rannsókn á öllum sjúk- lingum sem gengust undir nýrnasteinatöku um húð á Borgarspítalanum á árunum 1985-1993. Voru þetta alls 92 sjúklingar 61 karl og 31 kona, sem fóru í samtals 112 aðgerðir. Sjúklingarnir voru á aldrinum 16-88 ára og meðalaldur var 50 ár. Athugaður var legutími sjúklinga. Stein- byrði, -lega og orsök var skoðuð. Fylgikvillar og eftirlit var kannað. Aðgerðin var venjulega gerð í tveimur áföngum og í samvinnu röntgenlækna og þvag- færaskurðlækna. Fyrsti áfangi var gerður á röntgendeild, sjúklingur staðdeyfður og í skyggningu var stungið grannri og holri nál inn að steininum. Þegar viðunandi lega hafði feng- ist á nálina var þræddur um hana leiðari inn í safnkerfi nýrans og yfir hann var síðan aftur þræddur nýrnaraufunarleggur (nephrostomy catheter) 9 Fr. Annar áfangi var gerður tveim- ur til þremur dögum síðar í svæfingu á skurð- stofu. Gangurinn eftir nýrnaraufunarlegginn var þá víkkaður upp í 28-30 Fr og komið fyrir jafnvíðum plasthólki sem náði frá yfirborði húðar og inn í safnkerfi nýrans, og var unnið í gegnum hann. I báðum áföngum var hafður þvagleggur í þvagleiðara til að unnt væri að þenja út safn- kerfið, sprauta inn litar- og/eða röntgen- skuggaefni eftir þörfum og aðgerðin gerð í skyggningu. Fyrirbyggjandi fúkalyfjameðferð var gefin. Sjálf steintakan var gerð með Storz nýrna- speglunartæki. Steinar 10 mm eða minni voru teknir með töng eða steinfangarakörfu en stærri steinar brotnir, fyrst með hljóð- eða raf- vatnsbylgjum og mylsnan síðan hreinsuð út eins og unnt var með töngum, skoli og sogi. Steinum í efri hluta þvagleiðara var ýtt upp í nýrnaskjóðu áður en hafist var handa við nýrnaástunguna. Þær aðgerðir voru venjulega framkvæmdar í einum áfanga á skurðstofu og í svæfingu, en að öðru leyti eins og að framan greinir. I aðgerðarlok var settur Foley þvagleggur Fr 22 um ganginn inn í nýrað til næsta dags eða lengur. Daginn eftir aðgerð var tekin röntgen- mynd af nýrnaskjóðu og leggurinn í flestum tilvikum tekinn. Ef viðunandi árangur hafði ekki náðst var hann hafður áfram eftir þörfum. Aðgerð taldist vera ein þó að farið væri um sama gang oftar en einu sinni og þá talinn nýr áfangi í sömu aðgerð. Aftur á móti var það
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.