Læknablaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 67
AUGMEIMTIINI
amoxicillín + klavúlansýra
ÁKJÓSANLEGT FYRSTA LYF
ÞEGAR MEÐHÖNDLA Á SÝKINGAR
í EFRI LOFTVEGUM
Augmentin töflur 250 mg + 125 mg
Augmentin töflur 500 mg + 125 mg
Augmentin mixtúra 25 mg + 6,25 mg / ml
Augmentin mixtúra 50 mg + 12,5 mg / ml
Klavulansýra eyðileggur ís-lactamasa
Amoxicillín verður aftur fullvirkt
AUGMENTIN (SmithKline Beecham, 870191) MIXTÚRUDUFT 25 mg + 6,25 mg/ml; J 01 C R 02 R O 1 ml
af lyfinu fullbúnu inniheldur: Amoxicillinum INN, tríhýdrat, samsvarandi Amoxicillinum INN 25 mg,
Acidum clavulanicum INN, kalíumsalt, samsvarandi Acidum clavulanicum INN 6,25 mg, Aspartamum 2,5
mg, bragöefni og burðarefni q.s., Aqua purificata q.s. ad 1 ml. MIXTÚRUDUFT 50 mg + 12,5 mg/ml; J 01
C R 02 R O 1 ml af lyfinu fullbúnu inniheldur: Amoxicillinum INN, tríhýdrat, samsvarandi Amoxicillinum
INN 50 mg, Acidum clavulanicum INN, kalíumsalt, samsvarandi Acidum clavulanicum 12,5 mg,
Aspartamum 2,5 mg, bragðefni og burðarefni q.s., Aqua purificata q.s. ad 1 ml. TÖFLUR 250 mg + 125
mg; J 01 C R 02 R O Hver tafla inniheldur: Amoxicillinum INN, tríhýdrat, samsvarandi Amoxicillinum
INN 250 mg, Acidum clavulanicum INN, kalíumsalt, samsvarandi Acidum clavulanicum INN 125 mg.
TÖFLUR 500 mg + 125 mg; J 01 C R 02 R O Hver tafla inniheldur: Amoxicillinum INN, tríhýdrat,
samsvarandi Amoxicillinum INN 500 mg, Acidum clavulanicum INN, kallumsalt, samsvarandi Acidum
clavulanicum INN 125 mg. Eiginleikar: Lyfið er blanda af amoxicillíni og klavúlansýru, sem breikkar
verkunarsvið amoxicillíns, sem þar með verður virkt gegn mörgum sýklategundum, sem framleiða
beta-laktamasa, t.d. klasasýklum, H. influenzae, Branhamella catarrhalis og B. fragilis, N. gonorrhoeae og
mörgum Gram-neikvæðum stöfum. Amoxicillín hefur sýkladrepandi verkun, en klavúlansýra hefur
nánast enga beina verkun á sýkla. Bæði efnin frásogast vel frá meltingarvegi og er frásog best þegar
lyfið er tekið fyrir máltíð. Helmingunartími er u.þ.b. 1 klst. Próteinbinding amoxicillíns er 18 % og
klavúlansýru 25%. Bæði efnin útskiljast í virku formi með þvagi. Ábendingar: Sýkingar af völdum sýkla,
sem eru næmir fyrir lyfjablöndunni. Frábendingar: Ofnæmi fyrir beta-laktam lyfjum, t.d. penicillíni og
cefalóspórínsamböndum. Mononucleosis. Saga um gulu eða skerta lifrarstarfsemi, sem tengist gjöf á
Augmentin eða skyldum lyfjum. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki hefur verið sýnt fram á vanskapandi áhrif
á fóstur af völdum lyfsins í dýratilraunum. Þar eða reynsla af notkun lyfsins á meðgöngu er takmörkuð
skal forðast notkun lyfsins hjá þunguðum konum, einkum á fyrsta þriðjungi meðgöngutíma, nema brýna
nauðsyn beri til. Konur með börn á brjósti mega nota lyfið. Aukaverkanir: Við venjulega skömmtun
lyfsins má búast við aukaverkunum hjá 5% sjúklinga. Aukaverkanir frá meltingarvegi svo sem linar
hægðir, ógleði og uppköst eru þó algengari ef hærri skammtar eru gefnir. Virðast þessar aukaverkanir
algengari við gjöf þessa lyfs en við gjöf amoxicillíns eins sór. Algengar (>1%): Meltingarvegur: Linar
hægðir. Húð: Útbrot, kláði. Sjaldgæfar (0,1-1%): Blóð: Eosinofilia. Meltingarvegur: Ógleði, uppköst. Húð:
Ofsakláði. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Almennar: Ofnæmislost. Blóð: Hækkun á blóðflögum.
Meltingarvegur: Pseudomembraneous colitis. Húð: Steven-Johnsons heilkenni, erythema multiforme,
exfoliativur dermatitis. Lifur: Lifrarbólga (gula) með stíflumynd. Þvagfæri: Millivefsbólga í nýrum. Við
einkirningasótt er tíðni húðútbrota hærri og það sama hefur sóst hjá sjúklingum með hvítblæði.
Milliverkanir: Próbenecíð seinkar útskilnaði amoxicillíns, en ekki útskilnaði klavúlansýru. Því er ekki
mælt með samtímis gjöf próbenecíðs og Augmentin. Samtímis gjöf ampicillíns og allópúrínóls eykur
líkur á útbrotum, hugsanlegt er, en þó ósannað, að hið sama gildi um amoxicillín. Eins og önnur
breiðvirk sýklalyf getur Augmentin dregið úr virkni getnaðarvarnataflna. Varúð: Við skerta
nýrnastarfsemi (kreatínínklerans < 30 ml/mín.) þarf að minnka skammta fyrir 250 mg + 125 mg töflur og
500 mg + 125 mg. Gæta skal varúðar hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Vegna
aspartaminnihalds mixtúrunnar skal gæta varúðar hjá sjúklingum með fenýlketonureu. Skammtastærðir
handa fullorðnum: Venjulegur skammtur er ein tafla 250 mg + 125 mg þrisvar sinnum á dag. Við
alvarlegum efri loftvegasýkingum og lungnasýkingum ein tafla 500 mg + 125 mg þrisvar sinnum á dag.-
Æskilegt er að gefa lyfið fyrir máltíð.
Fj. stofna [Wj60-95% H|5-60% I |<5%
næmir (%) Hi I I Hi |___J
Sýklafræðideild Lsp., KGK, Janúar 1995
Skammtastærðir handa börnum:
Mixtúra 25 mg + 6,25 mg/ml (1 ml mixtúra = 25 mg amoxicillín):
Líkams- Dagsskammtur 20 mg/kg 40 mg/kg
Þyngd (venjulegur skammtur)
5-6 kg 11/j ml x 3 2Va ml x 3
7-9 kg 2 ml x 3 4 ml x 3
10-12 kg 2V2 ml x 3 5mlx3
Mixtúra 50 mg + 12,5 mg/ml; (1 ml mixtúra = 50 mg amoxicillín):
Líkams- Dagsskammtur 20 mg/kg 40 mg/kg
þyngd (venjulegur skammtur)
7-9 kg 1 ml x 3 2 ml x 3
10-12 kg 1V2 ml x 3 21/2mlx3
13-19 kg 2V2 ml x 3 5 ml x 3
20-30 kg 4 ml x 3 V/2 ml x 3
> 30 kg 5 ml x 3 10mlx3
Athugið: Fullbúin mixtúra hefur7 daga geymsluþol í ísskáp (2-8C).
SO
SmithKlme Beecham
Stefán Thorar ensen
SiBumúIa 32 ■ 108 Reykjn tk ■ Sími 91-686044
Pakkningar
og verð:
Mixtúruduft 25 mg + 6,25 mg/ml: 80 ml 940 kr.
Mixtúruduft 50 mg + 12,5 mg/ml: 80 ml 1667 kr
Töflur 250 mg + 125: 16 stk. (þynnupakkað) 1592 kr.
Töflur 500 mg + 125 mg: 16 stk. (þynnupakkað) 2682 kr.
verð í nóv. 1995