Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 59

Læknablaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 59
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 885 Hollvinasamtök Háskóla íslands al yngri pilta og ungra stúlkna á allra síðustu árum (landlæknis- embættið 1995). Árangur tó- baksvarna virðist ekki vera jafn- góður meðal eldra fólks. Stór- reykingar meðal 30-34 ára karla hafa til dæmis ekki minnkað á Stór-Reykjavíkursvæðinu og í Árnessýslu, en meðal kvenna hafa þær heldur minnkað (Mon- ica). Meðal 50-59 ára karla og kvenna á Stór-Reykjavíkur- svæðinu virðast stórreykingar ekki hafa minnkað, heldur frek- ar aukist. Ljóst er að nauðsyn- legt er að beita öðrum ráðum en hingað til. Landlæknisembættið hefur lagt til að reykingavarnar- námskeið verði efld á heilsu- gæslustöðvum en því miður hef- ur þetta ekki gengið nægilega eftir. Af könnunum má ráða að flest stórreykingafólk vill hætta að reykja. Tóbaksvarnir meðal þeirra er reykja hafa ekki skilað árangri sem skyldi í þessu tilliti. Tó- baksvarnir á að reka í góðum tengslum við þá sem standa að forvarnaraðgerðum í samvinnu við heilsugæslustöðvarnar. Það tíðkast um of að forvarnarað- gerðir séu alfarið skipulagðar af nefndum og ráðum sem stjórna með auglýsingum og tillögum en eru ekki í beinum tengslum við fólkið í framlínunni. Því fer sem fer. Besta dæmið sem ef til vill er hægt að læra af er forvarn- arskipulag Dana. Þeir voru fyrstir norrænna þjóða til þess að skipa forvarnarráð sem starf- ar sjálfstætt fyrir utan danska landlæknisembættið. Árangur varð lélegur því að lítið eða ekk- ert hefur dregið úr óheilsusam- legum lífsstíl, meðal annars reykingum Dana. Afleiðingin er sú að lífslíkur Dana fara nú lækkandi, einu þjóðarinnar í Norður- og Mið-Evrópu. Danir hafa nú flutt forvarnaraðgerðir til landlæknisembættisins í von um betri árangur. Þann 1. desember verða stofnuð Hollvinasamtök Há- skóla Islands. Hugmyndin hef- ur verið til umræðu alllengi inn- an Háskólans en nú hefur Stúd- entaráð ákveðið að hrinda henni í framkvæmd og hefur sérstök nefnd unnið að undir- búningi málsins. Um er að ræða samtök fyrr- um kandídata frá Háskóla ís- lands og annarra velunnara skólans, menntunar og vísinda, eins og segir í fréttatilkynningu frá Stúdentaráði Háskóla Is- lands. Samtökin verða öllum opin þótt líklegt megi telja að þangað muni einkum sækja fé- lagsmenn úr fagfélögum há- skólamenntaðra manna. Stofnfélögum verður safnað fram til 17. júní 1996. Allar nán- ari upplýsingar verða veittar hjá Stúdentaráði HÍ, í síma 562 1080. Öldungadeild L.í. Öldungadeild L.í. heldur skemmtifund fimmtudaginn 14. desember næstkomandi. Staður og tímasetning verða auglýst nánar í fundarboði. Stjórnin XII. þing Félags íslenskra lyflækna að Sauðárkróki 7.-9. júní 1996 Félag íslenskra lyflækna heldur sitt XII. þing dagana 7.-9. júní 1996 að Hótel Áningu Sauðárkróki. Þingið verður með hefðbundnum hætti og stendur frá hádegi föstudags til síðdegis á sunnudegi. Skilafrestur ágripa er 15. apríl. Öllum ágripum erinda og veggspjalda skal skilað á disklingum, ásamt einu útprenti. Hámarkslengd ágripa verður 1730 tákn. Nánari upplýsingar um efnisfrágang og tilhögun þingsins munu birtast í febrúarhefti Læknablaðsins. Stjórnin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.