Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 24

Læknablaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 24
858 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Segulómun af höfði við greiningu og mat á Wilsons sjúkdómi Umræða tengd sjúkratilfelli Kolbrún Benediktsdóttir1’, Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir1’, Grétar Guðmundsson1’, Ólafur Grétar Guð- mundsson21, Friðrik Friðriksson31 Bencdiktsdóttir K, Sveinbjörnsdóttir S, Guðmunds- son G, Guðmundsson ÓG, Friðriksson F MRI of the Brain as a Diagnostic Tool in Wilson’s Disease Læknablaðið 1995; 81: 858-63 The case history of a young patient with Wilson’s disease (WD) is presented. The diagnosis of WD was based on increased urinary copper excretion, the presence of Keyser-Fleisher rings, changes ob- served on MRI of the brain and a remote family history of WD. The patient’s parents were distantly related. The MRI showed symmetrically increased signal in the basal ganglia and in the brain stem on protein density and T2 weighted images. Similar changes were later observed in the thalamic nuclei. Signal changes observed on cerebral MRI in WD and their diagnostic and prognostic significance are discussed. The importance of recognising the symptoms of WD is emphasized, as early treatment may prevent death from hepatic failure or permanent damage of the central nervous system. Keywords: Wilson ’s disease, MRI, basal ganglia, ex- trapyramidal symptoms, autosomal recessive. Frá "röntgen- og taugalækningadeildum Landspítalans, 101 Reykjavík, 21augndeild Landakotsspítala v/Túngötu, 101 Reykjavík, 3,Heilsugæslustöö Skagfirðinga, 550 Sauðár- krókur. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, tauga- lækningadeild Landspítalans, 101 Reykjavík. Lykilorð: Wilsons sjúkdómur, segulómun, djúphnoð, utan- strýtueinkenni, frílitnings vikjandi erfðir. Ágrip Greint er frá tæplega tvítugum einstaklingi með Wilsons sjúkdóm. Greining sjúkdómsins var að hluta byggð á segulómun af höfði, sem leiddi í ljós breytingar í djúphnoðum (basal ganglia) og heilastofni. Koparútskilnaður í þvagi sjúklings var mjög aukinn og hringlaga koparútfellingar sáust í hornhimnum (Kayser- Fleischer hringir), en hvort tveggja er einkenn- andi fyrir Wilsons sjúkdóm. Við eftirgrennslan kom í ljós, að Wilsons sjúkdómur hafði áður komið fram í föðurætt sjúklings og foreldrar voru fjærskyldir. Inngangur Wilsons sjúkdómur er frflitnings víkjandi (autosomal recessive) erfðasjúkdómur, sem orsakast af truflun á útskilnaði kopars. Líf- efnafræðilegur galli í sjúkdómnum er óþekkt- ur, en vitað er, að koparútskilnaður um lifur er verulega minnkaður, og binding kopars í sermi við bindihvatann serúlómplasmín er skert. Kopar fellur út og hleðst upp í ýmsa líkams- vefi, svo sem lifur, heila, hornhimnu augans, liðamót og nýru. Hið gallaða gen situr á litningi 13 (ql4.1) (1). Genið er talið vera fyrir hendi í allt að einum af hverjum 100 einstaklingum af báðum kynjum (2). Algengi Wilsons sjúkdóms er mismunandi eftir þjóðfélögum og venjum um innbyrðis giftingar, en flestar rannsóknir sýna algengið einn af hverjum 20-40.000 (3) þótt mun lægri tölur hafi einnig verið nefndar (einn af hverjum 250.000) (4). Samkvæmt því ættu sex til 12 einstaklingar á íslandi að hafa sjúkdóminn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.