Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 54

Læknablaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 54
882 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Mansjúríu sveppate - heilsudrykkur? Undanfarin ár hefur orðið mikil umræða um heilbrigt líf- erni og hollustu matvæla. Hefur það meðal annars birtst í æ meiri neyslu allskyns „fóður- bætis“, bæði vítamína og nátt- úrulegra afurða. Ein af þessum afurðum er hið svokallaða Man- sjúríu te, Kombucha te eða sveppate. Hér er um að ræða afurðir svepps sem er dreift endurgjaldslaust milli manna af hreinni góðsemi og umhyggju fyrir heilsu hinna sveppalausu. I sumum tilfellum fylgir sveppn- um dreifirit sem tíundar ágæti sveppatesins og leiðbeinir um ræktun og umhirðu sveppsins og afurðanna. Sveppasafinn er sagður hafa þá náttúru að hægja á öldrunar- breytingum, laga hægðatregðu og niðurgang, vöðvabólgu, skýmyndun á augasteini, lungnakvef og astma, lækka kólesteról og mýkja æðaveggi, auka fitubrennslu og létta fólk. Einnig er teið sagt jafna blóð- sykur, vera lifrarstyrkjandi, hreinsa þvag og þykkja og dekkja höfuðhár. Teið á einnig að koma í veg fyrir og lækna krabbamein. Þá er því haldið fram að þetta te hafi hjálpað ónæmiskerfi fjölmargra alnæm- issjúklinga (1). Teið er útbúið þannig að 4,5 lítrar af vatni eru soðnir. Einum bolla af hvítum sykri er bætt út í og látið sjóða í fimm mínútur. Því næst eru fjórir tepokar settir út í og látnir liggja í 10 mínútur. Vökvinn er látinn kólna alveg, settur í gler- eða plastskál og sveppurinn settur út í. ílátið er hulið með grisju og látið standa í stofuhita í sjö til 10 daga. Að þessum tíma loknum er svepp- urinn fjarlægður og vökvinn sí- aður og kældur. Ráðlagt er að drekka um 200 ml á dag á fast- andi maga (1). Samkvæmt sam- tölum við nokkra neytendur er ljóst að sumir neyta mun meira magns en ráðlagt er í áður- nefndum dreifiritum. í ljósi þess að ónæmisbældum sjúklingum svo sem krabba- meinssjúklingum og alnæmis- sjúklingum er ráðlagt að drekka þetta te, þótti undirrituðum ástæða til að grennslast frekar fyrir um flóru og jafnvel fánu þessa tes. Starfsfólk Hollustuverndar ríkisins lagði í eina lögun eftir áðurnefndri uppskrift. Sýni voru tekin úr vökvanum á fyrsta, þriðja, fimmta, áttunda og 19. degi. Mælt var sýrustig (pH), taldar bakteríur og sveppir. Alkóhólmagn var mælt á 19. degi. Sýni úr vökva sem hafði staðið kældur í um þrjár vikur var tekið og sent á sýkla- deild Landspítala til ræktunar og tegundagreiningar. Niðurstöður á skoðuninni á vökvanum í löguninni sjást í meðfylgjandi töflu. Sýrustig lækkaði úr 6,2 á fyrsta degi í 2,8 á áttunda degi. Gerlafjöldi í hverjum ml lækkaði úr 3,0*106 á þriðja degi í 8,9*104 á áttunda degi. Gersveppir voru 4,3*106 á þriðja degi og lækkuðu í 7,7*105 á áttunda degi. Mjólkursýru- gerlar voru 3,5*106 á þriðja degi og lækkuðu í 9,5*104 á áttunda degi. Vökvi sem hafði verið kældur í viku innihélt 6,3*105 bakteríur, 1,9*106 gersveppi og 3,7*105 mjólkursýrugerla. Ræktun á vökva sem hafði stað- ið kældur í um þrjár vikur sýndi mikinn vöxt af Saccharomyces cerevisiae, en engar bakteríur ræktuðust þá. Alkóhólmagn var mælt á 19. degi og reyndist 1%. S. cerevisiae er gersveppur, mjög líkur Candida sp. sem er velþekktur sjúkdómsvaldur í mönnum. Mikil umræða hefur verið um svonefnt ofnæmi gegn Candida (Candida hypersensi- tivity syndrome) sem sagt er valda ýmsum einkennum. Til- vist þess er þó mjög umdeild að minnsta kosti hefur meðferð gegn Candida ekki bætt ein- kenni þeirra sem hafa talið sig með þetta ofnæmi (2). S. cerevisiae er hins vegar þekktastur fyrir að vera notaður til bruggunar á öli og til brauð- gerðar. S. ellipsoideus er ná- skyldur og er notaður til vín- gerðar. S. cervisiae er mjög út- breiddur og getur verið hluti af eðlilegri flóru líkamans í hálsi og meltingarvegi (3). Áður var talið að S. cerevisiae ylli ekki sjúkdómum í mönnum, en nú þykir ljóst að hann getur valdið ýmsum sýkingum. Lýst hefur verið alvarlegum sýkingum og nokkrum dauðs- föllum þar sem S. cerevisiae var talinn vera orsakavaldur, oft reyndar með öðrum sveppum og bakteríum. Sjúklingar voru oftast með alvarlega sjúkdóma fyrir, ýmsa blóðsjúkdóma svo sem Waldenströms risaglóbúl- índreyra (macroglobulinaem- ia), myelodysplasia og krabba- mein ýmiss konar, til dæmis Hodgkins sjúkdóm og bris-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.