Læknablaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 52
880
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Samningur LR og TR
Frá Félagi íslenskra lækna undir sjávarmáli
Félag íslenskra lækna undir
sjávarmáli (FÍLUS) lýsir mikilli
óánægju sinni með innihald
kjarasamnings sem gerður var í
sumar milli Læknafélags
Reykjavíkur (LR) og Trygg-
ingastofnunar ríkisins (TR) um
sérfræðilæknishjálp. Pað má
ljóst vera af þessum samningi,
að hagsmunum lækna sem nú
eru í sérnámi hefur verið fórnað
fyrir hagsmuni sérfræðinga,
sem þegar eru starfandi á Is-
landi. Við, félagar FÍLUS, get-
um ekki betur séð en að mögu-
leikar á að koma heim til Islands
að sérnámi loknu, hafi verið
verulega skertir, þar sem að-
gengi inn á samninginn er tak-
markað. Sérfræðingar sem
heima sitja eru hér fyrst og
fremst að gæta eigin hagsmuna
með því að tryggja að sem fæstir
sérfræðingar fái samning við
TR. Það er líka alls óviðunandi
að samráðsnefndin sem meta á
umsækjendur inn á samninginn
er skipuð fulltrúum sem fjár-
hagslega hafa hag af því að sem
fæstir nýir sérfræðingar verði
samþykktir inn á samninginn.
Annars er ákvæðið um sam-
ráðsnefndina í samningnum op-
ið í báða enda, því að í samn-
ingnum stendur að „Nýir sér-
fræðingar geta því aðeins
starfað samkvæmt samningi
þessum að þeir hafi verið sam-
þykktir af TR að fengnum með-
mælum samráðsnefndar TR og
LR.“ Pað er því í raun TR sem
ræður hverjir koma inn á samn-
inginn, því samráðsnefndin gef-
ur aðeins meðmæli en ekkert er
í samningnum um að meðmæli
nefndarinnar séu bindandi fyrir
TR. Það virðist líka vera munur
á túlkun LR og TR hvað varðar
takmörkunarákvæðið. Túlkun
LR er sú, að í raun verði engin
takmörkun heldur aðeins smá
töf á að viðkomandi sérfræðing-
ur komist inn. En ef litið er á
túlkun TR, ef marka má blaða-
greinar, þá tala þeir um raun-
verulega takmörkun. Svo virð-
ist sem hið síðara hafi sannast
með nýlegri neitun tveggja
ungra sérfræðinga inn á samn-
inginn.
Það kemur verulega á óvart
að samið sé um takmörkun á
aðgengi ungra sérfræðinga inn á
samninginn en ekkert er fjallað
um starfslok eldri sérfræðinga.
Eldri sérfræðingar geta því
haldið áfram að senda reikninga
til TR eins lengi og þeir vilja og
eins og dæmin sanna, oft fram í
háa elli. Ekkert er því í þessum
samningi sem lítur að eðlilegri
endurnýjun í stéttinni. Gerir LÍ
sér grein fyrir hvað svona samn-
ingur getur haft í för með sér
fyrir heilbrigðisþjónustuna
þegar til lengri tíma er litið?
Eðlileg endurnýjun lækna/sér-
fræðinga er nauðsynleg til að
tryggja áframhaldandi framþró-
un faglegrar þekkingar og
tækni, í læknisfræði á íslandi.
Samningur þessi gildir aðeins
til áramóta og munu því nýjar
samningaviðræður fara fram.
Það er eindregin krafa FÍLUS
að meira tillit verði tekið til
hagsmuna ungra lækna í þeim
samningaviðræðum.
Frá Svæfíngalæknafélagi íslands
Aðalfundur Svæfingalækna-
félags íslands haldinn 18. nóv.
1995 mótmælir þeirri ákvörðun
Samráðsnefndar L.R. og T.R,
að segja upp einhliða samningi
við þá sérfræðinga sem ekki
hafa sent inn reikninga T.R. frá
maí 1994.
Pað er álit fundarins að um
skýlaust brot sé að ræða á fyrstu
grein samningsins um sérfræði-
hjálp, en þar segir: „Samningur-
inn nær til þeirra sérfræðinga,
sem starfað hafa samkvæmt
honum fyrir undirskriftardag.“
Fundurinn lýsir yfir áhyggj-
um sínum á þeirri forræðis-
hyggju sem fulltrúar læknasam-
takanna í samráðsnefnd hafa
sýnt og beinir þeim tilmælum til
læknafélaganna, að það leiti
allra ráða til að fá þeirri gjörð
hnekkt, þ.á.m. fyrir dómstólum
og siðanefnd lækna, ef þörf
krefur.
Fundurinn lýsir einnig yfir
áhyggjum vegna ákvæðis um
takmörkun á aðgengi að samn-
ingi L.R. við T.R. sem gæti haft
í för með sér ónóga nýliðun sér-
fræðilækna á íslandi.