Læknablaðið - 15.12.1995, Blaðsíða 56
884
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Ólafur Ólafsson, landlæknir
Tóbaksvarnir hafa ekki dugað
stórreykingafólki
Yfirleitt hefur reykinga-
mönnum í heild fækkað á und-
anförnum áratugum. Fækkunin
hefur aðallega orðið meðal 12-
16 ára og framhaldsskólanema
(borgarlæknir og landlæknis-
embættið 1994-1995). Reyk-
ingafólki hefur einnig fækkað
meðal eldra fólks. Ekki hefur
yerið kannað hvernig stórreyk-
ingafólki hefur farnast. í þessu
greinarkomi er skýrt frá þessu.
Stuðst er við niðurstöður
hóprannsóknar Hjartaverndar,
það er fyrsta og fimmta áfanga á
Stór-Reykjavíkursvæðinu á ár-
unum 1967-1991 og Monica
rannsókn Hjartaverndar á
Reykjavíkursvæðinu og í Ar-
nessýslu á árunum 1983-1993.
Skipulagningu, aðferðum og
gæðamati hefur verið lýst í
Læknablaðinu og víðar og verð-
urþví ekki tíundað hér.
I töflum I—III má lesa um nið-
urstöður í nokkrum aldurshóp-
um.
Stórreykingakörlum virðist
ekki hafa fækkað. Stórreyk-
ingakonum hefur heldur fækk-
að. Svipaður fjöldi karla og
kvenna reyktu 1983-1993 (töflur
I-II).
í töflu III er miðað við fyrstu
komu þátttakenda á Rannsókn-
arstofu Hjartaverndar. Meðal
eldri karla og kvenna hafa færri
aldrei reykt og fleiri hafa hætt
en áður. Þeir sem hafa hætt
reyktu pípu og vindla eða innan
við hálfan pakka af sígarettum
áður. Stórreykingafólki hefur
ekki fækkað og jafnvel fjölgað.
Tafla I. Tóbaksneysla ungra karla og kvenna íReykjavík 1983-1993.
Aldur er 30-34 ár.
Karlar (%) Konur (%)
1983 n=50 1993 n=79 1983 n=60 1993 n=75
Aldrei reykt 30,0 30,4 35,0 38,7
Hætt að reykja 26,0 25,3 23,3 24,0
Reykja pípu/vindla 6,0 0 0 0
Reykja 1-15 sígarettur á dag 8,0 12,7 11,7 16,0
Reykja >15 sígarettur á dag 30,6 31,7 30,0 21,3
Tafla II. Tóbaksneysla ungra karla og kvenna í Árnessýslu 1983- 1993. Aldur er 30-34 ár.
Karlar (%) Konur (%)
1983 n=42 1993 n=44 1983 n=62 1993 n=47
Aldrei reykt 30,9 43,2 37,1 34,1
Hætt að reykja 23,8 20,5 16,1 31,9
Reykja pípu/vindla 11,9 4,5 0 0
Reykja 1-15 sígarettur á dag 7,3 4,5 9,7 12,8
Reykja >15 sígarettur á dag 26,1 27,3 37,1 21,3
Tafla III. Tóbaksneysla karla og kvenna áStór-Reykjavíkursvœðinu 1967-1989. Aldur er 55-59 ár.
Karlar (%) Konur (%)
1967 n=214 1989 n=381 1967 n=259 1989 n=464
Aldrei reykt 18,2 25,5 47,1 43,2
Hætt að reykja 23,8 34,4 10,8 23,2
Reykja pípu/vindla 24,3 17,3 0 0
Reykja 1-15 sígarettur á dag 16,8 6,8 27,0 13,6
Reykja >15 sígarettur á dag 16,9 16,0 14,2 20,0
Svo virðist sem tóbaksvarnir í
grunn- og framhaldsskólum hafi
borið góðan árangur. Mun færri
unglingar byrja að reykja en
áður. Að vísu hefur orðið nokk-
ur fjölgun reykingamanna með-