Læknablaðið - 15.10.1996, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
707
Table I. All cleftpatients treated at Landspítalinn, University
Hospital 1930-1990, grouped as to sex and type ofcleft. CP:
cleft palate, CL: cleft lip, CLP: cleft lip and palate.
CP CL CLP Total
Male 68 72 123 263
Female 87 34 49 170
Total 155 106 172 433
artengsl og tíðni annarra meiriháttar með-
fæddra galla samfara þeim.
I öðru lagi að gefa yfirlit yfir þá meðferð,
sem skarðasjúklingar hafa fengið og hvernig
hún hefur breyst í áranna rás (21-23).
í þriðja lagi að reyna að meta árangur með-
ferðarinnar og bera hann saman við árangur af
meðferð annars staðar (22,23). Slíkur saman-
burður hlýtur þó alltaf að vera afstæður vegna
þess að upplýsingar og mat á upplýsingum er
mjög mismunandi eftir mönnum og stöðum.
Til þess að skoða annan þáttinn og hinn
þriðja, voru valdir sjúklingar fæddir á árabilinu
1955-1984 en upplýsingar um þá voru taldar
nægilegar til að meta langtímaárangur með-
ferðar, sem byggist á mati á útliti, talhljómi og
ástandi tanna (24-29).
Efniviður og aðferðir
Lesnar voru sjúkraskrár allra sjúklinga með
andlitsskörð, sem legið hafa á Landspítalanum
frá upphafi, alls 433. Sjúklingarnir voru flokk-
aðir eftir ICD kerfinu og eftir kyni. Reyndust
155 sjúklingar hafa eingöngu klofinn góm, 87
konur og 68 karlar, 106 sjúklingar höfðu skarð í
vör og/eða tanngarði, 34 konur og 72 karlar og
172 sjúklingar höfðu alskarð eða klofna vör og
góm (clept lip and palate, CLP), 49 konur og
123 karlar (tafla I).
Af 346 sjúklingum fæddum 1955-1989 voru
332 undirflokkaðir eftir gerð skarðsins sam-
kvæmt alþjóðlega viðurkenndu kerfi kenndu
við Kernahan (30). Frá 1955 eru til nokkuð
áreiðanlegar lýsingar á skörðunum, ásamt ljós-
myndum af flestum sjúklingum (mynd 2).
Sjúklingar með klofinn góm (ICD 749.0) 102
að tölu, 48 konur og 54 karlar, skiptust þannig
að bæði mjúki og harði gómurinn var klofinn
hjá 47 sjúklingum, mjúki gómurinn allur hjá 47
og sex sjúklingar höfðu klofinn úf og/eða vik í
gómvöðvum, lýsingu á gómklofanum vantaði
hjá einum. f þessum hópi eru fleiri karlar en
konur, sem er öfugt við það sem algengast er
með öðrum þjóðum. Séu hins vegar dregnir frá
Fig 2. The Kernahan system for classification of clefts.