Læknablaðið - 15.11.1997, Side 46
754
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Umræða og fréttir
Formannsspjall
Vandi fylgir vegsemd hverri
Ágætu kollegar!
Nú á þessum tímamótum
þegar ég tek við embætti for-
manns Læknafélags Islands er
mér efst í huga þakklæti til ykk-
ar fyrir það mikla traust sem þið
hafið sýnt mér. Fráfarandi for-
maður Sverrir Bergmann hefur
leitt okkur á farsælan hátt í
gegnum ólgusjó erfiðra tíma í
þroskaferli samtakanna. Við
stöndum öll í stórri þakkarskuld
við hann.
Læknasamtökin eru öflug
samtök, en ég og fleiri erum
þeirrar skoðunar að þau þurfi
að vera ennþá öflugri.
Nú þegar við læknar höfum
borið gæfu til að slíðra sverðin
og snúa bökum saman bíða
mörg spennandi verkefni, sum
erfið, úrlausnar. Kjaramálin
brenna á okkur öllum, laun,
vinnutími og aðstaða lækna
þurfa endurskoðunar við. Við
eigum að beita okkur fyrir því
sem ég hef viljað nefna nýja sýn
lœknasamtakanna. Læknar eiga
stöðu sinnar vegna að taka virk-
ari þátt í mótun heilbrigðis-
stefnu og stjórnun heilbrigðis-
stofnana. Læknasamtökin eiga
að hafa skoðun á öllum heil-
brigðispólítískum málum og
koma þeirri skoðun á framfæri
við stjórnvöld og í fjölmiðlum.
Öflugt félagsstarf lækna, sí-
menntun og endurmenntun
kemur til með að njóta góðs af
nýstofnaðri Fræðslustofnun
lækna. Styrkur okkar liggur í
Ljósm. Lbl.
þeirri þekkingu sem við höfum.
Mikilvægt er að læknasamtökin
tryggi og hafi eftirlit með gæð-
um menntunar og starfskunn-
áttu lækna.
Talsvert hefur borið á
óánægju lækna með þjónustu
skrifstofu læknasamtakanna.
Nauðsynlegt er að taka tillit til
þessara sjónarmiða og er endur-
skipulagning nú hafin í sam-
vinnu við rekstrarráðgjafa. Sett
verða upp þjónustumarkmið
LÍ, það er hvaða þjónustu verði
hægt að veita, þannig að félagar
í LÍ fái þá þjónustu sem að þeir
þurfa, þegar þeir þurfa á henni
að halda. Læknasamtökin eru á
leiðinni á upplýsingahraðbraut-
ina, komið verður upp tölvu-
póstneti lækna, heimasíðu á al-
neti og staðarneti lækna með
öllum nauðsynlegum upplýsing-
um fyrir lækna í samskiptum
þeirra við skrifstofu félagsins og
Læknablaðið.
Vinna við stefnumörkun og
innra skipulag læknasamtak-
anna er hvergi nærri fulllokið og
verður framhaldið. Öflug og
samhent samtök eru skilyrði
þess að læknar nái árangri í
framtíðinni.
Með formannskveðju
Guðmundur Björnsson
form@icemed.is